Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Bókin snarhækkar í verði í höndum hins opinbera

End­an­legur kostn­aður allt að 40 pró­sent hærri en verð­mið­inn segir til um.

Bókin snarhækkar í verði í höndum hins opinbera
||

Fjöldi Íslend­inga kaupir bækur í erlendum net­versl­unum og fær þær sendar heim eða á næsta póst­hús. Þegar gengið er frá kaup­unum er oftar en ekki tekið fram að send­ing­ar­kostn­aður sé inni­fal­inn en svo bíður reikn­ingur þegar bókin er komin á póst­húsið. Sá reikn­ingur er iðu­lega mun hærri en gef­inn var upp við kaupin. Sé bókin hins vegar keypt á raf­rænu formi leggj­ast engin slík gjöld ofan á.

Brynjar Smári Rún­ars­son, for­stöðu­maður mark­aðs­deildar Íslands­pósts.

Þetta mis­ræmi stafar að því að ýmiss konar gjöld eru lögð á vör­una við kom­una til lands­ins. Þannig er umsýslu­gjald eitt þess­ara gjalda sem Íslands­póstur inn­heimtir fyrir hverja send­ingu sem ber aðflutn­ings­gjöld. Í skrif­legu svari frá fyr­ir­tæk­inu segir: „Í umsýslu felst meðal ann­ars skrán­ing send­inga, geymsla í 7 daga, til­kynn­ingar og önnur umsýsla.“ Aðflutn­ings­gjöld er annar kostn­að­ar­liður sem leggst ofan á bók­ina, en það eru  „öll þau gjöld sem við­skipta­vinir þurfa að greiða til rík­is­ins af send­ingum sem eru fluttar til lands­ins.“ Virð­is­auka­skattur er greiddur af öllum send­ingum sem fluttar eru inn til lands­ins nema annað sé sér­stak­lega tekið fram í lögum og reglu­gerðum.

„Íslands­póstur hefur heim­ild fyrir þess­ari inn­heimtu í alþjóða­póst­samn­ingum frá 2005 þar sem þessi kostn­aður er ekki inni­fal­inn í póst­burð­ar­gjöld­unum sjálfum enda er skrán­ing mjög mis­jöfn milli landa.“

Ef heild­ar­verð­mæti send­inga er innan við 40 þús­und krónur og inn­flutn­ingur er ekki í atvinnu­skyni er hægt að gera ein­falda toll­skýrslu. Annars er gerð hefð­bundin toll­skýrsla. „Á Íslandi gæti bæst við kostn­aður vegna þjón­ustu sem toll­miðl­arar eða farm­flytj­endur veita, t.d. vegna toll­skýrslu­gerðar eða heim­keyrslu. Ekki eru lögð inn­flutn­ings­gjöld á slíka þjón­ustu en hún er hins vegar virð­is­auka­skatt­skyld,“ segir í upp­lýs­ingum frá Toll­stjóra en Íslands­póstur er í þessu til­felli toll­miðl­ari.

Aðspurður um hvort Íslands­póstur fái mikið af athuga­semdum frá við­skipta­vinum vegna gjald­anna segir Brynjar Smári Rún­ars­son, for­stöðu­maður mark­aðs­deildar Íslands­pósts, að svo sé í raun ekki. „Almennt er það þannig að stærstur hluti við­skipta­vina veit af umsýslu­gjaldi þegar pantað er en það er auð­vitað alltaf eitt­hvað um ábend­ingar.“ Þá tekur hann sér­stak­lega fram að umsýslu­gjöld séu ekki send­ing­ar­kostn­aður. „Heldur greiðsla fyrir vinnu Íslands­pósts, þessi gjöld reikn­ast á allar send­ingar erlendis frá sem bera aðflutn­ings­gjöld.“

Rukkað fyrir að leita í send­ing­unni

Þráinn Ber­tels­son vakti athygli á því að kostn­að­ur­inn við bók sem hann pant­aði að utan reynd­ist 40 pró­sentum hærri en reikn­ing­ur­inn frá bók­söl­unni sagði til um. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Einnig kemur fyrir að við­skipta­vinir taka eftir sér­stöku gjaldi sem inn­heimt er fyrir að leita að reikn­ingi en það er gert ef upp­lýs­ingar um verð vör­unnar er ekki að finna utan á pakk­anum. „Allar inn­fluttar vörur þarf að toll­af­greiða. Lýsandi inni­halds­lýs­ing er mik­il­væg til þess að hægt sé að setja vör­una í réttan toll­flokk. Ef full­nægj­andi upp­lýs­ingar um verð­mæti eru utan á send­ing­unni er hún toll­af­greidd strax og send til kaup­anda,“ segir í svari frá Íslands­pósti.

Brynjar Smári segir fyr­ir­tækið hafa heim­ild fyrir þess­ari gjald­töku þrátt fyrri að verslað sé frá löndum sem falla undir frí­versl­un­ar­samn­inga enda sé ekki um eig­in­lega tolla að ræða. „Íslands­póstur hefur heim­ild fyrir þess­ari inn­heimtu í alþjóða­póst­samn­ingum frá 2005 þar sem þessi kostn­aður er ekki inni­fal­inn í póst­burð­ar­gjöld­unum sjálfum enda er skrán­ing mjög mis­jöfn milli landa,“ segir hann.

 Berjast gegn „ósann­gjörnum“ gjöldum

Af umræðum á Netinu má þó sjá að neyt­endur eru langt í frá með­vit­aðir um öll þessi auka­gjöld. Einn þeirra er rit­höf­und­ur­inn Þráinn Ber­tels­son sem vakti athygli á því að kostn­að­ur­inn við bók sem hann pant­aði að utan reynd­ist 40 pró­sentum hærri en reikn­ing­ur­inn frá bók­söl­unni sagði til um. Það var eftir að aðflutn­ings­gjöld, umsýslu­gjald og leit­ar­kostn­aður hafði bæst við. Þráinn furðar sig enn fremur á því hvers vegna bækur á raf­rænu formi lúta ekki sömu lög­málum.

„ … gott dæmi um skatt­heimtu hins opin­bera sem býr til allt of mik­inn kostnað og vesen miðað við hverju hún skilar í rík­is­sjóð.“

Fjöl­margir tjá sig við þessa færslu Þráins og segja svip­aða sögu af við­skiptum sínum á Netinu. Gylfi Magn­ús­son, hag­fræði­pró­fessor og fyrrum ráð­herra, segir þetta „gott dæmi um skatt­heimtu hins opin­bera sem býr til allt of mik­inn kostnað og vesen miðað við hverju hún skilar í rík­is­sjóð.“ Þessu mætti breyta á til­tölu­lega ein­faldan hátt með lögum þannig að ekki þyrfti að greiða gjöld ef verð­mætið er yfir til­tek­inni við­mið­un­ar­upp­hæð. Breki Karlsson, for­maður Neyt­enda­sam­tak­anna, leggur einnig orð í belg og segir sam­tökin margoft hafa bent á og mót­mælt þessum auka­gjöldum. Þau muni halda áfram að berj­ast gegn þessum og „öðrum ósann­gjörnum gjöldum sem sífellt er verið að varpa á herðar neyt­enda“.

Hvað raf­bæk­urnar varðar feng­ust þær upp­lýs­ingar frá Toll­stjóra að þær beri engin slík gjöld þar sem ekki er um inn­flutn­ing að ræða í skiln­ingi tolla­laga, þar eð engin vara kemur til lands­ins. Fyr­ir­tæki sem selja raf­bækur á Netinu verða hins vegar að standa skil á virð­is­auka til Rík­is­skatt­stjóra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag