Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Stefnir á 300 kg í samanlögðu fyrir fimmtugt

Silja Bára Ómars­dóttir, dós­ent í alþjóða­sam­skiptum við Stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands, hefur stundað kraft­lyft­ingar í fimm ár og seg­ist hafa ánetj­ast sport­inu. Hún æfir allt að fjórum sinnum í viku og segir að alltaf sé fjör á æfingum.

Stefnir á 300 kg í samanlögðu fyrir fimmtugt
Silja Bára Ómars­dóttir|||

„Ég var að hefja í dokt­ors­nám með vinnu og vissi að ég þyrfti að gæta þess að sinna lík­am­legri heilsu, sem hefur oft setið á hak­anum hjá mér. Ég spurð­ist fyrir um góðan einka­þjálf­ara og var bent á Ingimund í World Class á Sel­tjarn­ar­nesi. Stað­setn­ingin hent­aði vel, hann tók vel á móti mér og nú æfi ég þrisvar til fjórum sinnum í viku, klukku­tíma til tvo í senn,“ segir Silja Bára.

Kraft­lyft­ingar gefa Silju Báru mikið og henni líður vel í þessu sporti. „Ég hef keppt einu sinni, ég lof­aði sjálfri mér að ég myndi keppa eftir að ég skil­aði dokt­ors­rit­gerð­inni, svo ég tók þátt í bik­ar­móti haustið 2017.“ Mynd / Aldís Páls­dóttir

Stór hópur æfir með Kraft­lyft­inga­fé­lagi Reykja­víkur hjá Ingi­mundi og Silja segir sama á hvaða tíma hún mæti, alltaf sé skemmti­legt fólk á svæð­inu, flest konur, á öllum aldri og víða að, svo sé alltaf fjör á æfingum. „Oftast finnst mér hné­beygj­urnar skemmti­leg­astar, en það breyt­ist oft – ég hef verið að leggja áherslu á bekk­press­una og þar sem ég finn fram­far­irnar þar hef ég mjög gaman af þeim í augna­blik­inu.“
Silja hefur tekið 110 kg í rétt­stöðu­lyftu, 100 kg í hné­beygju og 55 kg í bekk­pressu og stefnir á að ná 60 kg núna í febr­úar. „Ég hef keppt einu sinni, ég lof­aði sjálfri mér að ég myndi keppa eftir að ég skil­aði dokt­ors­rit­gerð­inni, svo ég tók þátt í bik­ar­móti haustið 2017, um hálfum mán­uði eftir skil. Mark­miðið var ein­fald­lega að gera gildar lyftur, og það tókst – og ég var ekki síð­ust á mót­inu,“ segir hún bros­andi. „Lang­tíma­mark­miðið er að mig langar að ná 300 kg sam­an­lögðu fyrir fimm­tugt. Ég hef smá­tíma í það.“

„Ég var ekki viss um að ég gæti klárað dokt­ors­rit­gerð­ina fyrr en ég kláraði mína fyrstu 100 kg rétt­stöðu­lyftu.“

Sam­heldið sam­fé­lag
Kraft­lyft­ingar gefa Silju Báru mikið og henni líður vel í þessu sporti. „Ég hef aldrei verið fyrir hlaup gefin en þetta byggir upp þol og styrkir beinin. Ef þú ætlar ekki að meiða þig við að gera lyft­urnar vit­laust þá þarftu að vera á staðnum, svo ég skil vinn­una eftir í þessar 90 mín­útur eða svo sem ég er í lyft­inga­salnum. Svo er þetta mjög mæl­an­legt – ég veit hvort ég er að bæta mig milli vikna og mán­aða, sem er gott upp á mark­miða­setn­ingu og aðhald. Og ég full­yrði að ég var ekki viss um að ég gæti klárað dokt­ors­rit­gerð­ina fyrr en ég kláraði mína fyrstu 100 kg rétt­stöðu­lyftu,“ segir hún.

Silja Bára reynir einnig að mæta í jóga eða teygju­tíma einu sinni í viku, hún gengur oft­ast í vinnu og fer í sund af og til. Mynd / Aldís Páls­dóttir

Að auki reynir hún að mæta í jóga eða teygju­tíma einu sinni í viku, gengur oft­ast í vinnu og fer í sund af og til. Hún seg­ist líta upp til margra kvenna sem hún æfir með. „Sig­þrúður Erla og Dagmar, sem eru eldri en ég og keppa á heimsklassa eru algjörar fyr­ir­myndir, en almennt finnst mér bara gaman að vera í þessu sam­fé­lagi. Það var ein úr KFR að keppa á Reykja­vík International Games um dag­inn og ég held að við höfum verið að minnsta kosti 20 sem mættum til að hvetja hana áfram. Svo taka með­lim­irnir líka þátt í að byggja upp sportið, Hulda Elsa er til dæmis for­maður Kraft­lyf­inga­sam­bands Íslands og þegar félagið heldur mót mæta allir að leggja sitt af mörkum.“

„Ég hef stöku sinnum fengið tak í mjó­bakið og einu sinni eftir að ég datt á hjóli gat ég ekki verið mikið í hné­beygj­unum. Ef iðk­endur eru með­vit­aðir í hreyf­ing­unum virð­ist mér meiri líkur á að meiða sig við að missa lóð á tærnar en við æfing­arnar sjálfar.“ Mynd / Aldís Páls­dóttir

Meiri hætta á meiðslum við að missa lóð á tærnar
Hún segir að kraft­lyft­ingar henti mörgum. Fólk sem er alls konar í lag­inu með mis­mikð þol og styrk geti auð­veld­lega fetað sig áfram. „Ég myndi bara gæta þess að fara á nám­skeið eða vera með þjálf­ara því ef fólk gerir ekki lyft­urnar rétt er auð­velt að fara of geyst. Af og til reynir maður of mikið á sig, missir jafn­vægið kannski eða ein­beit­ing­una og þarf að kalla eftir aðstoð. Þess vegna er mik­il­vægt að vera ekki ein í salnum. Ég hef stöku sinnum fengið tak í mjó­bakið og einu sinni eftir að ég datt á hjóli gat ég ekki verið mikið í hné­beygj­unum. Ef iðk­endur eru með­vit­aðir í hreyf­ing­unum virð­ist mér meiri líkur á að meiða sig við að missa lóð á tærnar en við æfing­arnar sjálfar.“
Henni finnst gaman að sjá hvað sportið er að verða vin­sælt víða um land. „Litla frænka mín fyrir norðan var til dæmis að keppa á sínu fyrsta móti 16 ára gömul og er mjög efni­leg,“ segir Silja að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag