Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Þjófóttur mávur, ævintýragjarnar endur og strokukindur meðal útkalla lögreglunnar á Suðurnesjum

Þjóf­óttur mávur, strokukindur og ævin­týra­þyrstar endur eru dæmi um útköll sem lög­reglan á Suð­ur­nesjum hefur mátt sinna í sumar. „Ég fór bara að pæla hvort að örkin hans Nóa væri á leið­inni,” segir Sigvaldi Arnar Lárusson aðal­varð­stjóri en hann var á vakt í fyrra­dag þegar lýst var eftir bæði öndum og kindum á flótta.

Þjófóttur mávur, ævintýragjarnar endur og strokukindur meðal útkalla lögreglunnar á Suðurnesjum
Myndir frá Facebook Lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum

Vissu­lega er það ekki dag­legt brauð að lög­regla hafi afskipti af dýrum sem valda usla, lenda í vanda eða sækja á vit ævin­týr­anna. Það kemur þó reglu­elga fyrir. Tvisvar hefur ugla komið við sögu á vakt lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum. Í nóv­em­ber 2015 rakst fólk, sem var að viðra hundana sína, á uglu sem var föst í girð­ingu. Uglan var mikið særð á væng og fór Sigvaldi með hana til dýra­læknis í Reykja­vík. „Svo var önnur sem náði að fljúga ofan í rör og föst ofan í röri. Við náðum að bjarga henni líka.”

Kettlingar fundust í ruslaskýli

„Svo var köttur sem fæddi kett­linga í garð­inum heima hjá mér,” segir Sigvaldi. Hann var að koma af dag­vakt þegar hann fann þrjá kett­linga í rusla­skýli. Engin læða var sjá­an­leg. Hann tók málið í sínar hendur og aug­lýsti eftir læðu sem gæti tekið þá í fóstur. Til­kynn­ing bar árangur og komust kett­ling­arnir á fóst­ur­heim­ili stuttu síðar. Sigvaldi segir svona útköll skemmti­leg. „Það er alltaf gaman að eiga við dýrin.“

Sjá einnig: Ær, lamb og tvær endur eft­ir­lýst á Suð­ur­nesjum

Innbrotsþjófar reyndust vera hestar

„Við vissum ekki hvað við vorum að fara út í, vorum búnir að draga upp kilfur,“ segir Sigvaldi þegar hann rifjar upp skemmti­legt atvik með hestum sem voru geymdir rétt fyrir utan Keflavík. „Það var fólk sem vakn­aði við ein­hvern umgang í garð­inum,” segir hann og bætir við að heim­il­is­fólkið hafi talið að um þjófa væri að ræða. „Þau þorðu ekki að kíkja út.” Hann mætti ásamt fylgd­ar­liði á svæðið, við­bú­inn átökum. „Svo voru þetta bara tvö hross.” Hann seg­ist varla hafa getað hætt að hlæja. „Þeir komu bara rölt­andi, gerðu sér bæj­ar­ferð.”

Glæpamávurinn gengur enn laus

Sunnu­dag­inn 5. maí síð­ast lið­inn veittu Lög­reglu­menn í almennu eft­ir­liti máv athygli . „Í fyrstu fannst þeim eins og að máv­ur­inn væri með dýr í gogg­inum en þegar betur var að gáð sáu þeir að um veski var að ræða,“ segir í Facebook færslu lög­regl­unnar. Þá tókst þeim að end­ur­heimta veskið og komu því í réttar hendur. „Við höfum ekki fundið hann ennþá,“ segir Sigvaldi að lokum.

Í kjöl­far atviks­ins setti Mannlíf sig í sam­band við Gunnar Þór Hall­gríms­son, fugla­fræð­ing og dós­ent við Líf- og umhverf­is­vís­inda­deild Háskóla Íslands. Hann sagði að þrátt fyrir að máv­ur­inn væri nú eft­ir­lýstur af lög­reglu fyrir þjófnað ættu íbúar svæð­is­ins ekki að þurfa að ótt­ast hol­skeflu máva­þjófa.

„Það er sagt um hrafna að þeir geti verið þjófóttir og tekið alls­konar hluti sem glitra og eru áhuga­verðir. Mávarnir eru fyrst og fremst að taka það sem er æti­legt,“ sagði Gunnar, aðspurður hvort algengt sé að mávar stundi vasa­þjófnað.

„Það fer nú kannski ekki það orð af mávum að þeir séu þjófóttir eins og til dæmis hrafnar. Þeir eru fyrst og fremst að ná sér í eitt­hvað að éta. Þeir geta fyrir mis­skiln­ing tekið eitt­hvað sem þeir telja að sé æti­legt en er það ekki. Um leið og þeir upp­götva það þá missa þeir áhug­ann. Ég veit ekki til þess að mávar séu

Steikur hverfa af grillum

Gunnar segir nokkur dæmi þess að mávar steli mat af grillum hjá fólki. „Þetta eru fyrst og fremst hettu­mávar og síla­mávar sem ganga svona hart fram. Þetta eru þeir mávar sem lifa í hvað mestu nábýli við mann­inn. Aðrar máva­teg­undr þær yfir­leitt treysta sér ekki mjög nærri mann­fólk­inu. Síla­máv­ur­inn hefur verið skrifað svo­lítið um og þá að menn hafa lent í að missa steikur af grill­inu. Það er baga­legt. Þeir hafa verið að kippa af grillum hjá fólki. Ég held að fæst af því sem er tekið sé gríð­ar­lega verð­mætt. Nema þá að þeir hafi tekið rosa­lega dýra steik ein­hvern tím­ann,“ segir Gunnar.

„Hataðist fugl landsins“ má varla við verri ímynd

Gunnar rann­sak­aði mávinn í nokkur ár og skrif­aði dokt­ors­verk­efni um fugl­inn. Hann segir lík­lega sé engin teg­und jafn hötuð á Íslandi. „Ég tók mitt dokt­ors­próf í síla­má­vinum. Ég eyddi gríð­ar­legum tíma í að rann­saka þá. Mörgum árum. Ég fann nú bara mjög fljótt fyrir því að hann átti bara enga banda­menn. Hrafninn er fugl sem menn hafa ýmsar skoð­anir á. Það var samt alveg greini­legt að menn voru alltaf eitt­hvað til í að tala vel um hrafn­inn. Það var til fólk sem var hans banda­menn. Svo eru til þjóð­sögur og eitt­hvað svona. Síla­máv­ur­inn átti bara engan banda­mann. Ég hefði getað full­yrt á þeim tíma sem ég var að byrja 2004 þá hafi þetta verið hatað­asti fugl lands­ins.“ Gunnar bendir á að fyrir nokkrum árum hafi síla­máv fjölgað mjög í Reykja­vík vegna fæðu­skorts. Þá hafi verið gengið hart fram í aðgerðum gegn honum. Meðal ann­ars hafi verið eitrað fyrir honum og hann skot­inn á tjörn­inni. Um það leiti hafi ein­hverjum blöskrað og fugl­inn eign­ast banda­menn sem þótti of langt gengið.

það sem við köllum á manna­máli stríðnir. Þeir eru ekki að grípa hluti og færa þá til eins og maður hefur séð með til dæmis krumma.“

Vorboðinn hrjúfi

Gunnar telur fugl­inn afar merki­legan. „Þetta er alveg stór­merki­legur fugl. Hann dvelur aðal­lega við spánar, Portúgal og Norð-Austur Afríku. Þetta er lang­flugs far­fugl. Hann er eini máv­ur­inn okkar sem flýgur svona langa vega­lengdir milli varp og vetr­ar­stöðva. Hann er fyrsti far­fugl­inn til að koma til lands­ins á vorin. Hann raun­veru­lega er hinn eig­in­legi vor­boði. Hann kemur venju­lega í lok febr­úar. Meðal fugla­á­huga­manna heitir hann vor­boð­inn hrjúfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina