Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Spennandi áfangastaðir fyrir brúðhjón

Eitt af því sem margir eiga í vand­ræðum með að taka ákvörðun um er hvert skuli halda í brúð­kaups­ferð­ina. Skal engan undra, enda gríð­ar­legt úrval spenn­andi áfanga­staða í boði. Hér eru nokkrir.

Spennandi áfangastaðir fyrir brúðhjón
|Alda Rose Cartwright

Svalasta borgin

Canberra í Ástralíu hefur upp á síðkastið fengið við­ur­nefnið svalasta höf­uð­borg í heimi. Og það ekki vegna hita­stigs, en með­al­hit­inn yfir árið er um 15 gráður. Í Canberra má finna menn­ing­ar­lega fjár­sjóði á hverju horni en á sama tíma standa þeir fram­ar­lega í öllum nýj­ungum, svo sem í mat­ar­gerð og list. „Hip­sterar“ sam­tím­ans flykkj­ast til Canberra og ein­stakt and­rúms­loft og gleði ein­kenna stemn­ing­una þar.

Detroit snýr vörn í sókn

Detroit hefur ekki fengið verð­skuld­aða athygli und­an­farin ár eða verið ákjós­an­legur áfanga­staður ferða­manna. En upp á síðkastið hafa ungir lista­menn umbreytt ásýnd borg­ar­innar með því að breyta yfir­gefnum bygg­ingum í lista­söfn, hótel, hjóla­bretta­garða og ýmis konar starf­semi. Listrænn andi og nýstár­leg­heit liggja í loft­inu og ættu allir sem vilja fyll­ast inn­blæstri að gera sér ferð til Detroit.

Eitthvað alveg nýtt

Fyrir þá sem eru til­búnir að prófa eitt­hvað alveg nýtt er Kaohsi­ung í Taívan þess virði að skoða. Gríðarhá búdda­líkneski og önnur lista­verk má finna út um alla borg. Ekkert hefur verið til sparað við gerð bygg­inga og lest­ar­stöð borg­ar­innar hefur til að mynda verið kosin sú fal­leg­asta í heimi. Næt­ur­mark­aðir njóta mik­illa vin­sælda en íbúar Kaohsi­ung virð­ast telja næt­urnar besta tíma sól­ar­hrings­ins til að kaupa sér ferska mat­vöru. Á dag­inn ætti engum að leið­ast í Kaohsi­ung en dýra­garða, þema­garða og tívolí má finna á hverju horni.

Nágrannaríkið

Óperu­húsið í Osló.

Fyrir þá sem vilja halda sig við Norð­ur­löndin, er Ósló í Noregi spenn­andi val­kostur. Í ár fagna kon­ungs­hjónin 50 ára brúð­kaups­af­mæli og mikið um dýrðir af því til­efni. Eitt helsta kenni­leiti borg­ar­innar, Óperu­húsið, er að auki tíu ára um þessar mundir og hafa fjölda­margir við­burðir verið skipu­lagðir í tengslum við það. Árið 2018 er því ein­stak­lega gott til að láta verða af því að heim­sækja Ósló.

Náttúruperla

Ein elsta lif­andi höf­uð­borg heims, Matera, höf­uð­borg Basilicata-hér­aðs­ins á Suður-Ítalíu, er byggð í fjalls­hlíð með yfir­nátt­úru­legum gljúfrum allt í kring. Stór­kost­legar bygg­ingar, hellar og völ­und­ar­hús ein­kenna svæðið, en Matera hefur verið í mik­illi sókn und­an­farið og hafa nýtísku­leg hótel, veit­inga­staðir og barir sprottið upp und­an­farin ár. Við hvetjum alla til að heim­sækja þessa ein­stöku borg því gera má ráð fyrir að þetta verði einn heit­asti ferða­manna­stað­ur­inn á kom­andi árum – og því um að gera að vera á undan straumnum!

Eitthvað fyrir alla – Sevilla  

Hin ein­stak­lega fagra höf­uð­borg Andalúsíu, Sevilla á Spáni. Róm­an­tísk og fal­leg borg með merki­lega sögu. Þar skín sól í allt að 300 daga á ári og að þessu sinni er þetta sú borg sem vermir topp­sætið á lista Lonely Planet árið 2018. Hér ættu allir að finna eitt­hvað við sitt hæfi. Menning, þröngar götur, versl­anir, tapas, sól­ríkar strendur og vina­legt fólk er það sem ein­kennir þessa dásam­legu borg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur