Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Áfall við heimkomu

Áfall við heimkomu

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Við hjónin bjuggum erlendis í nokkur ár og þegar við fluttum heim aftur hóf sonur okkar nám í átta ára bekk. Ekki átti ég von á öðru en drengurinn fengi góða hjálp í skólanum en sú varð sannarlega ekki raunin og það varð okkur óvænt áfall.

Grétar, sonur okkar, var á öðru árinu er við fluttum út. Hann var byrj­aður að tala heil­mikið en sneri sér alfarið að nýja tungu­mál­inu og neit­aði að tala íslensku. Það var eins og hann gæti bara ein­beitt sér að einu tungu­máli í einu og ef við reyndum að þröngva honum til að tala móð­ur­málið þagði hann bara. Við vissum að þetta myndi breyt­ast þegar við flyttum heim aftur en það var alltaf ætl­unin. Við hjónin stund­uðum bæði nám ytra og ég vann um tíma eftir að námi mínu lauk sem var styttra en nám manns­ins míns. Við kunnum mjög vel við okkur og gældum við þá hugsun að búa þarna áfram í ein­hver ár eða lengur en okkur lang­aði bæði heim og hlökk­uðum mikið til að flytja. Bæði vorum við komin með fína vinnu og búin að inn­rita Grétar í grunn­skóla.

Við fluttum heim í ágúst, eða um leið og við fengum hús­næðið okkar. Það var bara til bráða­birgða og í úthverfi í Reykja­vík. Grétar var nán­ast algjör­lega mál­laus á íslensku en var jákvæður að byrja að tala hana eftir flutn­ing­ana. Ekki grun­aði okkur að hann þyrfti á sér­tækri aðstoð að halda, ekk­ert slíkt kom í ljós ytra og hann var mjög ánægður í skól­anum. Mér fannst þó alltaf svo­lítið skrítið að hann skyldi ekki geta talað tvö tungu­mál, þetta var eitt­hvað meira en þrjóska hjá honum. Ég var þó von­góð um að hann fengi aðstoð í skól­anum eins og um erlendan nem­anda væri að ræða.

Vonir mínar rætt­ust ekki, Grétari gekk illa í skól­anum og fékk mun minni hjálp en ég átti von á. Hann virt­ist tapa á því að vera íslenskur og komið var fram við hann eins og hann hlyti að kunna íslensku upp á hár, báðir for­eldrar íslenskir og hvað­eina. Ekkert var gert til að hjálpa honum að aðlag­ast og eign­ast vini. Krakk­arnir í skól­anum fóru að stríða honum en eina aðferðin sem Grétar kunni til að bíta frá sér var að slást. Hann lenti nán­ast dag­lega í slags­málum og var vissu­lega erf­iður en við­mótið sem hann fékk í skól­anum gerði ekk­ert annað en að auka á erf­ið­leik­ana. Ekki var hlustað á mig þegar ég bað um að honum yrði hjálpað. Hann féll illa inn í kerfið í skól­anum og fyrst hann gat ekki aðlagað sig vildi skól­inn ekk­ert gera fyrir hann. Það var að minnsta kosti mín upp­lifun. Kenn­ar­inn hans leit á hann sem vanda­mál, ekki lít­inn dreng sem þyrfti á miklum stuðn­ingi að halda.

Einelti kennarans

Vand­ræðin hófust þó fyrir alvöru nokkrum mán­uðum seinna þegar við fluttum og Grétar þurfti að skipta um skóla. Ég batt miklar vonir við að nýi skól­inn yrði betri, ég vissi að skóla­yf­ir­völd þar hreyktu sér af því að taka vel á móti nýbúum. En eins og í hinum skól­anum virt­ist sonur minn tapa á því að vera íslenskur og  eiga í erf­ið­leikum með að tala móð­ur­mál sitt.

Fyrstu tvær ann­irnar í þessum skóla voru algjör hryll­ingur, Grétar lenti sífellt í ein­hverjum vand­ræðum og ég var enda­laust kölluð í við­töl í skól­ann vegna  hans. Eitt skiptið þegar ég mætti í við­tal sá ég uppi á vegg í stof­unni lista yfir börnin í bekknum og mis­margar stjörnur fyrir aftan hvert nafn. Mér til undr­unar sá ég hvergi nafn sonar míns á þessum lista og spurði kennar­ann hans af hverju hann hefði ekki fengið neinar stjörnur. Hann svar­aði því til að það tæki því ekki, Grétar hefði ekki einu sinni unnið til þess að kom­ast á list­ann. Þetta fannst mér illa gert og ekk­ert annað en ein­elti í garð drengs­ins.

„… og spurði kennar­ann hans af hverju hann hefði ekki fengið neinar stjörnur. Hann svar­aði því til að það tæki því ekki.“

Þessi kenn­ari, ung kona, skildi ekki þótt ég reyndi eftir fremsta megni að útskýra að svona gerði maður ekki við nem­endur sem ættu í erf­ið­leikum, það myndi áreið­an­lega virka mjög hvetj­andi fyrir þá að vera ofar­lega á lista og fá margar stjörnur fyrir við­leitn­ina þótt vinnu­brögðin væru kannski ekki upp á sitt besta. „Nei, ekki hjá mér,“ sagði kenn­ar­inn og sneri upp á sig. Ekki skrítið þótt sonur minn hafi misst áhug­ann á nám­inu hjá þess­ari konu.

Strok úr viðveru

Við hjónin unnum mikið á þessum tíma, það var dýrt að lifa, leigan há, við stefndum á að kaupa okkur íbúð og byrj­uðum að safna pen­ingum inn á reikn­ing. Eftir á að hyggja er ég mjög ánægð með að 100% lánin hafi ekki verið í boði þá því það hefði verið eitt­hvað sem við hefðum stokkið á.

Við létum fátt eftir okkur en borg­uðum með gleði fyrir við­veru eftir skóla fyrir Grétar. Þar gæti hann mögu­lega eign­ast vini og þyrfti ekki að vera einn heima þar til við for­eldrar hans kæmum heim úr vinn­unni.

Grétar var hrif­inn af við­ver­unni í fyrstu og við hjónin vorum alsæl en sú sæla stóð ekki lengi. Honum fór að líða illa þar eins og í skól­anum.

Grétar hafði náð að ving­ast við dreng í við­ver­unni en það var engu lík­ara en að konan sem var yfir þar reyndi að stía þeim í sundur, miðað við það sem Grétar sagði okkur. Enn skil ég ekki ástæðu þess.

Grétar stakk nokkrum sinnum af úr við­ver­unni og þá fékk ég sím­töl frá mæddri kon­unni sem sagð­ist vera að gef­ast upp á drengnum. Ég spurði hana hvort hann væri óþæg­ari en hinir krakk­arnir. Nei, kannski ekki endi­lega, þetta væri skraut­legur hópur en Grétar væri samt erf­iður, sagði hún.

Ég fór einu sinni í við­tal til hennar þar sem átti að ræða þessi vand­ræði en því miður komst mað­ur­inn minn ekki með. Konan tal­aði mikið um hegð­un­ar­erf­ið­leika Grétars og að hann virt­ist oft vera óham­ingju­samur. Hvort það gæti verið að hann fengi ekki næga athygli á heim­il­inu? Kannski þyrfti bara að sinna honum betur. Ég leyfði henni að mala, enda varð ég orð­laus af undrun en svo lét ég heyra í mér. Ég sagði henni að Grétar fengi nóg af ást og umhyggju heima, vanda­málið lægi ekki á heim­il­inu, heldur í skól­anum. Og ég varð að bæta því við, í við­ver­unni þar sem honum liði greini­lega illa. Ekki löngu seinna létum við hann hætta í við­ver­unni, ég var ófrísk að yngra barn­inu og hafði þurft að hætta að vinna fyrr en ella vegna veik­inda á með­göngu. Grétar var mjög sáttur við þessa breyt­ingu.

Greining

Þegar Grétar var tíu ára fórum við með hann til geð­læknis. Við vorum orðin ráða­laus og ástandið versn­aði bara. Því miður var þetta læknir sem hafði trölla­trú á því að lyf lækn­uðu allt. Hann virt­ist lít­inn áhuga hafa á því að vita hvað raun­veru­lega amaði að og greindi hann sam­stundis með ADHD. Lítill frændi minn hafði fengið slíka grein­ingu og ég þekkti fleiri börn með ADHD og fannst sonur minn ekki líkj­ast þeim á nokkurn hátt þótt hann væri með hegð­un­ar­vanda­mál. Lækn­ir­inn hlust­aði ekki þótt ég segði að vanda­málin hefðu fyrst haf­ist þegar hann byrj­aði í skóla á Íslandi og hefði orðið fyrir ein­elti. Dreng­ur­inn sýndi líka allt aðra hegðun inni á heim­il­inu og var ljúfur og með­færi­legur en allt kom fyrir ekki. Það end­aði með því að ég sagði lækn­inum að því miður hefði ég enga trú á þess­ari grein­ingu og við það sat, barnið fór ekki á lyf við ADHD.

Við gáf­umst þó ekki upp við að leita frek­ari hjálpar og töl­uðum við fleiri sér­fræð­inga. Grétar var greindur með vott af athygl­is­bresti af völdum streitu í skólaum­hverfi hans. Einnig kom í ljós að hann var les­blindur.

„Við gáf­umst þó ekki upp við að leita frek­ari hjálpar og töl­uðum við fleiri sér­fræð­inga. Grétar var greindur með vott af athygl­is­bresti af völdum streitu í skólaum­hverfi hans.“

Okkur var ráð­lagt af fag­manni að láta hann skipta um skóla og það gerðum við. Það pass­aði vel því stutt var í að við fengjum afhenta íbúð­ina okkar, reyndar leigu­í­búð en hún var til lang­frama og í drauma­hverf­inu okkar.

Grétar var settur í sér­deild í nýja skól­anum. Hann fékk góða kennslu þar en þurfti að auki sér­staka lestr­ar­kennslu hjá sér­fræð­ingi sem við þurftum að greiða fyrir. Hann sýndi gíf­ur­lega miklar fram­farir á stuttum tíma. Við höfðum því miður ekki efni á því að greiða fyrir nema fimmtán skipti því fjár­hags­legar aðstæður okkar voru slæmar á þessum tíma og hver tími dýr. Ég var tekju­laus heima með lítið barn og lengi óvinnu­fær vegna veik­inda sem hófust á með­göngu.

Þótt Grétari gengi betur og yrði læs á skömmum tíma hafði svo margt slæmt gerst í skóla­göngu hans að það virt­ist vera óbæt­an­legt. Enn gekk honum illa að eign­ast vini og alltaf var eitt­hvert ein­elti í gangi sem virt­ist erfitt að upp­ræta.

Gjörbreyting

Við tókum þá ákvörðun, aðeins nokkrum árum eftir að við fluttum heim, að flytja aftur út á sama stað og við bjuggum áður. Ég vissi að ég ætti eftir að sakna vina og ætt­ingja mikið og ekki yrði víst að við hefðum það svo miklu betra ytra. En við vissum að Grétar fengi betri þjón­ustu í skól­anum og það réð úrslitum.

Grétar varð ofsaglaður þegar við sögðum honum frá því að við ætl­uðum að flytja og til að gera langa sögu stutta hefur honum gengið allt í hag­inn síðan hann komst „heim“. Í skól­anum ytra var unnið mikið með hann og allir voru svo góðir við hann, jafn­vel þótt hann hegð­aði sér ekki alltaf vel. Smám saman breytt­ist það, hann hætti að vera í sífelldri vörn og fór að treysta fólki. Hann eign­að­ist tvo góða vini sem eru enn í dag bestu vinir hans.

Skóla­ganga Grétars varð ekki löng, mögu­lega vegna erf­ið­leik­anna á Íslandi, en hann kláraði sitt með sóma og fór svo út á vinnu­mark­að­inn. Hann er góður og sam­visku­samur starfs­kraftur og nýlega var hann gerður að verk­stjóra, sem hann átti fylli­lega skilið. Hann er fluttur að heiman og far­inn að búa með kærust­unni. Hann talar íslensk­una ágæt­lega þótt hitt málið sé honum tamara en ég átti alveg eins von á því að hann týndi móð­ur­mál­inu niður aftur eftir að við fluttum.

Við hjónin erum virki­lega ánægð með lífið þó að við finnum alltaf fyrir heim­þrá annað slagið. Ég fékk bót meina minna með tím­anum og góðri hjálp sjúkra­þjálf­ara og hef getað unnið úti og við höfum það ljóm­andi gott. Mér finnst ólík­legt að við flytjum heim úr þessu, nema þá kannski í ell­inni. Þótt ég sé sátt og ham­ingju­söm fyllist ég stundum reiði þegar ég hugsa út í það hvernig Grétar var svik­inn af íslenska skóla­kerf­inu um þau tæki­færi sem hann átti fullan rétt á, bara vegna þess að hann pass­aði ekki í eitt­hvert mót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur