Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Ég næ að lifa eðlilegu lífi en það er alltaf svolítil sorg í manni“

Sirrý Laxdal Jóhann­es­dóttir þekkir vel hversu mikil áhrif fíkni­sjúk­dómar geta haft á dýnamík innan fjöl­skyldna. Sirrý er móðir Þóru Bjargar Sig­ríð­ar­dóttur sem margir kann­ast við úr heim­ilda­mynd­inni Lof mér að lifa sem sýnd var á RÚV. Í henni fengu áhorf­endur inn­sýn í heim fíkn­ar­innar.

Sjá einnig: Aðstand­endur geta orðið lík­am­lega veikir vegna streit­unnar

Þegar Sirrý er beðin um að lýsa reynslu sinni segir hún: „Þessi reynsla er ofboðs­lega sorg­leg. Þetta er 16 ára saga og henni hafa fylgt stórir sigrar og líka gríð­ar­leg von­brigði og hlutir sem er erfitt að sætta sig við.“

Það sem hefur reynst Sirrý hvað erf­ið­ast er þegar Þóra fellur aftur eftir að hafa verið edrú í ákveð­inn tíma.

„Það sem hefur verið svo sorg­legt er að til dæmis þegar Þóra var edrú í fjögur og hálft ár á sínum tíma þá fór hún í skóla og henni gekk vel. Allir sem hún umgekkst báru henni vel sög­una og hún stóð sig svo vel. Þannig að von­brigðin voru mikil þegar það gekk ekki upp þó að ég vissi alltaf að það væri mögu­leiki á að hún félli aftur,“ útskýrir Sirrý.

„Þegar vel gengur hjá Þóru þá er maður svo glaður en ég hef lært að tipla á tánum og minna mig á þó að hún verði edrú þýði það ekki að þetta sé endi­lega komið.“

Erfitt fyrir alla fjölskylduna

Spurð út hvaða áhrif fíkni­sjúk­dómur Þóru hafi haft á ástandið innan fjöl­skyld­unnar og hennar eigin líðan segir Sirrý sjúk­dóm­inn oft hafa sett stórt strik fjöl­skyldu­lífið. „Fjöl­skyldan getur orðið hel­tekin af þessu og sjúk. Á tíma­bili, alltaf þegar ég tal­aði við mömmu mína, þá sner­ist allt um Þóru. Mamma spurði alltaf fyrst út í hvernig Þóra hefði það og fátt annað komst að. Þannig er þetta oft. En auð­vitað er gott að finna að fólk hugsar til hennar og vilji vita hvernig hún hafi það. Svo eru auð­vitað margir sem spyrja aldrei um hana, kannski þora ekki allir að tala um þetta við mig. Þannig að jú, vissu­lega þykir mér vænt um það þegar fólk spyr.

„Fjöl­skyldan getur orðið hel­tekin af þessu og sjúk.“

En þetta hefur verið erfitt fyrir alla í fjöl­skyld­unni, líka mömmu og pabba sem hafa verið með mér í þessu. Maðurinn minn er mjög raun­sær og hefur náð að halda mér á jörð­inni á meðan ég fagna þegar Þóra Björg klárar heila með­ferð, sem ger­ist ekki alltaf. Á sama tíma hefur hann verið minn klettur og stutt mig, t.d. með því að sam­þykkja að taka hana inn á heim­ili okkar í sept­em­ber eftir að hún kom úr með­ferð. Fyrir mig sam­þykkti hann að hún kæmi hingað. Þetta var það eina sem ég átti eftir að prófa og hann skildi að ég þurfti að prófa það,“ útskýrir Sirrý.

„En á þeim tíma­punkti sem mér tókst að læra að það væri ekk­ert sem ég gæti gert til að breyta ástand­inu, gat ég búið mér til smá­pláss. Ég var mörg ár að átta mig á þessu og þegar það gerð­ist þá fylgdi því frels­is­til­finn­ing en líka mikil sorg. Það að átta mig á að þetta var ekki í mínum höndum heldur í hennar höndum, að verða edrú og halda sér edrú, var erfitt.

„…mér tókst að læra að það væri ekk­ert sem ég gæti gert til að breyta ástand­inu.“

Þegar ég náði að sætta mig við að geta ekki breytt ástand­inu fór mér að líða betur. Auðvitað er þetta alltaf erfitt og ég hugsa um Þóru á hverjum ein­asta degi. En ég náði að ein­beita mér meira að mínu lífi þegar ég átt­aði mig á að ég hef ekki stjórn á hennar hegðun og líðan. Auðvitað koma sveiflur. Það er sárt að geta ekki verið í eðli­legum sam­skit­pum við við­kom­andi og geta t.d. ekki varið jól­unum með dóttur sinni. Við ætl­uðum til að mynda að vera saman á jól­unum núna síð­ast en það gekk ekki upp,“ útskýrir Sirrý.

Með því að setja ákveðin mörk hefur Sirrý tek­ist að búa sér til rými til að sinna sjálfri sér en ekki síst öðrum fjöl­skyldu­með­limum.

„Það er ekki á mínu valdi að breyta þessu. Og ég á aðra dóttur, Ellen Sif, sem hefur stundum gleymst í þessu ferli því það komu tímar sem ég náði ekki að sinna henni nógu vel þegar hún var yngri. Ég var kannski ekki alltaf til staðar fyrir hana þegar hún þurfti á mér að halda. Þetta hefur verið mikið álag á heim­ilið. En í dag reyni ég að vera alltaf til staðar ef það er eitt­hvað sem ég get aðstoðað hana og fjöl­skyldu hennar með,“ segir Sirrý sem eign­að­ist dótt­ur­son í des­em­ber árið 2017.

„Ég vil verja sem mestum tíma með honum og aðstoðað þau á allan þann hátt sem ég get. Ellen Sif á það inni hjá mér.“

Þóra og Ellen ásamt Halldóri Erni, syni Ellenar.

Spurð nánar út í mörkin sem hún hefur sett eldri dóttur sinni segir Sirrý að það sé svo erfitt að horfa upp á hana í mik­illi neyslu og því rugli sem fylgir neysl­unni þannig að til að gera lífið bæri­legra hafa þær Þóra gert þegj­andi sam­komu­lag. „Þegar hún er í miklu rugli eru sam­skipti okkar í lág­marki. Hún lætur samt reglu­lega vita af sér, þannig að ég viti að hún sé lif­andi.“

Komst fjótt yfir skömmina

Aðspurð hvort að hún hafi ein­hvern tím­ann fundið fyrir skömm vegna ástands­ins hugsar Sirrý sig um og segir svo: „Sko, það er auð­vitað svo langt síðan þessi saga hófst, um 16 ár, þannig að Þóra hefur verið í þessu verk­efni sínu meira en helm­ing ævi sinnar. Og hér áður fyrr hélt ég alltaf að börn og ung­lingar í neyslu kæmu frá heim­ilum þar sem ríkti óregla. En ég varð að éta þetta ofan í mig vegna þess að ég var bara venju­leg kona sem átti venju­legt heim­ili. Þannig að já, í upp­hafi upp­lifði ég skömm. En ég setti mig samt sjálf í sam­band við Barna­vernd­ar­stofu og óskaði eftir aðstoð á sínum tíma, þegar ég komst að því í hvaða far Þóra Björg var komin, ég vissi ekki hvernig ég átti að tækla þetta.“

Sirrý segir barna­vernd hafa reynst sér vel í gegnum tíð­ina. „Oftast er talað um barna­vernd sem eitt­hvað fyr­ir­bæri sem þú vilt ekki hafa á bak­inu. En á þessum tíma vildi ég hafa hana á bak­inu, ef svo má að orði kom­ast. Ég var svo van­máttug. Þar kynnt­umst við ynd­is­legri mann­eskju sem hefur fylgst með okkur Þóru, líka eftir að Þóra varð 18 ára,“ segir Sirrý sem er þakk­lát þeim full­trúum Barna­vernd­ar­stofu sem veittu henni aðstoð á sínum tíma. „Sér­stak­lega er ég þakk­lát þess­ari konu sem er enn til staðar með ráð­legg­ingar, löngu eftir að Þóra varð 18 ára.

„Það er engin skömm að því að vera með sjúk­dóm eða vera aðstand­andi sjúk­lings.“

En hvað skömm­ina varðar komst ég fljótt yfir hana og fór að tala opin­skátt um hlut­ina. Það er eitt­hvað sem sumu fólki hefur eflaust þótt óþægi­legt því þetta er auð­vitað sorg­legt. En það hefur hjálpað mér er að vera ekk­ert að fela ástandið. Það er auð­vitað ekk­ert til að skamm­ast sín fyrir. Það er engin skömm að því að vera með sjúk­dóm eða vera aðstand­andi sjúk­lings.“

„Hvert á hún þá að fara og hvað á hún að gera?“

Eins og áður sagði hafa komið góðir tímar hvað bar­áttu Þóru varðar. En eitt stórt vanda­mál, að mati Sirrýjar, er úrræða­leysi. Hún bendir á að það vanti úrræði fyrir það fólk sem hefur tek­ist að koma sér í gegnum með­ferð við fíkni­sjúk­dómum.

„Það er lítið verið að gera fyrir fólk sem hefur áhuga á að sigr­ast á fíkn­inni og koma sér aftur út í lífið. Fólk fer í með­ferð og hvað svo? Það vantar eitt­hvað meira en með­ferð. Einhvern und­ir­bún­ing fyrir fólk til að skapa sér venju­legt líf. Ef við tökum til dæmis ein­stak­ling sem hefur verið langt leiddur í mörg ár, sá ein­stak­lingur á ekk­ert. Ég er til dæmis með „allt“ dótið hennar Þóru inni í geymslu. En ef hún klárar með­ferð, hvert á hún þá að fara og hvað á hún að gera? Það er svo erfitt fyrir þetta fólk að kom­ast inn í rútínu aftur. Og það eru ekk­ert allir aðstand­endur sem treysta sér til að taka fólkið sitt inn á heim­ilið eftir að það hefur klárað með­ferð. Til dæmis er það full­reynt í okkar til­felli. Það er mikið álag á heim­ilið að taka við ein­tak­lingi með fíkni­sjúk­dóm, hvað þá mann­eskju sem er orðin full­orðin eins og Þóra Björg er. Ég legg það ekki á mig eða aðra fjöl­skyldu­með­limi aftur.“

Sirrý hefur búið á Aust­fjörðum og á Norð­ur­landi und­an­farin 10 ár og Þóra hefur verið í Reykja­vík en Sirrý hefur verið reiðu­búin til að hjálpa Þóru þegar hún hefur klárað með­ferðir. „Hún flutti til dæmis til mín eftir að myndin [Lof mér að lifa] var tekin upp og var edrú í smá­tíma en það gekk ekki upp og von­brigðin voru mikil – yfir því að hún hafi ekki nýtt tæki­færið. Það kom mér langt niður,“ útskýrir Sirrý.

„Eftir að þætt­irnir voru svo sýndir, og Þóra Björg flutti til okkar í kjöl­farið eftir að hafa klárað með­ferð sem gekk ekki upp, hrundi ég algjör­lega. Ég fór til læknis, alveg buguð. Ég hékk bara í vinn­unni, bara umbúð­irnar utan af mér. Ég man ekk­ert frá þessum tíma­bili og staulað­ist bara ein­hvern veg­inn áfram. Ég óskaði eftir launa­lausu leyfi frá vinnu. Lækn­ir­inn sem ég hitti úrskýrði fyrir mér á manna­máli að sem aðstand­andi hefur maður nefni­lega verið í sorg­ar­ferli í svo mörg ár. Það er það sem ég upp­lifi.“

„Ég man ekk­ert frá þessum tíma­bili og staulað­ist bara ein­hvern veg­inn áfram.“

Þrátt fyrir þetta stóra bakslag síð­ast­liðið haust líður Sirrý ágæt­lega þessa stund­ina, að eigin sögn. „Ég hef lært að lifa með þessu. Ég næ að lifa eðli­legu lífi en það er alltaf svo­lítil sorg í manni. Það eru ákveðnir hlutir sem þú sættir þig aldrei við. Þó að ég hafi stundum á til­finn­ing­unni að þetta verði bara lífs­stíll­inn sem hún muni lifa þá er ég klár­lega alltaf að bíða eftir að hún rífi sig upp og komi sér á fætur,“ útskýrir hún.

Sirrý við­ur­kennir að þrátt fyrir að hún hafi fundið ákveð­inn frið fái hún hnút í mag­ann reglu­lega. „Til dæmis hellist yfir mig ótti þegar sím­inn hringir og ég þekki ekki núm­erið. Líka um dag­inn þegar lög­reglu­maður kom á vinnu­stað minn, hann var bara að sækja þjón­ustu eins og hver annar við­skipta­vinur, en þá var ég svo viss um að það væri verið að koma með slæmar fréttir til mín.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina