Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Safna ryki og sýna í Bankastræti

Lista­menn­irnir Kristinn Arnar Sig­urðs­son og Högna Jóns­dóttir standa fyrir væg­ast sagt óvenju­legri sýn­ingu í Núllinu gall­eríi, Banka­stræti 0, en þar munu þau sýna por­trett­myndir sem eru unnar úr ryki frá heim­ilum fólks.

Safna ryki og sýna í Bankastræti
|Lista­menn­irnir Kristinn Arnar Sig­urðs­son og Högna Jóns­dóttir standa fyrir væg­ast sagt óvenju­legri sýn­ingu í Núllinu gall­eríi

„Við köllum þetta abstrakt por­trett myndir af því að ryk er að hluta til leifar af fólki, húð­flögur og hár, þræðir úr fötum og þess háttar. Þess vegna má segja að þetta séu myndir af því,“ lýsir Kristinn og bætir við að hug­myndin á bak­við sýn­ing­una sé að skoða mann­eskj­una í gegnum ryk. Skoða hvað ryk fólks eigi sam­eig­in­legt og hvað geri ryk þess ein­stakt.

Hann segir að mynd­irnar séu unnar úr ryki frá heim­ilum fólks úr ólíkum áttum, allt frá iðn­að­ar­mönnum upp í stöðu­mæla­verði. Upp­haf­lega hafi þau Högna ætlað að safna ryk­inu saman með því að fara inn á heim­ili fólks og ryk­suga en fólki hafi nú fund­ist það aðeins of mikið af því góða. „Lend­ingin var því sú að það ryksug­aði bara sjálft og við fengjum svo að sækja pok­ana. Ótrúlega margir eru reyndar með svona hreinsiró­bóta heima hjá sér í stað­inn fyrir ryksugur og það hefur orðið til þess að við mætum bara heim til fólks með poka eða dósir og það fyllir á sjálft,“ segir Kristinn og við­ur­kennir fús­lega að ferlið í kringum þetta sé búið að vera svo­lítið spaugi­legt. „Já já, segir það sig sjálft að það hefur verið svo­lítið kómískt að standa í þessu.“

„Sumum finnst þetta auð­vitað svo­lítið óvana­legt og skrítið og skilur ekki alveg hvernig þetta komi til með að líta út. En hingað til hefur eng­inn sagt nei.“

En finnst fólki bara ekk­ert mál að taka þátt í þessu? „Nei alls ekki. Sumum finnst þetta auð­vitað svo­lítið óvana­legt og skrítið og skilur ekki alveg hvernig þetta komi til með að líta út. En hingað til hefur eng­inn sagt nei við þessu. Allir hafa tekið vel í þetta og sam­þykkt að vera með. Enda ekki eins og fólk sé að láta ein­hver verð­mæti af hendi. Ryk er frekar eitt­hvað sem flestir vilja feg­ins hendi losna við.“

Vinna verkin fram á síðustu stundu

Lista­menn­irnir Kristinn Arnar Sig­urðs­son og Högna Jóns­dóttir verða með óvenju­lega sýn­ingu í Núllinu gall­eríi, Banka­stræti 0.

Að safna ryki er fyrsta sýn­ing sem Kristinn og Högna halda saman, en þau eru bæði mynd­list­ar­menn og hafa í gegnum tíð­ina feng­ist við ýmis konar list. Þannig hefur Högna til að mynda hannað og fram­leitt skart­gripi ásamt því að hafa tekið þátt í sam­sýn­ingum hér heima og erlendis á meðan Kristinn hefur tekið þátt í sýn­ingum og tón­list­ar­út­gáfu og unnið við bæði leik­stjórn og leik­mynda­hönnun. Þrátt fyrir að hafa að mörgu leyti fetað ólíkar leiðir í list­sköpun sinni eiga þau sam­eig­in­legt að hafa unnið með hluti sem eru þegar til og sett þá í nýtt sam­hengi. Því má segja að sýn­ingin Að safna ryki, sé rök­rétt fram­hald af því sem þau hafa verið að gera hingað til.

Sýningin verður opnuð í Núllinu gall­eríi í köld og reiknar Kristinn með að þau Högna verði að vinna verkin fram að því. Hann játar að það sé svo­lítið stressandi að vera að vinna að sýn­ing­unni svona alveg fram á síð­ustu stundu en hefur þó ekki ýkja miklar áhyggjur af því að það náist þar sem vinnsla verk­anna sé til­tölu­lega ein­föld. „Um leið og rykið er afhent „steypum“ við það inn í glært sílíkon, sem er ekki flókið tækni­lega séð. Auk þess erum við Högna bæði vön því að vinna með mót og móta­gerð sem auð­veldar verkið. Það hefur eig­in­lega meiri vinna farið í allt stússið í kringum sýn­ing­una en sjálf verkin, að vekja athygli á henni og svona,“ segir hann og brosir.

En hvað stendur sýn­ingin yfir lengi? „Hún verðuð opnuð núna á sunnu­dags­kvöld, verður opin 17. júní og alveg til 20. júní. Það er því bara um að gera að mæta í Banka­strætið. Allir vel­komnir, það verður heitt á könn­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag