Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Við erum öll, 350 þúsund, orðin atvinnumenn og konur í því að takast á við þau bjánasköp kjörinna fulltrúa“

Þriðja orku­pakk­ann eiga Íslend­ingar að láta vera að mati Kára Stef­áns­sonar, for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­inga. Kári telur almenn­ing þó svo vana „bjána­sköpum“ að lík­lega lifi fólk sam­þykkt pakk­ans af.

„Við erum öll, 350 þúsund, orðin atvinnumenn og konur í því að takast á við þau bjánasköp kjörinna fulltrúa“
Kári Stef­áns­son

„Þegar maður veltir fyrir sér orku­pakk­anum þriðja í tengslum við hug­myndir um það hvernig orkan sem við virkjum úr íslenskri nátt­úru sé nýtt og mik­il­vægi hennar fyrir fram­tíð þjóð­ar­innar, þá held ég að við ættum að láta hann vera þótt ekki sé nema vegna þeirra skila­boða sem sam­þykkt hans myndi senda börnum okkar og barna­börnum,“ skrifar Kári í aðsendri grein í Frétta­blað­inu um þriðja orku­pakk­ann.

Sjá einnig: Sigurðu Ingi segir ekki hafa tek­ist að sann­færa meiri­hluta þjóð­ar­innar um fyr­ir­vara við þriðja orku­pakk­ann

„En ef Alþingi sam­þykkir orku­pakk­ann þriðja held ég að við lifum það svo sem af vegna þess að við erum öll, 350 þús­und, orðin atvinnu­menn og konur í því að takast á við þau bjána­sköp kjör­inna full­trúa þjóð­ar­innar sem þeir fremja gjarnan í nágrenni Aust­ur­vallar, þau afdrifa­ríku inni í hlöðnu stein­húsi sem blasir við Jóni Sig­urðs­syni, þau sem eru næstum tak­marka­laust eymd­ar­leg í dep­urð sinni í öðrum húsum þar í nágrenn­inu.“

Í grein­inni fjallar Kári um orku­verð á Íslandi og bendir á að ódýr raf­orka sé hags­muna­mál fyrir almenn­ing. Hann segir umræðu um þriðja orku­pakk­ann farna að hljóma eins og „frekar inni­halds­lítil deila um keis­ar­ans skegg í stað þess að vera okkur ástæða til þess að end­ur­skoða afstöðu til þess hvernig við nýtum þá raf­orku sem er sam­eign þjóð­ar­innar.“ Kári bendir á að afkoma Lands­virkj­unar hafi verið betri árið 2018 en árið áður. Þrátt fyrir það segir Kári standa til að hækka gjald­skrá raf­orku. „Lands­virkjun er í eigu rík­is­ins þannig að tekjur hennar umfram rekstr­ar­kostnað eru ein­fald­lega óbein skatt­lagn­ing,“ skrifar Kári.

Sjá einnig: Þing­maður varð fyrir aðkasti í Hagkaup

„Raforka sem er seld til málm­bræðslna í eigu erlendra fyr­ir­tækja er verð­lögð sam­kvæmt samn­ingum til margra ára þannig að ekki er lík­legt að þær gjaldi í bráð þessa aukna fjár­þorsta Lands­virkj­unar. Það sama verður ekki sagt um íslensk fyr­ir­tæki og heim­ilin í land­inu,“ skrifar Kári og bætir við að útsölu­verð á raf­orku hafi verið notað til að sann­færa erlend fyr­ir­tæki um að byggja málm­bræðslur á tíma þegar ekki var tal­inn vænni kostur í stöð­unni.

„Nú held ég að sé kom­inn tími á að við horfum til þess mögu­leika að nýta auð­veldan aðgang að vist­vænni orku til þess að ýta undir ann­ars konar og meira aðlað­andi upp­bygg­ingu. Við eigum að hafa raf­ork­una á fram­leiðslu­verði og ekki krónu umfram það til þess að lækka kostnað heim­il­anna og hlúa að fjöl­breytni í íslensku atvinnu­lífi. Eitt dæmi um mögu­leika sem lægra raf­magns­verð gæti skapað liggur í land­bún­aði. Í dag flytjum við inn meiri hlut­ann af því græn­meti sem við neytum frá löndum sem rækta græn­meti í gróð­ur­húsum. Mjög stór hluti af rekstr­ar­kostn­aði gróð­ur­húsa fer í raf­magn. Við eigum að sjá til þess að við séum sam­keppn­is­hæf í rekstri gróð­ur­húsa svo við getum ræktað okkar græn­meti sjálf, þannig gætt íslenskan land­búnað nýju lífi og aukið sjálf­bærni mann­lífs á Íslandi.“

Kári tekur gagna­ver sem dæmi um iðnað sem gæti gefið mikið af sér hér á landi með stuðn­ing í formi lágs orku­verðs. „Gagna­verin og þjón­usta og tækni­þróun í kringum þau gætu, ef rétt er haldið á spil­unum, gert upp­lýs­inga­tækni að raun­veru­legum stór­iðn­aði í land­inu í stað þess að vera sífellt ein­hvers konar hér­umbil grein. Til þess þurfa gagna­verin að eiga aðgang að miklu ódýr­ari orku. Það væri líka snið­ugt ef Alþingi setti lög til að tryggja öryggi gagna í gagna­verum til dæmis með því að lýsa gagna­verin helg vé, sem eng­inn mætti sækja í gegn vilja þeirra sem gögnin eiga, hvorki hið opin­bera á Íslandi né full­trúar erlendra ríkja. En það er önnur saga.“

Kári segir skipta máli þegar umræða um laga­setn­ingu um örlög þeirrar orku sem virkjuð er hér á landi að orkan er ekki ein­göngu til hús­hit­unar og lýs­ingar. Orkunni fylgi mögu­leikar til fram­kvæmda. „Vistvæna orkan okkar ætti að geta jafnað sam­keppn­is­að­stöð­una á mörgum sviðum ef hún væri skyn­sam­lega verð­lögð. Lands­virkjun er í eigu þjóð­ar­innar en hagar sér því miður eins og það sé hennar aðal mark­mið að fá sem hæst verð fyrir raf­magnið, án til­lits til þess hvernig það bitnar á atvinnu­þróun í land­inu.“

Um sæstreng virð­ist Kári ekki alveg sann­færður. „Ein af þeim aðferðum sem hún [Lands­virkjun] virð­ist vilja nota til þess að hækka verðið er að selja raf­magn í gegnum sæstreng til ann­arra landa. Það er lít­ill vafi á því að það væri hægt að fá hærra verð fyrir raf­magnið ann­ars staðar sem myndi leiða til þess að verðið hækk­aði hér og sam­keppn­is­að­staða okkar yrði öll önnur og verri. Við komum aldrei til með að geta lifað af því einu saman að selja raf­magn, en við gætum svo sann­ar­lega lifað mun betra lífi með því að nýta það til að bæta sam­keppn­is­að­stöðu okkar á hinum ýmsu sviðum. Mín afstæð­is­kenn­ing sem lýtur að verði á raf­magni er svona: Frá sjón­ar­hóli Lands­virkj­unar sem sjálf­stæðs fyr­ir­tækis á að selja raf­magn eins dýrt og mögu­legt er. Frá sjón­ar­hóli íslenskrar þjóðar á Lands­virkjun að selja raf­magn eins ódýrt og hægt er. Lands­virkjun er ekki sjálf­stætt fyr­ir­tæki heldur eign þjóð­ar­innar. Hags­munir þjóð­ar­innar eiga að ráða og það er ekk­ert afstætt við það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Þriðji orkupakkinn

FréttirÞriðji orkupakkinn

Frosti: „Hneyksli“ að ECT-samn­ing­ur­inn hafi ekki verið bor­inn undir Alþingi

Frosti Sig­ur­jóns­son, fyrr­ver­andi þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og einn af tals­mönnum Orkunnar okkar, telur það stjórn­ar­skrár­brot að Ísland hafi und­ir­geng­ist skuld­bind­ingar ECT-samn­ings­ins án aðkomu Alþingis. Gunnar Bragi Sveins­son stóð að full­gild­ingu samn­ings­ins í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.
FréttirÞriðji orkupakkinn

Aðstoð­ar­maður Sig­mundar rétt­lætir full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins: „Stundum er hlutum blandað inn í umræð­una“

Hinn umdeildi samn­ingur um vernd orku­fjár­fest­inga varð ekki bind­andi fyrir Ísland fyrr en rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar full­gilti hann árið 2015. Ólíkt því sem lagt var upp með við und­ir­ritun samn­ings­ins 20 árum áður var full­gild­ingin ekki borin undir Alþingi. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs gefur lítið fyrir frétta­flutn­ing af mál­inu, en önnur Evr­ópu­ríki töldu ástæðu til að sam­þykkja sér­staka yfir­lýs­ingu um for­ræði yfir sæstrengjum og olíu­leiðslum. Með und­ir­ritun Gunnars Braga Sveins­sonar og Ólafs Ragnars Gríms­sonar árið 2015 skuld­bundu íslensk stjórn­völd sig til að fram­fylgja samn­ingnum í hví­vetna.

Myndband

FréttirÞriðji orkupakkinn

Stjórn Sig­mundar full­gilti umdeildan samn­ing um vernd orku­fjár­fest­inga

Með full­gild­ingu ECT-samn­ings­ins hafa íslensk stjórn­völd skuld­bundið sig til að liðka fyrir frjálsum við­skiptum með orku­auð­lindir og að beita sér fyrir sam­keppni, mark­aðsvæð­ingu og sam­vinnu á sviði orku­flutn­inga. Reynt gæti á ákvæði samn­ings­ins ef upp koma deilur um lagn­ingu sæstrengs, en fjár­festar hafa meðal ann­ars notað samn­ing­inn sem vopn gegn stjórn­valds­að­gerðum sem er ætlað að halda niðri raf­orku­verði til almenn­ings.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina