Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Nískan drap ástina

Nískan drap ástina

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Vinkona mín var með sérlega nískum manni í eitt og hálft ár. Hún áttaði sig ekki sjálf á því hvað hann var samansaumaður fyrr en þau fóru saman í sumarfrí til útlanda.

Ég kynnt­ist Benna aldrei mjög vel, jafn­vel þótt ég væri öll af vilja gerð, hann var jú kær­asti einnar af bestu vin­konum mínum. Þau bjuggu aldrei saman en lík­lega hefði sam­bandið ekki staðið jafn­lengi og það gerði ef þau hefðu farið í sam­búð.

Ásta er vön að hugsa um sig sjálf og hefur aldrei fengið neitt upp í hend­urnar í líf­inu. Hún hafði búið ein með syni sínum frá því hann var árs­gam­all, eftir að sam­bandi hennar og barns­föður hennar lauk. Henni tókst þó að mennta sig og var ágæt­lega stödd í líf­inu, í eigin íbúð og góðu starfi þegar þau Benni kynnt­ust. Það hefði þó seint verið hægt að segja að hún hefði það gott fjár­hags­lega þótt hún ætti fyrir reikn­ing­unum um hver mán­aða­mót.

Erfitt að deila með öðrum

Benni var nokkuð frá­brugð­inn þeim ábyrgð­ar­lausu mönnum sem hún hafði stundum hitt. Hann var barn­laus, hafði það mjög gott í líf­inu og var í frá­bæru starfi. Hann virt­ist ein­hvern veg­inn svo pott­þéttur og það kunni Ásta að meta.

Fyrstu kynni okkar Benna voru í mat­ar­boði heima hjá Ástu. Við vorum mörg og öll tókum við með okkur drykkj­ar­föng, rauð­vín, hvítvín eða bjór, sem við komum fyrir á borði í borð­stof­unni. Allir nema Benni. Hann hafði tekið með sér eitt­hvert fínt rauð­vín og til að eng­inn annar fengi sér af því geymdi hann það inni í svefn­her­bergi Ástu. Venjan var þó í boðum að allir gátu fengið sér það sem þeir vildu; við færðum Ástu þetta vín og það var ætlað öllum.

Benni gat alveg verið skemmti­legur, en samt var hann svo­lítið „fer­kant­aður“ í hugsun, skorti víð­sýni, að mínu mati. Ég ákvað með sjálfri mér að dæma hann ekki fyrir að passa svona upp á rauð­vínið sitt en ég hafði lúm­skt gaman af þessu.

Þegar ég hélt mat­ar­boð nokkrum mán­uðum seinna mætti hann með Ástu og tók með sér fínt vín. Hann spurði mig hvort hann mætti ekki geyma það afsíðis svo að hann gæti haft það í friði. Ég hváði og fór að hlæja en sagði það ekk­ert mál, en yfir­leitt væri það þannig að allir mættu með eitt­hvað sem væri ætlað fyrir allan hóp­inn. Það gat Benni greini­lega ekki hugsað sér, sagði að þá gætu hinir komið með ódýrt og vont vín en samt drukkið bara dýra vínið hans. „Við höfum nú ekki lent í því enn,“ sagði ég hissa og bætti við að það væri samt bara allt í lagi.

Ég sýndi honum skáp sem hann kom flösk­unni sinni fyrir í og þangað fór hann og sótti sér vín í glasið um kvöldið. Ásta kom með vín­flösku sem hún setti á borðið hjá hinum flösk­unum. Henni var greini­lega ekki boðið upp á vín kærastans.

Benni pass­aði mjög vel upp á sitt. Það var eins og hann ótt­að­ist að ein­hver hefði gott af honum. Benni hafði víst alist upp við mikið dekur. Hann var lang­yngstur systk­ina sinna og það hefur greini­lega stein­gleymst að kenna honum að deila með öðrum þar sem hann átti bara miklu eldri systk­ini.

Samband Ástu og Benna virt­ist ganga vel. Þau hitt­ust reglu­lega og þegar ég spurði hana einn dag­inn hvort þau ætl­uðu ekk­ert að fara að búa saman sagði hún að það lægi ekk­ert á. Hún væri sátt við þetta fyr­ir­komu­lag og hann líka. Að öðru leyti tal­aði hún ekki mikið um hann og ég spurði ekki.

Uppnám á veitingahúsi

Annað sum­arið þeirra stakk Benni upp á því að þau færu saman í sum­ar­frí til Frakk­lands í hálfan mánuð. Ásta var alls ekki til í það í fyrstu, enda hafði hún nóg með sig, ein­stæð móð­irin og að auki ekki í vel­laun­uðu starfi eins og Benni. Hann lagði fast að henni, sagði að þetta yrði svo gaman, þau myndu skipta öllu jafnt og þannig kæmi þetta vel út fyrir þau.

Hann fór til dæmis í göngu­ferð með hann einn dag­inn og keypti ís handa honum. Svo rukk­aði hann Ástu um ísinn á eftir og hún borg­aði þegj­andi og hljóða­laust en svo­lítið hissa.

Ásta á vin­konu í Frakk­landi og hafði sam­band við hana. Vinkonan bauðst til að hýsa þau aðra vik­una sem varð til þess að Ásta sam­þykkti að fara í ferð­ina og keypti mið­ana fyrir sig og son sinn.

Einn fagran júní­dag lögðu þau af stað til Frakk­lands. Allt gekk ljóm­andi vel, þau skiptu öllu hnífjafnt, nema Ásta borg­aði bæði fyrir sig og barnið sem var nú ekki þungt á fóðrum. Það kom auð­vitað ekki til mála að Benni borg­aði fyrir barn sem hann átti ekk­ert í. Hann var góður við strák­inn en pass­aði upp á sitt. Hann fór til dæmis í göngu­ferð með hann einn dag­inn og keypti ís handa honum. Svo rukk­aði hann Ástu um ísinn á eftir og hún borg­aði þegj­andi og hljóða­laust en svo­lítið hissa.

Eitt kvöldið bauðst vin­kona Ástu til að passa dreng­inn svo að þau gætu farið ein út að borða á veru­lega fínan mat­sölu­stað. Stað­ur­inn olli engum von­brigðum, var ein­stak­lega fal­legur og róm­an­tískur.

Á veit­inga­staðnum fékk Benni mat­seðil með verði á rétt­unum en ekki Ásta. Greini­lega var gert ráð fyrir því að karl­inn borg­aði.

Þau pönt­uðu og nutu þess síðan að tala saman yfir góðum mat og kerta­ljósum.

Í lok mál­tíðar bað Benni um reikn­ing­inn … sund­ur­lið­aðan og skipt í tvennt. Það varð nán­ast upp­nám á veit­inga­staðnum, það var eins og þjón­arnir skildu ekki hvað Benni meinti. Ætlaði mað­ur­inn virki­lega að láta þessa fal­legu kona borga?

Þarna ofbauð Ástu og sagði Benna að hún tæki ekki þátt í svona bulli. Hann skyldi borga fyrir mat­inn. Hann gerði það en þessi leið­inda­upp­á­koma eyði­lagði kvöldið algjör­lega fyrir Ástu. Kvöldið eyði­lagð­ist eðli­lega hjá Benna þegar hann þurfti að borga fyrir þau bæði. Hann reyndi þó ekki að rukka hana eftir á fyrir þessa mál­tíð, þá einu sem hann borg­aði fyrir hana allan þann tíma sem þau voru saman.

Sundurliðaður reikningur

Ásta er ekki lang­rækin, þótt henni hefði mis­boðið fram­koma Benna þetta kvöld var allt gleymt dag­inn eftir. Þau tóku bíl á leigu, sem þau borg­uðu auð­vitað hnífjafnt fyrir, og ferð­uð­ust aðeins um Frakk­land seinni vik­una þeirra og gistu á ódýrum gisti­húsum. Ferðin var hin ágætasta þrátt fyrir upp­á­kom­una á veit­inga­staðnum.

Ég hitti Ástu skömmu eftir að hún kom heim og hún var í sjö­unda himni eftir ferð­ina, sól­brún og sæl. Hún sagði mér hlæj­andi frá atvik­inu á veit­inga­staðnum og ég gat ekki stillt mig um að segja að mér fynd­ist Benni ansi hreint nískur. „Já, hann á þetta alveg til,“ sam­þykkti hún og sýndi mér sund­ur­lið­aðan reikn­ing frá honum þar sem fram kom að hún skuld­aði honum 20 evrur eftir ferð­ina. Ástu fannst þetta nokkuð fyndið og var búin að borga honum en þarna virt­ist hún þó vera farin að átta sig betur á því hversu ótrú­lega nískur Benni var. Ég spurði hana hvort ekki hefði verið ráð að senda honum til baka reikn­ing fyrir gist­ing­una sem hún útveg­aði þeim frítt, hvort Benni væri ekki í raun í stórri skuld við hana. Ásta hló bara og sagði að þau  hefðu nú skipst á að kaupa í mat­inn hjá vin­konu hennar og lík­lega hefði hann litið á það sem hæfi­lega borgun fyrir gist­ing­una.

Örfáum vikum seinna voru þau hætt saman. Ásta sagði mér að níska hans hefði eflaust átt þá í því að gera út af við ást­ina. Hann væri góður maður á margan hátt en hana lang­aði ekki að verja ævinni með svona manni. Frekar vildi hún berj­ast í fátækt með berkla­veiku ljóð­skáldi sem gæfi af sér, bætti hún við og hló.

Þó fyrr hefði verið, hugs­aði ég. Níska er eitt­hvað það mesta „turn off“ sem ég veit. Mér finnst ekk­ert sjálf­sagt að karlar borgi allt og ég reyndi lengi vel að fá að borga helm­ing­inn þegar við Gunni, mað­ur­inn minn, vorum í til­huga­líf­inu og fórum út að borða. Það kom aldrei til greina af hans hálfu, og svo bara hætti ég að nenna að berj­ast við hann. Hann var svo miklu efn­aðri en ég, ein­stæð tveggja barna móð­irin, og sagði alltaf að það væri hann sem hefði boðið mér út að borða og því hans að borga. Hann er samt engin karl­remba, síður en svo og fannst að jafn­rétt­is­bar­áttan ætti ekki að fara fram þarna, væri ekki nær að laga fyrst launa­mis­rétti kynj­anna? Jamm, ekk­ert skrítið þótt ég elski þennan mann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur