Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Prófkjör demókrata er farið á fullt – hver er líklegastur?

Prófkjör demókrata er farið á fullt. Hvernig virkar kerfið, hver eru málin og hver er lík­leg­astur?

Prófkjör demókrata er farið á fullt – hver er líklegastur?
|

Augu margra Banda­ríkja­manna eru nú á próf­kjöri demókrata þar sem línur eru að skýr­ast sam­kvæmt könn­unum. En er þó of snemmt að segja hvaða fram­bjóð­andi er lík­legur til að verða fyrir val­inu. Kosn­ing­arnar gætu ráð­ist á því hverjir demókratar telji lík­leg­astan til að fella Donald Trump fremur en á grunni póli­tískra lof­orða. Sögulega séð er erfitt að fella sitj­andi for­seta, einkum ef horft er til síð­ustu ára­tuga, en for­seta­tíð Trump verður seint talin hefð­bundin né hann sem stjórn­mála­maður.

Margir eru í fram­boði hjá demókrötum, alls 24. Auðvelt er að draga þá ályktun að fjöld­inn veiki fram­boðið. Atkvæðin dreifast víða og erf­ið­ara er að mark­aðs­setja og kynna vel marga fram­bjóð­endur. Á móti kemur að sterkt og fjöl­mennt próf­kjör breikkar þátt­tak­enda­hóp­inn sem gæti komið til góðs þegar bar­áttan um for­seta­emb­ættið hefst fyrir alvöru á næsta ári. Nú er að koma í ljós hverjir eiga séns.

Hópurinn er nokkuð fjöl­breyttur en má í  grófum dráttum skipta í tvo flokka. Þá fram­bjóð­endur sem eru miðju­sinn­aðir og meira hefð­bundnir og kerf­is­lægir og þá sem eru úr vinstri og/eða breyt­inga­sinn­aðri ranni flokks­ins.  Joseph R. Biden, fyrrum vara­for­seti Obama, flokk­ast í fyrri flokk­inn og leiðir enn sem komið er ef marka má nýlegar kann­anir. Biden leiðir með 32% fylgi sam­kvæmt nýrri könnun CNN sem er 5% fall frá síð­asta mán­uði. Bernie Sanders mælist með um 18% en engir aðrir fram­bjóð­endur ná tveggja stafa tölu. Kannanir sem eru gerðar í hverju fylki t.d. frá Iowa og California – sýna jafn­framt að Biden leiði en að Bernie Sanders, Elisa­beth Warren og Pete Buttigeg fylgi fast á eftir með 15-18% fylgi.  Aðrir þátt­tak­endur sem mæl­ast mjög lágir eru lík­legir til að melda sig út á næstu mán­uðum, en ennþá er þetta galopið.

Biden leiðir með 32% fylgi sam­kvæmt nýrri könnun CNN

Enn sem komið er er próf­kjörið kurt­eist. Fram­bjóð­endur eru ekki farnir að níða skó­inn af hvor öðrum sem kann að aukast eftir því sem nær dregur og harkan um sætið verður meiri. Það gefur þó auga­leið að það er mik­il­vægt fyrir demókra­ta­flokk­inn að vera sam­heldin til að fella Trump. Iðulega er það nefnt sem helsti galli flokks­ins þessa dag­ana að hann er býsna klof­inn, sem er óheppi­legt ef litið er á stóra mark­miðið: að fella Trump. Sögulega er það ekk­ert nýtt, almennt er það einn helsti löstur póli­tískra hópa sem skipa sér vinstra megin við miðju að standa ekki saman og skipta sér um of í hólf sem veikir þann hóp sem er raunar alla­jafna stærri heilt yfir en fólk sem er íhaldsamt og kýs til hægri.

Hvernig virkar kerfið?

Fyrstu rök­ræður fram­bjóð­enda verða í lok júní. Línur munu skýr­ast enn betur í kjöl­farið en demókra­ta­flokk­ur­inn hefur sett upp 12 rök­ræður á þessu ári og í byrjun árs 2020. Kerfið virkar þannig að sér­stakir umboðs­menn (e. del­egates) kjósa um fram­bjóð­endur í hverju fylki fyrir sig í febr­úar og mars næsta ári. Mik­il­vægt er að tryggja sér sigur eða góð úrslit í fylkj­unum þar sem kosið er fyrst sem almennt setur tón­inn fyrir fram­haldið. Alls eru 4051 umboðs­menn í öllu land­inu, fjöld­inn ræðst af þeim sem hafa aðgang að lands­fundi demókrata. Til að vinna þarf fram­bjóð­andi að tryggja sér meiri­hluta­at­kvæða umboðs­manna eða 2026 atkvæði frá 4051 umboðs­mönnum sem hafa rétt til setu á lands­fundi demókrata.

Hver eru helstu málefnin?

Val á fram­bjóð­anda mun snú­ast að mestu um hver geti steypt Trump af stóli en mál­efnin munu hafa ein­hverja þýð­ingu. Per­sónu­legur sjarmi og hæfi­leik­inn til að hrífa fólk með sér munu vega þungt. Þegar litið er heilt yfir stefnu­mál fram­bjóð­enda eru þau í grunn­inn áherslur skand­in­av­ískra jafn­að­ar­manna – heil­brigð­is­þjón­usta og menntun svo gott sem ókeypis, kven­rétt­indi og frek­ari skatta á hina ríku svo eitt­hvað sé nefnt. Flestir leggja áherslu á aðgerðir í lofts­lags­málum.

Biden og Warren gáfu t.d. í síð­ustu viku út metn­að­ar­fullar og ítar­legar til­lögur í lofts­lags­málum sem eru um margt keim­líkar. Warren sigrar raunar þegar kemur að stefnu­málum, sem ganga flest út á að eyða ójöfn­uði, m.a. að tækla náms­lána­kerfið og fella niður náms­lán. Sanders ætlar enn fram á hug­myndum um heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir alla (e. medicare for all), ókeypis háskóla og um 15 doll­ara lág­marks­laun. Kamala Harris talar um jafn­launa­vottun og Pete Buttigeg er nokkuð fram­sýnn og talar um kerf­is­breyt­ingar sem og styður heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir alla.

Hver eru líklegastur til að vinna?

Það er of snemmt til að segja til um hvaða fram­bjóð­andi muni vinna. Hins vegar er orðið ljóst að aðeins 5-6 fram­bjóð­endur eiga raun­veru­lega mögu­leika. Biden, Sanders, Warren, Buttigeg sem áður eru nefnd og þá gætu Kamala Harris, Beto O’Rourke og Amy Klobucher jafn­framt verið enn inni í mynd­inni. Enginn fram­bjóð­endum er áber­andi lang­sterkastur og því er lík­legt að rök­ræður flokks­ins muni setja tón­inn fyrir það sem koma skal. Per­sónusjarmi mun, líkt og áður kom fram skipta máli. Kosn­inga­bar­áttur snú­ast tals­vert um stemm­ingu og tíma­setn­ingu. T.d. gæti Biden verið að toppa of snemma sem öruggur og þekktur fram­bjóð­andi, vel lið­inn innan demókra­ta­flokks­ins, á meðan öðrum fram­bjóð­endum gæti tek­ist að skapa stemmn­ingu í kringum sig seinna í keppn­inni.

Að vinna Trump er ekki aðeins mik­il­vægt fyrir hags­muni banda­rísku þjóð­ar­innar heldur skiptir sköpum fyrir heim­inn. Ef hann tapar kosn­ing­unni er það tákn­rænt fyrir heim­inn – markar ákveðin þátta­skil á popúl­ísku hægri­sveifl­unni með til­heyr­andi ótta­stjórn­málum og for­dómum. Brexit ver­andi ákveð­inn und­an­fari í þeim efnum.

Nái demókrötum að finna fram­bjóð­anda sem er nægi­lega sterkur til að mæta Trump á svell­inu ættu þeir að vinna miðað við óvin­sældir for­set­ans núna. Hins vegar er Trump mjög óút­reikn­an­legur og mun gera allt til að vinna. T.d. gæti hann kastað út póli­tískri líf­línu eða staðið fyrir aðgerðum sem leiða almennt til vin­sælda í Banda­ríkj­unum. Í öllu falli er næsti vetur póli­tískt afar mik­il­vægur og mun setja tón­inn hvernig saga mann­kyns spilar sig út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag