Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

„Það þarf að bæta skráningarnar og innköllunarkerfi heilsugæslunnar“

Frá því að misl­inga­far­aldur hófst hér á landi í febr­úar hefur margt fólk velt því fyrir sér hvort að það hafi verið bólu­sett á sínum tíma. Hér áður fyrr voru bólu­setn­ingar skráðar á bólu­setn­ing­ar­skír­teini sem fólk þurfti að passa upp á. En í dag eru bólu­setn­ingar skráðar raf­rænt og á und­an­förnum mán­uðum hefur mikil vinna verið lögð í að bæta raf­rænt skrán­ing­ar­kerfi heilsu­gæsl­unnar.

„Það þarf að bæta skráningarnar og innköllunarkerfi heilsugæslunnar“
Bólu­setn­ingar|

„Það geta verið ýmsar ástæður fyrir því að fólk er í góðri trú um að hlut­irnir séu í lagi þegar þeir eru það ekki,“ svarar Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir aðspurður hvernig það ger­ist að fólk haldi að það sé bólu­sett þegar það er það ekki.

Þórólfur Guðnason, sótt­varn­ar­læknir.

„Fyrir árið 2000 þá voru allar bólu­setn­ingar skráðar í ónæm­is­kort, svona bólu­setn­ing­ar­skír­teini. Og það var mælt með að fólk myndi geyma það. En fólk týnir þessu og heldur bara að það hafi farið í allar bólu­setn­ingar,“ segir hann.

„Og þegar skír­teinið er týnt þá getur verið erfitt að nálg­ast þessar upp­lýs­ingar. Hér áður fyrr var þetta bara geymt á pappír á heilsu­gæslu­stöðvum og lækna­stofum og svo sett í geymslu sem erfitt getur reynst að nálg­ast. Það var engin mið­læg skrán­ing.

Hér áður fyrr var þetta bara geymt á pappír á heilsu­gæslu­stöðvum og lækna­stofum og svo sett í geymslu sem erfitt getur reynst að nálg­ast. Það var engin mið­læg skrán­ing.

Upp úr alda­mót­unum var farið í að skrá upp­lýs­ingar um bólu­setn­ingar raf­rænt. En þeir sem fóru í bólu­setn­ingar fyrir þann tíma eru ekki í þessum gagna­grunni, nema í und­an­tekn­ing­ar­til­fellum. Við höfum verið að hvetja heil­brigð­is­starfs­fólk til að færa eldri bólu­setn­ingar inn í kerfið en það er sein­legt og það vantar mann­afla.“

Þegar Þórólfur er spurður út í hvað fólk ætti að gera vilji það ganga úr skugga um að það sé bólu­sett án þess að hafa aðgang að upp­lýs­ingum um bólu­setn­ingar segir hann: „Ef fólk er efins þá eru tveir mögu­leikar í stöð­unni. Það er hægt að mótefna­mæla fólk til að sjá hvort það sé með mótefnið í blóð­inu. Og svo er hægt að bólu­setja það aftur, það er ein­fald­ari, fljót­legri og ódýr­ari kostur.“

Þórólfur tekur þó fram að það séu tak­mörk fyrir því hvað sé hægt að bólu­setja marga hverju sinni. „Það getur gerst, líkt og á stundum eins og núna, að það sé hrein­lega ekki til nógu mikið bólu­efni í þessum flokki til að bólu­setja stóran hóp fólks,“ útskýrir Þórólfur.

„En lang­flestir sem eru fæddir eftir 1970 eru bólu­settir. Þannig að eins og staðan er núna er óþarfi að stökkva til læknis og láta bólu­setja sig ef maður er óviss. En þeir sem eru sann­ar­lega vissir um að þeir hafi ekki fengið bólu­setn­ingu á sínum tíma ættu að láta bólu­setja sig. Sömu­leiðis má full­yrða að flestir sem fæddir eru fyrir 1970 hafi fengið misl­inga þó að þeir muni ekki eftir því. Misl­ingar eru gríð­ar­lega smit­andi og fáir sluppu á þessum tíma.“

Vandamálið tæknilegs eðlis

Sjö til­felli misl­inga hafa greinst frá því að misl­inga­far­aldur hófst hér á landi í febr­úar. Einungis einn af þessum sjö hefði átt að vera bólu­settur sam­kvæmt því fyr­ir­komu­lagi bólu­setn­inga sem hér ríkir. Þórólfur segir vanda­málið því ekki snú­ast um það að fólk vilji ekki láta bólu­setja börnin sín heldur frekar vera tækni­legs eðlis.

Það er ekki hægt að skella skuld­inni alfarið á heil­brigð­is­kerfið ef það gleym­ist að bólu­setja ein­hvern.

„Það þarf að bæta skrán­ing­arnar og inn­köll­un­ar­kerfi heilsu­gæsl­unnar. Hingað til hefur inn­köll­un­ar­kerfið á heilsu­gæsl­unni ekki verið nægi­lega gott og það hefur verið erfitt að nálg­ast upp­lýs­ingar um þá sem hafa ekki mætt í bólu­setn­ingu. En auð­vitað þarf fólk líka að bera ábyrgð á sínum bólu­setn­ingum. Það er ekki hægt að skella skuld­inni alfarið á heil­brigð­is­kerfið ef það gleym­ist að bólu­setja ein­hvern.“

Bætt skráningarkerfi

Aðspurður hvort hann telji þörf á að gera almennar bólu­setn­ingar að skyldu segir Þórólfur: „Ég hef auð­vitað samúð með þeim sem vilja skylda alla í bólu­setn­ingar. En það er bara spurn­ing um þessa nálgun, hvernig á að útfæra þetta? Hver á að fara í ein­hvern löggu­leik og sjá til þess að allir séu bólu­settir?“

Þórólfur er hræddur um að bólu­setn­ing­ar­skylda gæti haft öfug áhrif og stuðað fólk. „Ég held að við ættum fyrst að bæta skrán­ingar á bólu­setn­ingum og inn­köll­un­ar­kerfi heilsu­gæsl­unnar. Ef það ber ekki árangur þá er kannski hægt að skoða bólu­setn­ing­ar­skyldu. En ég held að það sé betra að gera þetta á jákvæðum nótum með fólki. Þess ber að geta að á und­an­förnum mán­uðum hefur mikil vinna verið lögð í að bæta skrán­ingar- og inn­köll­un­ar­kerfi heilsu­gæsl­unnar og er þess vænst að árang­ur­inn muni sjást á næstu miss­erum.“

Þórólfur tekur fram að þeir ein­stak­lingar sem hafa smit­ast af misl­ingum und­an­farið til­heyri ekki þeim hóp sem er á móti bólu­setn­ingum. „Rann­sóknir sýna að um 2% almenn­ings er í raun á móti bólu­setn­ingum. Þannig að þegar fólk er ekki bólu­sett þá er það yfir­leitt ekki vegna and­stöðu heldur vegna þess að það hefur gleymst að bólu­setja það af ein­hverjum ástæðum eða þá að þetta eru börn sem eru of ung til að fá bólu­setn­ingu. Þannig að í þessum til­fellum hefði bólu­setn­ing­ar­skylda ekki breytt neinu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag