Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Kökuhlaðborðið aðalsmerki hlaupsins

Flóa­hlaupið verður haldið í fer­tug­asta sinn um helg­ina en það er meðal ann­ars þekkt fyrir köku­hlað­borðið sem boðið er upp á að hlaupi loknu.

Kökuhlaðborðið aðalsmerki hlaupsins
|||
Guðmunda Ólafs­dóttir, for­maður Umf. Þjótanda og skjala­vörður á Hér­aðs­skjala­safni Árnes­inga. Mynd / Gunn­hildur Lind

Ung­menna­fé­laið Þjótandi sér nú um utan­um­haldið og við fengum for­mann þess, Guðmundu Ólafs­dóttur, til að segja okkur aðeins frá þessum skemmti­lega við­burði.

Hlaupið er frá félags­heim­il­inu Félags­lundi og boðið upp á þrjár vega­lengdir; þrjá kíló­metra, fimm og tíu. Brautin er nær mar­flöt, styttri vega­lengd­irnar á mal­biki en tíu kíló­metra hlaupið að stærstum hluta á mal­ar­vegi.

„Hlaupararnir eru í miklu návígi við nátt­úr­una og jafn­vel búpen­ing­inn á nær­liggj­andi bæjum. Eitt árið kom það meira að segja fyrir að hrossa­hópur slapp út úr girð­ingu við hlaupa­leið­ina og hlupu sam­ferða hlaup­ur­unum hluta af leið­inni, flestum til ánægju,“ segir Guðmunda, for­maður Umf. Þjótanda og skjala­vörður á Hér­aðs­skjala­safni Árnes­inga.

„Hlaupið var fyrst haldið árið 1979 svo nú er 40 ára afmæli þess. For­víg­is­maður hlaups­ins er Markús Ívarsson á Vorsa­bæj­ar­hóli og í upp­hafi hófst hlaupið á hlað­inu í Vorsabæ, næsta bæ við Vorsa­bæj­ar­hól, og hlaup­inn var tíu kíló­metra hringur sem kall­ast Vorsa­bæj­ar­hring­ur­inn. Kepp­endur voru tíu tals­ins og að hlaupi loknu bauð Markús þeim heim í kaffi að Vorsa­bæj­ar­hól.

For­víg­is­maður hlaups­ins, Markús Ívarsson á Vorsa­bæj­ar­hóli, les upp nöfn vinn­ings­hafa í ald­urs­flokkum.

Þegar fram liðu stundir og hlaupið varð vin­sælla var upp­hafs­staður þess færður að Félags­lundi til þess að hægt væri að koma öllum í kaffi. Frá byrjun hefur þó verið hlaup­inn sami hringur. Markús er enn í dag aðal­skipu­leggj­andi hlaups­ins, enda þekkir það eng­inn eins vel og hann.“

Heimilislegt og „sveitó“

Köku­hlað­borðið er fyrir löngu orðið aðals­merki hlaups­ins og er að sögn Guðmundu upp­runnið í klass­ískri íslenskri gest­risni.

„Því aðals­merki viljum við halda á lofti. Kaffi­veit­ing­arnar gera það að verkum að Flóa­hlaupið er ekki bara íþrótta­við­burður heldur einnig menn­ing­ar­við­burður fyrir þá sem mæta. Þarna fær hlaupa­fólk víðs­vegar að tæki­færi til að setj­ast niður og eiga nota­lega stund að hlaupi loknu og spjalla saman. Kökurnar sem boðið er upp á eru allar bak­aðar af hús­mæðrum úr hreppnum en flestum íbúum sveit­ar­innar þykir sjálf­sagt mál að rétta ung­menna­fé­lag­inu hjálp­ar­hönd þegar eftir því er kallað með því til dæmis að gefa félag­inu eina köku. Venjan er svo að fá hóp ung­menna til að koma og smyrja brauðið og baka vöffl­urnar. Það mynd­ast alltaf ágæt­is­stemn­ing í eld­hús­inu við þessa vinnu,“ segir Guðmunda og mikil ánægja hefur verið meðal kepp­enda með þennan við­burð.

Kökurnar sem boðið er upp á eru allar bak­aðar af hús­mæðrum úr hreppnum.

„Enda er and­rúms­loftið afskap­lega heim­il­is­legt og „sveitó“, eins og sumir vilja orða það. Sumir hafa jafn­vel komið og tekið þátt ára­tugum saman. Köku­hlað­borðið hefur, eins og ég sagði, verið frá upp­hafi og á svo sann­ar­lega sinn þátt í vin­sældum hlaups­ins. Kepp­endur hafa flestir verið á annað hund­rað en fjöldi þátt­tak­enda fer mikið eftir veðri eins og oft vill verða. Hlaupið fer alltaf fram byrjun apríl svo það er allra veðra von.“

Heim­il­is­legt og „sveitó“. Köku­hlað­borðið er fyrir löngu orðið aðals­merki hlaups­ins og er að sögn Guðmundu upp­runnið í klass­ískri íslenskri gest­risni.

Guðmunda sjálf er með bak­grunn í frjálsum íþróttum og hefur reynt að halda sér við síðan. „Ég hef þó ekki gerst svo fræg að keppa í öðrum hlaupum en Kvenna­hlaup­inu. Ég hef aldrei keppt í Flóa­hlaup­inu sjálf, enda alltaf nóg að gera við fram­kvæmd hlaups­ins. En ég er ákveðin í að taka þátt þegar ég verð hætt stjórn­ar­setu í Þjótanda og get farið að mæta sem óbreyttur borg­ari.“

Byggt á 100 ára gömlum rótum

Ung­menna­fé­lagið Þjótandi var stofnað haustið 2015 sem arf­taki þriggja gam­al­gró­inna ung­menna­fé­laga sem störf­uðu í Flóa­hreppi.

„Eftir að allir krakkar í Flóanum fóru að sækja nám í sama skóla, Flóa­skóla, og sveit­ar­fé­lögin þrjú í Flóanum voru sam­einuð í Flóa­hrepp fundum við vax­andi þörf á því að allir krakkar í hreppnum væru í sama ung­menna­fé­lagi. Því varð raunin að leggja niður þrjú félög, Umf. Baldur, Umf. Samhygð og Umf. Vöku, og stofna Umf. Þjótanda. Umf. Þjótandi er því ungt félag byggt á rúm­lega 100 ára gömlum rótum.

Starfs­svæðið er sem sagt Flóa­hreppur í Árnes­sýslu. Helsta starf­semi félags­ins er að halda úti íþrótta­æf­ingum fyrir krakk­ana í sveit­inni auk þess að skipu­leggja hverskyns félags­starf; halda þrett­ánda­gleði fyrir sveit­ung­ana, fara í skemmti­ferðir til Reykja­víkur, halda íþrótta­mót, aðstoða jóla­svein­ana við að kom­ast á milli staða, halda dans­nám­skeið og fleira. Þetta þarf svo allt að fjár­magna og er það gert með ýmsum fjár­öfl­unum eins og skötu­veislu, haust­balli, páska­bingói og svo Flóa­hlaup­inu.“

Í þriggja kíló­metra hlaup­inu eru veitt verð­laun fyrir þrjú fyrstu sætin í flokki pilta og stúlkna 14 ára og yngri, og eins í fimm kíló­metra hlaup­inu nema þar er ald­urs­flokk­ur­inn opinn. Í tíu kíló­metra hlaup­inu eru veitt ald­urs­flokka­verð­laun fyrir þrjá fyrstu í hverjum flokki hjá bæði körlum og konum. Að auki fá allir verð­laun fyrir þátt­töku.

Hægt er að skrá sig í hlaupið á hlaup.is eða með því að mæta tím­an­lega á svæðið á keppn­is­dag. Hlaupið hefst klukkan 13 þann 6. apríl 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag