Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Varnir Sjálfstæðisflokksins féllu hver af annarri

Allar til­raunir Sjálf­stæð­is­flokks­ins til að gera lítið úr alvar­leika dóms Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í Lands­rétt­ar­mál­inu reynd­ust með öllu árang­urs­lausar. Örlög Sigríðar Andersen voru ráðin um leið og dómur féll á þriðju­dags­morgun.

Varnir Sjálfstæðisflokksins féllu hver af annarri

For­ystu­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins virð­ast ekki hafa áttað sig á alvar­legum afleið­ingum dóms Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu (MDE) þegar fréttir bár­ust af honum á þriðju­dags­morgun. Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra sagði þann sama dag að Lands­réttur væri starf­hæfur og vís­aði til þess að Hæsti­réttur hafi talið skip­un­ina lög­mæta. Hún sagð­ist jafn­framt njóta stuðn­ings innan rík­is­stjórn­ar­innar. Það stöðu­mat var rangt.

Birgir Ármanns­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fylgdi sömu línu þegar hann lýsti sig ósam­mála dómnum og sagði hann byggja á veikum grunni. Sagði hann engar for­sendur hafa breyst síðan van­traust­s­til­laga á hendur Sigríði var felld og að þing­flokk­ur­inn stæði þétt að baki henni. Var varla hægt að túlka þessi orð Birgis öðru­vísi en skila­boð til hinna stjórn­ar­flokk­anna, einkum og sér í lagi VG sem áður hafði gengið í gegnum svipu­göng í fyrri málsvörn fyrir Sigríði.

Birgir full­yrti einnig að Lands­réttur gæti haldið áfram að starfa með eðli­legum hætti. Það stöðu­mat reynd­ist líka kol­rangt enda liðu ekki nema nokkrar klukku­stundir þangað til dóm­arar í Lands­rétti ákváðu að fella enga dóma það sem eftir lifði vik­unnar. Í milli­tíð­inni hafði fjöldi lög­spek­inga stigið fram og lýst því yfir að milli­dóms­stigið í land­inu væri í full­komnu upp­námi. Þessar til­raunir til að gera lítið úr alvar­leika dóms­ins voru skotnar niður strax í upp­hafi.

Katrín kemur heim

Hvað stöðu Sigríðar varðar þá tók við langur sól­ar­hringur þar sem beðið var eftir því að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra kæmi til lands­ins frá New York á mið­viku­dags­morgun. Katrín kaus að tjá sig ekk­ert um málið þegar frétta­menn sátu fyrir henni í Leifs­stöð og aðrir þing­menn stjórn­ar­liðs­ins héldu spil­unum þétt að sér.

Á þessum tíma voru vanga­veltur um fram­tíð stjórn­ar­sam­starfs­ins. Vitað var að VG-liðar höfðu engan áhuga á að leggj­ast í aðra vörn fyrir Sigríði og ekki var vitað hversu langt þing­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins var til­bú­inn til að ganga til að standa vörð um hana, þrátt fyrir yfir­lýs­ingar Birgis dag­inn áður.

Það kom þess vegna flatt upp á fjöl­miðla­menn sem höfðu beðið fyrir utan her­bergi þing­flokka á mið­viku­dag­inn, þegar Sigríður boð­aði skyndi­lega til blaða­manna­fundar í dóms­mála­ráðu­neyt­inu klukkan hálf­þrjú. Þar til­kynnti Sigríður að hún hyggð­ist stíga tíma­bundið til hliðar þótt hún gæti ekki sagt til um hversu lengi það yrði. Stjórn­mála­skýrendur útskýrðu skömmu síðar að hún hefði ein­fald­lega sagt af sér.

Þótt eng­inn hafi sagt það berum orðum þá má nokkuð ljóst vera að Katrín hafi ein­fald­lega stillt Sigríði og Sjálf­stæð­is­flokknum upp við vegg. Þannig svar­aði hún því ekki neit­andi hvort stjórn­ar­sam­starfið hafi verið í hættu og fáum ætti að dylj­ast hvað hún meinti með því þegar hún sagð­ist hafa „lýst yfir áhyggjum sínum“ af stöð­unni í sím­tali við Sigríði á þriðju­dags­kvöld. Þá vildi hún ekki svara því hvort Sigríður eigi aft­ur­kvæmt í rík­is­stjórn, jafn­vel þótt Sigríður hafi gengið að því sem vísu á blaða­manna­fundi rétt áður. Í það minnsta hefur Katrín náð að sann­færa Bjarna um að stjórn­ar­sam­starfið væri mik­il­væg­ara en póli­tísk staða Sigríðar.

Jón Steinar gaf tóninn

Það vakti einnig athygli að Sigríður not­aði megnið af blaða­manna­fundi sínum í að rétt­læta emb­ætt­is­færslur sínar og um leið gagn­rýna harð­lega nið­ur­stöðu MDE. Sagðist hún ekki láta það átölu­laust að dóm­stólar, inn­lendir sem erlendir, yrðu not­aðir í póli­tískum til­gangi né að íslenskir dóm­stólar fram­selji sitt vald til túlk­unar á erlendum lögum til erlendra dóm­stóla.

Bjarni Bene­dikts­son tal­aði á sömu línu þegar hann gagn­rýndi MDE og vís­aði til þess að í Bret­landi færu fram líf­legar umræður um hvort segja ætti Bretland úr MDE. Tóninn fyrir þessa umræðu gaf Jón Steinar Gunn­laugs­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður og mála­fylgju­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í pistli sem hann birti á vef­síðu sinni þar sem hann sagði að dómur MDE væri „ekk­ert minna en árás á full­veldi Íslands“.

Þessi ummæli Bjarna hafa fallið í grýttan jarð­veg, bæði meðal for­ystu­manna frjáls­lyndu flokk­anna sem og innan þing­liðs VG. Hvort Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fylgi þessum orðum eftir eða hvort þetta sé eitt­hvað sem var sagt í hita leiks­ins verður tím­inn að leiða í ljós.

Sjá einnig: Sigríður stígur tíma­bundið til hliðar – Dómi MDE verður áfrýjað

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag