Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Alvarlegt ef þolendur kynferðisofbeldis fá ekki aðstoð

Móður ungs barns, sem sætti kyn­ferð­is­of­beldi af hálfu tveggja jafn­aldra sinna og sam­nem­enda í skóli, sagði í sam­tali við Mannlíf að fjöl­skyldan hafi ítrekað lent á veggjum í kerf­inu eftir að upp komst um ofbeldið. Sigríður Björns­dóttir, sál­fræð­ingur og fram­kvæmda­stjóri for­varn­ar­verk­efn­isin Blátt áfram segir sögu móð­ur­innar ekki koma á óvart þar sem hún sé því miður ekki eins­dæmi.

Alvarlegt ef þolendur kynferðisofbeldis fá ekki aðstoð
Ofbeldi. Myndin teng­ist ekki efni grein­ar­innar með beinum hætti.
Sigríður Björnssdóttir segir sögu móð­ur­innar dæmi um það þegar fjöl­skyldur fá ekki þann stuðn­ing sem þær telja sig þurfa. „Eitt af úrræðum Blátt áfram eru stuðn­ings­fundir fyrir for­eldra og aðstand­endur barna sem hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi. Það var sett á lagg­irnar þar sem vöntun var á slíkri þjón­ustu.“

„Dæmi um svona aðstæður eins og móð­irin lýsir í þessu við­tali eru að koma inn á borð hjá okkur, og þegar það ger­ist þá vísum við á kerfið og leið­irnar sem standa fólki til boða,“ segir Sigríður í sam­tali við Mannlíf. „Og líkt og í til­felli móð­ur­innar erum við að sjá bæði for­eldra og stofn­anir sem eiga í vanda við að fá við­eig­andi aðstoð, þegar upp kemur kyn­ferð­is­of­beldi og áreitni á milli barna og ung­menna á svip­uðu reki. Vandinn liggur í að það þurfi að skil­greina van­líðan eða vand­ann nægi­lega alvar­legan, svo að það sé hægt að veita þjón­ustu.“

Sigríður segir hins vegar engum blöðum að fletta um það hversu alvar­legt ofbeldi af þessu tagi er. „Kyn­ferð­is­brot á milli jafn­aldra eða ungra barna þar sem kyn­ferð­is­hegðun er í formi leikja getur verið börn­unum þung­bær og valdið þeim mik­illi van­líðan. Margar rann­sóknir á afleið­ingum kyn­ferð­is­of­beldis gefa vís­bend­ingar um að börn sem verða fyrir áföllum og streitu geta átt erfitt í skóla og fundið fyrir kvíða og lík­am­legri van­líðan. Því er brýnt að hjálpa börnum fyrr en síðar.“

Stuðn­ingur við barnið þurfi fyrst og fremst að vera frá for­eldrum og ætt­ingjum. „Að bregð­ast við kyn­ferð­is­of­beldi hjá börnum getur reynst for­eldrum erfitt og því er góður stuðn­ingur við for­eldra und­ir­staða þess að barnið nái að vinna úr van­líðan sinni,“ segir hún. „Það virð­ist vera þörf á sér­stöku úrræði eða stuðn­ing fyrir grunn- og leik­skóla þegar upp koma mál um óæski­lega kyn­ferð­is­hegðun á milli nem­enda.“

„Kyn­ferð­is­brot á milli jafn­aldra eða ungra barna þar sem kyn­ferð­is­hegðun er í formi leikja getur verið börn­unum þung­bær og valdið þeim mik­illi van­líðan … Því er brýnt að hjálpa börnum fyrr en síðar.“

Að sögn Sigríðar gefa rann­sóknir til kynna að 35 pró­sent stúlkna og 17 pró­sent drengja hér á landi hafi orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi fyrir 18 ára aldur og fæst þeirra segi frá því á meðan þau eru enn börn. Að jafn­aði þurfi börn að láta vita af kyn­ferð­is­of­beldi sem þau eru beitt um sjö til níu sinnum áður en þeim er trúað eða brugð­ist er við upp­lýs­ingum af hálfu full­orð­inna. Miðað við tíðni barna sem verða fyrir kyn­ferð­is­of­beldi á Íslandi fyrir 18 ára aldur, séu fjöl­margir for­eldrar því í sömu sporum og áður­nefnd móðir og fá ekki við­eig­andi aðstoð fyrir sig og barnið.

„Ég tel það þar af leið­andi alvar­legt ef kerfið, það er að segja Barna­vernd, sem á að styðja skóla, vísi málum frá sökum þess að Barnahús geti ein­göngu sinnt málum sem telj­ast til alvar­leg­ustu brota. Þörf er á meiri stuðn­ingi við skóla frá þjón­ustu­mið­stöðvum eða aðilum sem geta stutt for­eldra barna sem fara ekki í Barnahús. Það er alvar­legt að mínu mati að neita for­eldrum um þjón­ustu eða ráð­gjöf sem er á ábyrgð Barna­vernd­ar­nefnda eða sér­fræð­inga á þeirra vegum að veita.“

Sigríður segir að vissu­lega virki margt vel í kerf­inu á Íslandi en það verði að taka því alvar­lega þegar svo er ekki og læra af þeim til­fellum. „Þessu er til dæmis verið að vinna að núna í Félags- og barna­mála­ráðu­neyt­inu þar sem fer fram gagn­ger end­ur­skoðun á barna­vernda­kerf­inu okkar, ekki hvað síst með það að mark­miði að grípa fyrr inn í og fá öll þau kerfi sem standa að börnum og fjöl­skyldum þeirra til að vinna saman og þeim sé gert það laga­lega kleift – það er að per­sónu­vernd­ar­lög og fleira slíkt standi slíkri sam­vinnu ekki fyrir þrifum.“

Eins hafi fleiri skólar og sveita­fé­lög verið að fræða starfs­fólk sitt í fyr­ir­byggj­andi aðferðum og til­kynna grun um kyn­ferð­is­of­beldi. „En kenn­ara­stéttir fá hins vegar ekki sér­staka menntun í slíkum fyr­ir­byggj­andi aðferðum og vernd barna gegn kyn­ferð­is­of­beldi í starfs­námi sínu. Þannig að þótt mikið vatn hafi runnið til sjávar þá eigum við því miður enn langt í land að vernda börn gegn slíku ofbeldi.

Kyn­ferð­is­of­beldi er af manna­völdum og því á að vera hægt að fyr­ir­byggja það með því að vernda umhverfi barna og þjálfa starfs­fólk í réttum við­brögðum.

Sjá einnig: Móðir kyn­ferð­is­brota­þola: „Kerfið brást barn­inu mínu“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina