Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Eintóm sýra

Orðið sýra er í hugum margra eitt­hvað sem er hættu­legt og ætti alls ekki að vera borið á húð­ina. Það er mesti mis­skiln­ingur því sýrur geta verið gagn­legar í húð­um­hirð­unni, en hér eru nokkrar góðar sem hreinsa, næra og fleira.

Eintóm sýra

Glycolic-sýra

Margir þekkja glycolic-sýru sem ávaxta­sýru, enda er hún mest­megnis unnin úr ávöxtum og er ein af svoköll­uðu alpha hydroxy-sýrum. Um er að ræða vatns­leys­an­lega sýru sem vinnur á yfir­borði húðar við að leysa upp dauðar húð­frumur. Hún gagn­ast vel í bar­átt­unni gegn öldrun því hún dregur úr fínum línum, eykur þéttni og ljóma og gerir áferð húðar fal­legri. Glycolic-sýra hentar sér­stak­lega þeim sem eru með þurra húð því hún fjar­lægir sjá­an­leg ummerki þurrks­ins, svo sem stökka og dauða húð, án þess þó að þurrka húð­ina enn frekar. Þvert á móti hjálpar hún húð­inni að binda betur raka með því að fjar­lægja dauðu húð­frum­urnar af yfir­borð­inu.

Salisylic-sýra

Fleiri sýrur hafa djúp­hreins­andi áhrif, þar á meðal salisylic-sýra sem er einnig þekkt sem BHA, eða beta hydroxy acid. Það sem hún hefur fram yfir glycolic-sýru er að hún er fitu­leys­an­leg og vinnur því dýpra en bara á yfir­borð­inu. Hún hentar vel þeim sem eru með feita húð eða bólu­húð því hún kemst í gegnum olí­una og hreinsar dauðar húð­frumur eða stíflur sem sitja fastar í svita­hol­unum. Þannig dregur hún úr myndun fíla­pensla og svo hefur hún einnig bólgu­eyð­andi og bakt­er­íu­drep­andi eig­in­leika sem nýt­ast vel ef bólur eru til staðar.

Retinoic-sýra

Til eru ýmsar afleiður A-vítamíns sem allar gera nokkurn veg­inn það sama og ein sú öfl­ug­asta er retinoic-sýra. Hana er þó ekki hægt að fá nema í lyf­seð­il­skyldum húð­lyfjum. Retinól er önnur afleiða sem breyt­ist í retinoic-sýru þegar það er tekið upp í húð­inni. Það er algengt inni­halds­efni í snyrti­vörum sem eiga að sporna gegn öldrun húð­ar­innar því það er mjög áhrifa­ríkt andox­un­ar­efni og hvetur húð­ina til þess að end­ur­nýja sig hraðar og fram­leiða meira kollagen. Þannig eykur það þéttni húð­ar­innar og dregur úr hrukkum og öðrum öldr­un­ar­merkjum. Retinól getur líka gagn­ast þeim sem eiga í vand­ræðum með bólur eða óhreina húð því hrað­ari end­ur­nýjun dregur fyrr fram hreina og heil­brigða húð.

Hyaluronic-sýra

Ekki allar sýrur hafa eyð­andi áhrif, en hyaluronic-sýra er til dæmis ein raka­dræg­asta sam­eind nátt­úr­unnar og getur haldið allt að þús­und­faldri þyngd sinni af vatni. Þess vegna er hún nátt­úru­legur raka­gjafi og heldur húð­inni vel nærðri og þéttri. Magn hyaluronic-sýru í húð­inni minnkar með aldr­inum og þannig nær­ing­ar­upp­töku húð­ar­innar. Það er ein af ástæðum þess að við eld­umst, fáum hrukkur, elli­bletti og slappa húð. Vörur sem inni­halda hyaluronic-sýru geta því spornað gegn þess­ari þróun og einnig veitt yngri húð smá­skot af raka þegar hún þarf á því að halda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur