Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Hægeldaðir lambaskankar á kartöflumúsarbeði með rótargrænmeti

Gómsæt upp­skrift sem henta vel í mat­ar­boð á haust­legum og nota­legum nótum.

Hægeldaðir lambaskankar á kartöflumúsarbeði með rótargrænmeti

Þegar mat­seð­ill er settur saman er gott að passa upp á að ekki þurfi að elda alla rétt­ina á sama tíma t.d. að allt sé steikt á pönnu eða allt eldað í ofni og upp­götva svo að ekki er nægt pláss í ofn­inum á ögur­stundu.  Hægeld­aðir réttir, eins og lambaskank­arnir, eru sér­stak­lega heppi­legir í mat­ar­boð því þá er nán­ast hægt að gleyma aðal­rétt­inum í ofn­inum á meðan for­réttur og eft­ir­réttur eru útbúnir. Vertu með for­drykk og lystauka, það gefur tón­inn fyrir kvöldið og eykur á stemn­ing­una. Dúkaðu borðið fal­lega, skreyttu með blómum og kveiktu á kertum og síð­ast en ekki síst settu góða tón­list á fón­inn!

Lambaskankar með grænmeti og kartöflumús

fyrir 4-6

Þegar eld­aðir eru skankar er gott að nota stóran pott­járn­spott eða steik­ar­pott með loki. Ef slíkur gripur er ekki til á heim­il­inu er hægt að brúna kjötið og steikja græn­metið fyrst á pönnu, setja síðan allt saman í djúpt eld­fast form og loka vel með álp­appír.

3 tsk. fenníku­fræ

2 tsk. kumm­in­fræ

2 tsk. engi­fer­duft

1-2 msk. ólífu­olía

4 lambaskankar

gróft sjáv­ar­salt

nýmal­aður svartur pipar

1-2 msk. olía til steik­ingar

10 rauðir perlu­laukar, afhýddir

8 gul­rætur, skornar gróft

3-4 hvít­lauks­geirar, saxaðir

1 kanil­stöng

4 dl kjöt­soð

1 dl rauð­vín

½-1 tsk. chili-flögur

börkur af ½ sítrónu

gróft sjáv­ar­salt

nýmal­aður svartur pipar

Hitið ofn í 120°C. Ristið fenníku­fræ og kumm­in­fræ á pönnu. Blandið saman við engi­fer­duft og olíu. Makið blönd­unni á skank­ana og látið standa í góða stund (jafn­vel í kæli yfir nótt). Hitið olíu í stórum potti sem má fara í ofn. Stráið salti og pipar á skank­ana og brúnið þá á pönn­unni. Takið þá af og setjið lauk, gul­rætur og kanil­stöng út á og steikið í nokkrar mín. Bætið hvít­lauk saman við og steikið áfram í 1-2 mín. Setjið þá skank­ana aftur í pott­inn ásamt rest­inni af hrá­efn­inu. Bætið salti og pipar út í eftir smekk. Setjið lok á pott­inn og eldið í u.þ.b. 4 klst.

Takið skank­ana var­lega upp úr pott­inum og sigtið soðið í pott. Þykkið það með sósu­jafn­ara og bragð­bætið með rauð­víni, salti og pipar og gjarnan slettu af hun­angi. Berið skank­ana fram með kart­öflumús, græn­met­inu úr pott­inum og sós­unni.

Kartöflu- og sellerírótarmús

u.þ.b. 700 g kart­öflur

½ stk. sell­er­í­rót

1-2 hvít­lauks­geirar, afhýddir

gróft sjáv­ar­salt

nýmal­aður svartur pipar

3-4 msk. smjör

80 g feta­ostur, mul­inn

hnefa­fylli stein­selja

½-1 dl mjólk/rjómi ef þarf

Afhýðið kart­öflur og skerið í grófa bita ef þær eru stórar. Afhýðið sell­er­í­rót og skerið í álíka stóra bita og kart­öfl­urnar. Sjóðið kart­öflur, sell­er­í­rót og hvít­lauks­geira í salt­vatni þar til kart­öfl­urnar og rótin eru soðin í gegn. Sigtið vatnið frá, bætið gjarnan meira salti við ásamt svörtum pipar og smjöri. Stappið saman og setjið feta­ost út í ásamt stein­selju. Bragð­bætið með salti og pipar eins og þarf og þynnið með rjóma eða mjólk ef þörf er á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni