Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Jóhanna Sigurðardóttir gáttuð og segir umræðu þingmanna vitlausa, öfgafulla og engum til sóma

Fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra segir umræðu vegna frum­varps um þung­un­ar­rof komna út í öfga og hreina vit­leysu. Hún leggur til að málið verði látið bíða til næsta þings. „Vonandi verður þá mesta geðs­hrær­ingin yfir­staðin og hægt að ræða málið af meiri yfir­vegun,“ segir Jóhanna.

Jóhanna Sigurðardóttir gáttuð og segir umræðu þingmanna vitlausa, öfgafulla og engum til sóma

„Auðvitað er það stórt og mikið til­finn­inga­mál að auka rétt kvenna lil þung­un­ar­rofs, en umræðan um málið á Alþingi er gengin útí algjörar öfgar og komin út í hreina vit­leysu, engum til sóma.“

Skömmu eftir að fyrr­ver­andi kall­aði eftir meiri yfir­vegun sendi for­maður Flokks fólks­ins fjöl­miðlum myndir af íslenskri stúlku fæddri á 23. viku með­göngu sem lið í and­stöðu gegn frum­varp­inu. „Vegna fóst­ur­eyð­ing­ar­frum­varps­ins sem nú býður atkvæða­greiðslu Alþingis, sendi ég ykkur þessar myndir með vit­und og vilja for­eldra þess­arar litlu stúlku,“ segir í tölvu­póst Ingu Sæland, for­manni Flokks fólks­ins. Með­fylgj­andi eru myndir af stúlkunni agn­ar­smárri og nýfæddri á spít­ala. Að auki eru myndir af stúlkunni í dag skæl­bros­andi og að því er virð­ist við góða heilsu.

Frumvarp um þung­un­ar­rof er nú í þriðju umræðu á þingi. Fylk­ingar hafa mynd­ast á þingi með og á móti mál­inu. Helst er umdeild sú grein frum­varps­ins sem heim­ilar eyð­ingu fóst­urs á tutt­ug­ustu og annarri viku þung­unar. Raunar hefur slíkt verið heim­ilt hingað til en breyt­ingin er sú að konum er nú í sjálfs­vald sett hver for­senda slíkrar ákvörð­unar er. Í gild­andi lögum segir: „Einnig skal fóst­ur­eyð­ing leyfi­leg eftir 16 vikur, séu miklar líkur á van­sköpun, erfða­göllum eða sköddun fóst­urs.“ Heimild þarf að sækja hjá nefnd skip­aðri af Land­lækni.

„Einn þing­maður ásakar þá þing­menn sem tala fyrir auknum rétti að vilja drepa barn í móð­ur­kviði, sem er væg­ast sagt afar ósmekk­legt. Annar ber sér á brjóst og segir þetta mesta kven­frels­is­mál síð­ustu 100 árin sem er fjar­stæða. Og sá þriðji spyr hver réttur fóst­urs sé til að erfa eignir, sem erfitt er að sjá að eigi erindi inn í umræð­una,“ skrifar Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir vegna máls­ins.

Þar vitnar Jóhanna til ummæla Brynjars Níels­sonar, þing­manns Sjálf­stæðs­flokks­ins, sem hefur talað gegn frum­varp­inu. Hann telur að fara þurfi fram miklu dýpri umræða um málið og laga­leg rétt­indi þeirra sem ekki hafa fæðst, meðal ann­ars um rétt ófæddra barna til að erfa eignir for­eldra sinna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Þungunarrof

InnlentÞungunarrof

Þrauta­ganga kvenna sem vilja enda þungun „Útlimir barns­ins þíns verða rifnir af, höfuð þess verður kramið“

And­stæð­ingar þung­un­ar­rofs í Banda­rík­unum beita harka­legum aðferðum til að þrýsta á konur að leita ekki réttar síns og rjúfa þungun. „Ekki drepa barnið þitt,“ og „Við getum hjálpað þér“ er meðal þess sem mót­mæl­endur gegn þung­un­ar­rofi kalla á konur sem leita sér aðstoðar. Konur sem vilja fóst­ur­eyð­ingu njóta fylgdar sjálf­boða­liða í gegnum hóp mót­mæl­enda.
Innlent

„Að blanda ein­hverfu í þetta er út í hött“

María Rut Krist­indóttir er ein margra sem gagn­rýnir Við­skipta­blaðið fyrir nafn­lausan pistil þar sem Greta Thunberg, sænska stúlkan sem hefur barist í lofts­lags­málum, er gagn­rýnd og vakin athygli á því að hún er ein­hverf. Mannlíf tók saman nokkrar sleggjur lið­innar viku. „Ósmekk­legt. Og að blanda ein­hverfu í þetta er út í hött … Og já umhverf­is­mál snú­ast ekki um vinstri-hægri...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina