Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Engin verður svikinn af „borgarferð“ til Akureyrar

Það verður engin svik­inn af „borg­ar­ferð“ til Akur­eyrar, þess­arar höf­uð­borgar Norð­ur­lands eins og hún er oft kölluð, því þar er allt til alls, matar- og lista­menn­ing auk margra íþrótta­fé­laga. Auð­veld­lega er hægt að eyða nokkrum dögum á Akureyri án þess að kom­ast yfir allt sem hún hefur upp á að bjóða.

Engin verður svikinn af „borgarferð“ til Akureyrar
Akureyri

Léttur rígur hefur alltaf ríkt á milli Reykja­víkur og Akur­eyrar en ég held að hann risti ekki djúpt. Sunn­an­menn hafa sína sér­stöðu og norð­an­menn sína en bæirnir eiga margt sam­eig­in­legt þrátt fyrir að hinn fyrr­nefndi hafi fleiri íbúa. Þeir sem koma fljúg­andi til Akur­eyrar missa ef til vill af hinu fagra Eyja­fjarð­ar­mynni, en hins vegar er flugið 40-45 mín­útur á meðan það er 5-6 tíma útsýni­ferð um landið okkar ef keyrt er. Leigu­bílar eru hins vegar ódýr­ari á Akureyri en í höf­uð­borg­inni því vega­lengdir eru styttri. Með­al­verð á ferð með leigu­bíl var um 1000-2000 kr. auk þess sem margt er göngu­færi ef gist er í mið­bænum eða nálægt honum.

Hin fal­lega Akur­eyr­ar­kirkja vekur strax athygli strax þegar komið er í mið­bæ­inn. Hún er gletti­lega lík Hall­gríms­kirkju, enda arki­tekt­inn sá sami, húsa­meist­ari rík­is­ins, Guðjón Sam­ú­els­son. Hann komst svo að orði við vígsl­una árið 1940 að Akur­eyr­ar­kirkja væri ,,lang­veg­leg­asta og feg­ursta kirkju­bygg­ing sem reist hefur verið af lút­erskum söfn­uði“. Og vissu­lega er hún glæsi­leg. Í fag­ur­skreyttum gluggum hennar má sjá sögu kristn­innar á Íslandi og þess vegna er hægt að mæla með að þramma upp tröpp­urnar og sjá dýrð­ina. Í mið­bænum er líf og fjör, búðir, bíó, versl­anir, fjöl­breyttir veit­inga­staðir og kaffi­hús. Gæðin eru oft­ast mikil á veit­inga­stöðum og verð­lagið svipað og í Reykja­vík.

Skemmtilegar íþróttir

Það er rík hefð fyrir fjöl­breyttu íþrótta­lífi á Akureyri. Hlíð­ar­fjall er nán­ast í mið­bænum og þar er gaman að skíða eða vera á snjó­bretti. Þá er til­valið að skella sér á skauta, í íshokkí eða krullu í Skauta­höll Akur­eyrar. Auk þess sem getið er að ofan eru hand­bolti og fót­bolti vin­sælar íþróttir og svo er auð­vitað sundið en það eru hvorki meira né minna en þrjár sund­laugar í bænum eða nágrenni hans. Þá má ekki heldur gleyma göngu- og hjól­reiðum í Kjarna­skógi.

Lista­safnið á Akureyri er yngsta lista­safn lands­ins. Hug­myndin að stofnun þess kom upp­haf­lega frá Jónasi Jónssyni frá Hriflu í blaða­grein sem hann skrif­aði árið 1960. Þrír ára­tugir liðu uns hug­myndin um Lista­safnið á Akureyri komst aftur í umræð­una og varð hún loks­ins að veru­leika á afmæl­is­degi bæj­ar­ins þann 29. ágúst 1993. Lista­safnið á Akureyri er til húsa þar sem áður var Mjólk­ur­sam­lag KEA en bygg­ingin er undir sterkum áhrifum frá Bauhaus-skól­anum og hinni alþjóð­legu funkís-hreyf­ingu. Lista­safnið á Akureyri er mið­punktur og sam­ein­ing­ar­tákn Lista­mið­stöðvar í Gróf­ar­gili.

Lista­safnið hýsti áður Mjólk­ur­sam­lag KEA en hefur nú fengið nýtt hlut­verk.

Lista­safnið á Akureyri leggur áherslu á að virkja sem flesta til þátt­töku, að fræða almenn­ing um sjón­listir og efla umræðu um sam­fé­lagið, menn­ingu og listir þar sem safn­kennsla og fyr­ir­lestra­hald skipar stóran sess. Þá er einnig lögð áhersla á sam­starf við erlenda aðila, ekki hvað síst á Norð­ur­löndum. Safnið leit­ast við að setja upp árlega nokkrar metn­að­ar­fullar sýn­ingar til að efla menn­ing­ar­líf bæj­ar­ins, auka við þekk­ingu, áhuga og efla skiln­ing á sjón­listum.

Listfengir Akureyringar

Minja­safnið á Akureyri geymir  muni og ljós­myndir sem tengj­ast lifn­að­ar­háttum fyrri tíma í Eyja­firði og á Akureyri. Í sýn­ingum er leit­ast við að gera sögu fjarð­ar­ins skil á sem bestan hátt til fróð­leiks og ánægju fyrir safn­gesti. Í safn­inu eru bæði grunn­sýn­ingar sem rekja sögu hér­aðs­ins og Akur­eyrar og þar virð­ist fyr­ir­tækið KEA hafa marga þræði í hendi sér og vera allt í öllu. Þá eru eru skamm­tíma­sýn­ingar um ýmis efni. Sól­ar­hringskort á Minja­safnið, í Nonnahús, Dav­íðs­hús og Laufás kostar 2000 kr.

Ekki hægt að sleppa umfjöllun um hið fal­lega Hof, menn­ing­ar­hús Akur­eyrar og nágrennis, en þar eru ávallt fjöl­breyttir við­burðir. Ég naut söngs Andreu Gylfa­dóttur og djas­stríós hennar og auð­vitað má ekki gleyma Leik­fé­lagi Akur­eyrar, sem alltaf er með spenn­andi og skemmti­legar sýn­ingar.

Rithöfundum gert hátt undir höfði

Dav­íðs­hús er hús Davíð Stef­áns­sonar skálds frá Fagraskógi og stendur við Bjark­ar­stíg 6. Eftir lát Davíðs ánöfn­uðu erf­ingj­arnir bóka­safni og inn­an­stokks­munum og upp­haf­lega átti að koma hvoru tveggja fyrir á Amt­bóka­safn­inu en nokkrir vinir Davíðs efndu þá til lands­söfn­unar og húsið var keypt og afhent Akur­eyr­arbæ til umsjónar. Þar var opnað safn á efri hæð og íbúðin varð­veitt eins og hann skildi við hana. Bókasafn Davíðs var eitt merkasta bóka­safn lands­ins í einka­eigu og þar er að finna fágæt lista­verk eftir vini skálds­ins. Safnið er aðeins opið yfir sum­ar­tím­ann en heima­síða safns­ins er: minja­safnid.is.

Nonnahús er bernsku­heim­ili Jóns Sveins­sonar, Nonna, rit­höf­undar sem samdi hinar vin­sælu bækur um Nonna og Manna. Ármann var yngri bróðir höf­undar en hann lést langt fyrir aldur fram úr berklum. Nonni var kenn­ari en vegna veik­inda hætti hann kennslu í Danmörku og sneri sér þá að því að skrifa Nonna­bæk­urnar sem alls urðu 12 og voru þýddar á 30-40 tungu­mál og gefnar út í millj­ónum ein­taka. Þær fóru því jafn­víða og höf­und­ur­inn sjálfur sem ferð­að­ist um heim­inn og hélt um 5000 fyr­ir­lestra í ótal löndum. Árið 1930 var Jón gerður að heið­urs­borg­ara Akur­eyrar. Bernsku­heim­ili hans hefur nú verið gert að safni en Nonnahús er eitt af elstu húsum bæj­ar­ins, byggt um 1850 og er dæmi­gert fyrir kaup­stað­ar­heim­ili fyrri tíma. Safnið er opið yfir sum­ar­tím­ann en þó er hægt að fara þangað að vetr­ar­lagi en þá er engin leið­sögn.

Fallegt leir­tau í fal­legri umgjörð í Nonna­húsi.

Matthías Jochumsson er senni­lega lang­þekkt­astur fyrir text­ann við þjóð­söng okkar Íslend­inga, Ó Guð vors lands, en honum var fleira til lista lagt. Hann var einnig prestur,  blaða­maður og rit­stjóri. Matthías leit alltaf að starf blaða­manns­ins sem fræðslu­starf og til að hvetja til hvers konar dreng­skapar. Hann var rit­stjóri Þjóðólfs um tíma og síðar Lýðs á Akureyri. Hann var dug­andi í stjórn­mála­bar­áttu en vildi láta anda mann­úðar, víð­sýni og friðar göfga allan lands­lýð. Hús hans, Sig­ur­hæðir, er til sýnis á sumrin.

Texti / Unnur Hrefna Jóhanns­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur