Grilluð svínarif með kryddblöndu og BBQ-sósu eru ómissandi hluti af grillmenningu margra ríkja í Bandaríkjunum, sérstaklega í Suðurríkjunum. Nálgunin á matinn er ólík eftir svæðum en alls staðar er þetta fingramatur sem er eilítið subbulegur en að sama skapi mjög skemmtilegt að borða.
Birtist upphaflega á eldri vef Mannlífs fyrir 7 árum.
Hér eru svínarifin nudduð með kryddblöndu, vandlega vafin inn í álpappír og elduð í ofni í nokkrar klukkustundir svo að rifin verði meyr og kjötið renni af beinunum. Rifin eru síðan kláruð á grillinu til að fá hinn óviðjafnanlega grillkeim.
Grilluð svínarif
Hægt er að forelda rifin deginum áður. Vefjið þeim þá vandlega inn í álpappír og geymið í kæli. Takið út og grillið þar til þau eru orðin heit í gegn og komin með fallega skorpu frá hitanum á grillinu.
1 msk. salt 1 msk. sinnepsduft 1 msk. paprikukrydd ½ tsk. chili-duft ½ tsk. malaður svartur pipar 1 hryggur grísarif, án krydds og marineringar 150 BBQ-sósa
1. skref Hitið ofn í 170°C og takið saman hráefnið. Mynd/Aldís Pálsdóttir Stílisti / Folda Guðlaugsdóttir
2. skref Blandið saman salti, sinneps-, papriku- og chili-dufti ásamt svörtum pipar í lítilli skál. Mynd/Aldís Pálsdóttir Stílisti / Folda Guðlaugsdóttir
3. skref Nuddið kryddblöndunni í rifin. Pakkið þeim síðan vandlega inn í álpappír, leggið í ofnskúffu og bakið í ofni í 2 ½-3 klst. eða þar til kjötið er orðið alveg meyrt. Mynd/Aldís Pálsdóttir Stílisti / Folda Guðlaugsdóttir
4. skref Takið rifin úr ofninum, fjarlægið álpappírinn og hellið kjötsafanum í skál. Blandið honum síðan saman við BBQ-sósuna. Látið rifin kólna. Mynd/Aldís Pálsdóttir Stílisti / Folda Guðlaugsdóttir
Mynd: Reynir Traustason
5. skref Hitið grillið að háum hita. Grillið rifin, snúið þeim reglulega og penslið með BBQ-sósunni, u.þ.b. 8-10 mín. Mynd/Aldís Pálsdóttir Stílisti / Folda Guðlaugsdóttir
6. skref Takið af grillinu og skerið rifin í sundur. Berið fram með meiri BBQ-sósu. Mynd/Aldís Pálsdóttir Stílisti / Folda Guðlaugsdóttir
BBQ-sósa
Það er mjög einfalt að búa til eigin BBQ-sósu og líklegt að flestir eigi nauðsynlegt hráefni til í skápunum hjá sér. Auðvelt er að leika sér með uppskriftina og bæta t.d. við chili-dufti eða chili-sósu fyrir þá sem vilja smávegis hita.
2 dl eplaedik 4 msk. sinnep 2 dl tómatsósa 1 tsk. salt 1 tsk. pipar 200 g púðursykur 5 hvítlauksrif, rifin með rifjárni 3-4 dropar liquid smoke, má sleppa
Setjið allt hráefnið í pott og hrærið saman. Náið upp hægri suðu og lækkið síðan hitann og látið malla í u.þ.b. 10 mín. eða þar til blandan þykknar og verður seigfljótandi.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir