Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rósgyllt og glitrandi veisluborð og gómsætar veitingar

Að mörgu ber að hyggja þegar halda skal veislu enda mögu­leik­arnir ótæm­andi. Vikan fékk að vera fluga á vegg í einni slíkri sem haldin var á dög­unum til heið­urs níu ára afmæl­is­stelpu.

Rósgyllt og glitrandi veisluborð og gómsætar veitingar

Þrátt fyrir að flestir boðs­gestir hafi verið á aldr­inum 7-11 ára, hent­uðu bæði veit­ingar og skreyt­ing­arnar vel fyrir allan aldur, einkum og sér í lagi fyrir þá sem farnir eru að huga að ferm­ing­ar­deg­inum. Vin­sældir hins rós­gyllta virð­ast síður en svo fara dvín­andi og því er óhætt að mæla með litnum á hvaða veislu­borð sem er. Í okkar til­felli sam­ein­uðum við rós­gyllt með ferskju­lit og hvítum sem kom ótrú­lega vel út saman. Lita­pal­lettan virð­ist bæði tíma- og ald­urs­laus og ætti því að henta í veislur fyrir alla ald­urs­flokka.

Vin­sældir hins rós­gyllta virð­ast síður en svo fara dvín­andi og því er óhætt að mæla með litnum á hvaða veislu­borð sem er.

Skreyt­ing­arnar fengum við hjá Part­í­búð­inni sem er lítil en nota­leg verslun sem rekin er í Garðabæ en vert er að hafa í huga að blöðrupant­anir þurfa að fara fram í gegnum Netið þó hægt sé að nálg­ast aðrar vörur sam­dæg­urs á staðnum. Við mælum óhikað með Part­í­búð­inni þar sem hægt er að reikna með per­sónu­legri þjón­ustu og fag­mann­legum vinnu­brögðum en líf­tími blaðr­anna frá þeim var óvenju langur, eða þar til löngu eftir að veislu­höldum lauk.

Sætar syndir sáu okkur fyrir fag­ur­skreyttum veit­ingum í réttu þema­lit­unum og kleinu­hringjastand­ur­inn þeirra sló ræki­lega í gegn en hann er nýr á mark­aðnum og hentar einkar vel í hvers kyns veislur. Við mælum ein­dregið með veislu­bökk­unum frá þeim þar sem hægt er að gæða sér á makkar­ónum, muffins og góm­sætum konfekt­molum í full­komnum smakk­stærðum fyrir alla ald­urs­hópa.

Afmæl­is­barnið óskaði eftir ein­faldri mar­en­stertu og auð­vitað var okkur ljúft og skylt að verða við þeirri ósk og ekk­ert afmæli er haldið án þess að með læð­ist eins og ein sígild súkkulaði­kaka. Að þessu sinni skreyttum við hana með kara­mellu­bráð og hvítu súkkulaði en kremið var gert úr sama súkkulaði. Fyrir full­orðna gesti buðum við svo upp á rif­inn svína­hnakka, bor­inn fram í brauð­bollum með spæsí majónesi og hrásal­ati sem óhætt er að segja að hafi slegið í gegn en upp­skrift­irnar er að finna hér fyrir neðan.

Súkkulaðikaka með saltkaramellu og hvítsúkkulaði

Þessi upp­skrift kemur frá hinni ynd­is­legu Evu Laufeyju en eftir að hafa prófað hana einu sinni var ekki aftur snúið og því ratar þessi alltaf á afmæl­is­borðið og slær und­an­tekn­inga­laust í gegn.

Súkkulaði­kaka með salt­kara­mellu og hvítsúkkulaði.

150 g sykur
150 g púð­ur­sykur
130 g smjör
2 egg
260 g hveiti
1 tsk. mat­ar­sódi
1,5 tsk. lyfti­duft
salt á hnífsoddi
50 g kakó
2 dl mjólk

Þeytið sykur og smjör þar til blandan verður létt og ljós. Bætið eggjum saman við, einu í einu. Blandið þurr­efnum út í deigið ásamt mjólk­inni. Skiptið deig­inu niður í tvö smurð hring­laga form og bakið við 180°C í 20-25 mín­útur.

Saltkaramella

Þessa kara­mellu geri ég nán­ast viku­lega og nota sömu upp­skrift hvort sem um er að ræða fyrir brún­aðar kart­öflur eða hvers kyns eft­ir­rétti. Það er algjör óþarfi að hræð­ast bráð­ina og ég get full­yrt að með þokka­legu magni af sjálfs­trausti getur hún ekki klikkað.

200 g sykur
4 msk. smjör
1 dl rjómi
1/4 tsk. sjáv­ar­salt

Dreifið úr sykrinum á litla pönnu og látið bráðna, bætið svo smjör­inu saman við og hrærið á meðan. Hellið því næst rjóm­anum við, hrærið og slökkvið á hit­anum. Bætið sjáv­ar­salt­inu svo við í lokin.

Hvítsúkkulaðikrem

Lyk­ill­inn að krem­inu er að þeyta það nógu lengi. Ef smjörið er tekið beint úr ískápnum er snjallt að mýkja það upp með því að blása á það með hár­blás­ara.

250 g smjör, við stofu­hita
400 g flór­sykur
150 g hvítt súkkulaði
1 tsk. vanillu­dropar
1 msk. rjómi

Hrærið smjörið saman og bætið flór­sykrinum við í nokkrum skömmtum. Bræðið á meðan hvítt súkkulaði yfir vatns­baði og látið kólna lít­il­lega áður en því er bætt saman við blönd­una. Bætið vanillu­dropum og rjóma við í lokin.

Pavloa með breyttu sniði

Lyk­ill­inn að hinni full­komnu pavlovu felst, að mínu mati, í því að þurrka skál­ina með eld­hús­pappír sem búið er að spreyja ediks­blöndu í áður en byrjað er. Mér finnst líka gott að hita ofn­inn á ögn hærra hita­stig fyrstu mín­út­urnar til að ná gylltum gljáa á mar­ens­inn en lækka svo niður í 130°C og halda því hita­stigi út bök­un­ar­tím­ann eða í 1 ½ klukku­tíma.

Pavloa með breyttu sniði.

6 eggja­hvítur
4 dl sykur
ögn af salti

Ég skipti upp­skrift­inni í tvennt, stíf­þeytti 3 eggja­hvítur saman ásamt 2 dl af sykri og ögn af salti. Dreifði svo blönd­unni á bök­un­ar­pappír svo úr varð tölu­staf­ur­inn 9. Síðan end­ur­tók ég leik­inn og setti svo báðar plöt­urnar inn í ofn. Eftir að bök­un­ar­tím­inn var lið­inn leyfði ég mar­ensnum að kólna í ofn­inum yfir nótt.

Morg­un­inn eftir þeytti ég svo rjómann en í þessa upp­skrift þurfti einn stóran rjóma­pela og annan lít­inn. Rjómanum spraut­aði ég svo á kök­una, bæði á milli og ofan á og leyfði svo afmæl­is­barn­inu að skreyta með frjálsri aðferð.

Rifinn svínahnakki í BBQ-sósu „Pulled Pork“

2,5 kg úrbein­aður svína­hnakki, settur í krydd­blöndu

Kryddblandan

1/2 msk. papriku­krydd
1/2 msk. „smoked paprika“
1/2 msk. cummin
1/2 msk. mesquite-krydd
1/2 msk. sinn­ep­skrydd
1/2 tsk. cayenne-pipar
1 msk. sjáv­ar­salt
2 msk. púð­ur­sykur
6-8 hvít­lauks­geirar, press­aðir

Rifinn svína­hnakki í BBQ-sósu „Pulled Pork“.

Blandið kryddum saman og myljið í morteli. Skolið kjötið, þerrið og setjið á bretti þar sem það er stungið með kjöt­gaffli djúpt allan hring­inn. Setjið kjötið að því loknu í vakúm­poka ásamt krydd­blönd­unni sem er dreift vel yfir kjötið og þrýst inn í það þannig að það sé vel þakið. Loft­tæmið síðan pok­ann og setjið inn í ísskáp þar sem hann fær að vera yfir nótt.

Fyllið fat af vatni og hitið með sous vide-tæki upp að 72°C. Látið kjötið vera þar á því hita­stigi í rúm­lega sól­ar­hring.

BBQ-sósa

3 dl tómatsósa
2 dl púð­ur­sykur
1 dl hlynsíróp
2 msk. epla­edik
2 msk. Worcestershire-sósa
2 msk. sojasósa
1 msk. dijon-sinnep
1 tsk. laukkrydd
1 tsk. hvít­laukskrydd
1 tsk. cayenne-pipar

Blandið hrá­efnum í pott, hitið að suðu, lækkið hit­ann og látið malla í nokkrar mín­útur. Þegar kjötið er búið að vera í ofn­inum í rúm­lega sól­ar­hring er það tekið úr vatns­bað­inu og pok­anum og sett í eld­fast mót þar sem það er rifið með tveimur göfflum. Smakkið síðan kjötið til með reyktu sjáv­ar­salti áður en BBQ-sós­unni er hrært saman við kjötið. Berið kjötið fram í mjúkum brauð­bollum (dinner rolls) með „spicy majó“ og „amer­ísku“ hrásal­ati (cole slaw).

Myndir / Hallur Karlsson

Tryggðu þér áskrift að vef­út­gáfu Vikunnar hérna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Var á reist árið 1979
Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una