Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Var þriggja ára þegar móðir hennar yfirgaf fjölskylduna

Lilja Odds­dóttir er alin upp á sveitabæ í Kjósinni, yngst af sex systk­inum. Hún er sveita­stelpa inn við beinið og segir nátt­úr­una hafa bjargað sér í upp­vext­inum því þangað leit­aði hún í vellíðan ef henni leið ekki nógu vel. Þegar Lilja var þriggja ára yfir­gaf móðir hennar heim­ilið, eig­in­mann og sex börn og kom aldrei aftur. Lilja segir móð­ur­miss­inn hafa mótað allt hennar líf og skilið eftir gap­andi sár sem hún hafi unnið með að láta gróa.

Var þriggja ára þegar móðir hennar yfirgaf fjölskylduna

„Mamma var 48 ára þegar ég fædd­ist og pabbi var 59 ára en eftir fæð­ingu mína fékk hún fæð­ing­ar­þung­lyndi. Mamma mín var mild kona að upp­lagi en aðstæður og ósætti á bæj­unum voru þannig að hún var upp­gefin á lík­ama og sál, gat ekki meir og fór á burt. Pabbi var ætt­aður úr þess­ari sveit en mamma var úr Dýra­firði og fór þangað þegar ég var þriggja ára og kom ekki aftur til okkar,“ útskýrir Lilja og segir frá því að systur hennar hafi gengið henni í móð­ur­stað.

„Seinna varð mér ljóst að þessar til­finn­ingar höfn­unar höfðu djúp­stæð áhrif á mig. Mér fannst ég yfir­gefin og einskis virði sem barn. Að mamma fór frá okkur, varð verk­efni sem ég hef unnið með allt mitt líf. Ég held að ég sé búin að prófa allar með­ferðir sem til eru, til þess að hjálpa mér að láta hjarta­sár mitt gróa.

„Seinna varð mér ljóst að þessar til­finn­ingar höfn­unar höfðu djúp­stæð áhrif á mig.“

Móðurást skipti mig svo miklu máli. Að fá ekki að njóta umhyggju frá móður minni sem barn, setti tóma­rúm í mig. Pabbi fyllti ekki upp í þetta hjarta­rúm, hann var ekki af þeirri kyn­slóð­inni, honum fannst nóg að halda í hönd­ina á mér stöku sinnum og lesa Íslend­inga­sögur fyrir mig enda var nóg að gera á bænum og verk að vinna. Mér leið best þegar ég var send ein út með kýrnar og sat í tún­inu, mitt í nátt­úr­unni. Ég fann sterka teng­ingu við nátt­úr­una frá fyrstu tíð. Pabbi kenndi mér að planta trjám og virða nátt­úr­una, fyrir það er ég mjög þakk­lát.“

Lilja segir til­finn­ingar sínar ekki hafa fengið að þroskast eðli­lega í upp­vext­inum að mati hennar og að hún hafi ósjálfrátt leitað að við­ur­kenn­ingu frá öðrum og ást.

Viðtalið við Lilju er að finna í 29. tölu­blaði Vikunnar.

„Þegar maður kemur úr svona til­finn­inga­löskuðum upp­vexti þá verður maður svo með­virkur. Í minn­ing­unni finnst mér ég hafa verið alin upp við þögn, til­finn­ingar voru ekki ræddar, það var bara haldið áfram á hörkunni. Innri röddin er verst og maður verður að losa sig við alla innri dóma því maður dæmir sjálfan sig mest. Aðrir dæma mann ekki svona hart og eru yfir­leitt ekki að hugsa nei­kvætt til manns eins og maður gerir sjálfur. Fólk dæmir sjálft sig harð­ast og kannski sér­stak­lega konur. Innri röddin getur blekkt okkur illa ef hún er ekki með okkur í liði.“

Lilja kynnt­ist mömmu sinni svo á full­orð­ins­árum. „Ég hef aldrei dæmt hana fyrir það sem hún gerði, þetta var bara svona. Það hefur örugg­lega ekki verið létt fyrir hana að yfir­gefa börnin sín og hún hefur þurft hug­rekki til þess,“ segir Lilja meðal ann­ars um móður sína í við­tal­inu.

Lestu þetta áhuga­verða við­tal við Lilju í heild sinni í 29. tölu­blaði Vikunnar.

Tryggðu þér áskrift að Vikunni í vef­verslun

Umsjón / Marta Eiríks­dóttir
Myndir / Hákon Davíð Björns­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur