Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Allt öðruvísi ferð en allar aðrar

Steinunn Harð­ar­dóttir hefur staðið fyrir göngu­ferðum víða í Evrópu síðan 1996, gengið með hópa um fjöll og firn­indi á Majorku, Ítalíu í Pírenea­fjöll­unum og víðar undir nafn­inu Göngu-Hrólfur. Ein göngu­leið stendur þó upp úr í hennar huga; píla­gríms­ganga til Rómar þar sem gengið er í fót­spor Niku­lásar ábóta á Munka­þverá.

Allt öðruvísi ferð en allar aðrar

„Ég hef verið með þessar píla­gríma­göngur á heil­anum síðan um alda­mótin,“ segir Steinunn. „Þá fékk ég þær upp­lýs­ingar frá ítölskum leið­sögu­manni að þetta væri þekkt leið meðal þeirra sem þekktu til píla­gríma­leiða í Evrópu. Ég er með kort þar sem sýndar eru leiðir, til dæmis Via Francigena, sem er leiðin sem liggur frá Kant­ara­borg og svo er það Muna­þver­ár­leiðin sem er leiðin sem Nikulás ábóti gekk frá Íslandi til Rómar og síðan til Jer­úsalem um 1150. Nikulás lýsti leið­inni svo vel í rit­inu „Leið­ar­lýs­ing og borg­ar­skipu­lag“ að hægt er að fylgja henni enn í dag og hún er mikið gengin. Ég skamm­að­ist mín fyrir að láta ítalskan leið­sögu­mann kenna mér íslenska sögu, kynnti mér málin og komst að því að auk Niku­lásar og Guðríðar Þor­bjarn­ar­dóttur sem margir vita að gekk til Rómar, voru íslensku Róm­ar­far­arnir svo margir að Páll Jónsson biskup sem dó 1211 á að hafa sagt að það þyrfti að draga úr suð­ur­göngum presta þar sem það væri að verða kenni­manna­laust í land­inu.“

„Ég skamm­að­ist mín fyrir að láta ítalskan leið­sögu­mann kenna mér íslenska sögu…“

Spurð hvort slíkar píla­gríma­göngur séu ekki trú­ar­legs eðlis neitar Steinunn því. „Þetta hefur ekk­ert með trú að gera,“ segir hún.

Mynd / Aðsend

„Ég er hins vegar orðin dálítið trúuð á þessar leiðir. Til­finn­ingin að vera að ganga í fót­spor þessa fólks sem gekk þarna í gegnum árhund­ruðin er orðin dálítið ávana­bind­andi. Ég gekk til dæmis frá Þing­völlum í Skálholt í nokkur ár en það var á sama hátt alveg óháð krist­inni trú. Það er bara svo heill­andi að ganga svona og hafa sög­una sem bak­grunn.“

Ferðalag í tíma og rúmi

Steinunn hefur skipu­lagt píla­gríms­göngu frá Montefiascone til Rómar, sem er um hund­rað kíló­metra leið, en auk þess hefur hún gengið píla­gríma­leið­ina frá Lucca til Siena, sem er hluti af leið­inni til Rómar og þá leið var fyrsta nútímapíla­gríma­ferðin gengin árið 1913. Hvað er það sem gerir þessar göngur svona heill­andi og sér­stakar að hennar mati?

„Píla­gríma­göng­urnar voru nátt­úr­lega ferða­þjón­usta síns tíma, það þurfti auð­vitað að veita öllum þessum píla­grímum sem röltu þarna niður eftir þjón­ustu. Ég tek það fram að þessar ferðir eru ekki fjall­göngur, þetta er frekar slétt lands­lag, en hitt allt saman vegur upp á móti því.

Það er bæði þetta sem ég lýsti áðan, að ganga í fót­spor for­feðr­anna og svo að ganga í gegnum þetta sögu­ríka lands­lag á Ítalíu,“ útskýrir hún. „Ég er búin að ganga út um allt síðan 1996 og hef upp­lifað margt stór­kost­legt en þessar ferðir eru allt öðru­vísi en allar aðrar. Í fyrstu ferð­inni sem ég fór árið 2017 var líka annarri vídd bætt við upp­lifun­ina af leið­sögu­mann­inum, Magnúsi Jónssyni sagn­fræð­ingi sem og því hvernig hann mat­reiddi sög­una ofan í okkur. Ég hef þekkt Magnús lengi og farið í fjöl­margar göngur með honum um íslenskar sögu­slóðir en þarna topp­aði hann sig.

Mynd / Aðsend

Á hverjum degi fengum við fróð­leik um einn eða fleiri Íslend­inga sem fóru til Rómar á mið­öldum. Við veltum fyrir okkur hvenær kirkjur sem við heim­sóttum voru byggðar og hvort til dæmis Nikulás, Guðríður Þor­bjarn­ar­dóttir eða Sturla Sig­hvats­son hafi séð þær. Litlu mið­alda­bæ­irnir sem við gistum í og fórum um voru lítið breyttir frá því þeir höfðu gegnt mik­il­vægu hlut­verki fyrir píla­gríma mið­alda og götur voru jafn­vel nefndar eftir þeim. Það var líka sér­stakt að halda alltaf áfram, ganga frá einum bænum í annan gegnum fjöl­breytt menn­ing­ar­lands­lagið. Við fórum eftir Via Cassia sem er frá því fyrir Krist, skoð­uðum róm­verskan leik­vang  og graf­hýsi sem voru grafin inn í mjúka móbergs­kletta og heim­sóttum safn með ein­stökum munum frá tímum Etrúska. Þannig var þetta ferða­lag bæði í tíma og rúmi og allur hóp­ur­inn lifir sig inn í stemn­ing­una.“

Steinunn á heldur ekki nógu sterk lýs­ing­ar­orð til að lýsa þeirri upp­lifun að ganga inn í ýmis þorp á leið­inni sem hún segir lítið hafa þró­ast og það sé eins og ganga inn í mið­aldir að koma þar.

„Sum þorpin eru flott, eins og San Gimignano sem er nátt­úr­lega orð­inn túrista­bær,“ segir hún. „En önnur þorp sem standa uppi á hæðum hafa mjög lítið breyst, þar eru píla­grímagatan og gömlu gisti­húsin enn við lýði. Píla­gríma­göng­urnar voru nátt­úr­lega ferða­þjón­usta síns tíma, það þurfti auð­vitað að veita öllum þessum píla­grímum sem röltu þarna nið­ur­eftir þjón­ustu. Ég tek það fram að þessar ferðir eru ekki fjall­göngur, þetta er frekar slétt lands­lag, en hitt allt saman vegur upp á móti því. Maður er bara að ganga og njóta þess að ganga nán­ast í gegnum alla menn­ing­ar­sögu Vest­ur­landa, alveg frá Etrúskum og Róm­verjum þannig að þetta er mjög djúp reynsla. Þegar ég fer til dæmis í Pyr­enea­fjöllin og labba þar um þá er engin saga í kringum mig, bara fjalla­stígar og feg­urð, sem er auð­vitað ynd­is­legt og æðis­legt, en það hafa sög­una á hverju strái bætir við nýrri vídd.“

Ekki komin með Sturlukomplexinn

Spurð hvort það hafi ekki verið hluti af yfir­bót píla­grím­anna á sínum tíma að ganga þessa leið ber­fættir segir Steinunn þá skoðun á dálitlum mis­skiln­ingi byggða.

„Nei, fólk þurfti ekki að vera ber­fætt,“ segir hún. „Þegar það kom til Rómar átti það að ganga milli höf­uð­kirkn­anna, sem eru fimm til­teknar kirkjur, en í okkar ferðum höfum við beygt það ritúal svo­lítið og valið þrjár kirkjur til að ganga á milli og ímynda okkur að við séum að loka píla­gríma­göngu með því að ganga milli höf­uð­kirkna.“

Spurð hvort þau taki þetta kannski alla leið í fót­spor for­feðr­anna og láti húð­strýkja ein­hvern þátt­tak­end­anna fyrir utan eina kirkj­una svarar Steinunn hlæj­andi að þau gangi reyndar ekki svo langt.

Aðsend mynd

„En, jú, jú, það var gert við Sturlu Sig­hvats­son þegar hann var að gera yfir­bót­ina,“ segir hún. „Og fólk gat ekki hamið sig fyrir sorg yfir því að svona fal­legur maður væri svona illa leik­inn. En hann ofmetn­að­ist nátt­úr­lega og kom heim og hélt hann gæti stjórnað Íslandi eftir að hafa fengið afláts­bréf frá páfa. Ég er ekki enn komin með þann komp­lex en það er aldrei að vita hvað ger­ist, ég er nátt­úru­lega komin með þennan komp­lex að finna nýjar leiðir. Mér finnst svo leið­in­legt að allir skuli vita af Santiago de Compostela, þótt auð­vitað sé ekk­ert að því að fólk þekki, en nán­ast eng­inn viti um þessa íslensku píla­gríma­leið sem allir íslenskir píla­grímar fóru, meira að segja þeir tveir Íslend­ingar sem fóru til Santiago á þessum tíma fóru líka til Rómar, þannig að þetta er svo djúpur þáttur í okkar sögu og ég er mjög mikið fyrir það að skoða ræt­urnar.“

Ferðinni lýkur svo með því að skundað er á skrif­stofu páfa og gegn fram­vísun á stimplum því til sönn­unar að fólk hafi gengið leið­ina fær það við­ur­kenn­ing­ar­skjal eða afláts­bréf páfa. En getur hver sem er farið í þessar ferðir, er ekki skil­yrði að fólk sé sæmi­lega vel á sig komið til að taka þátt í svona langri göngu­ferð?

„Nei, ég hef einmitt lagt áherslu á að allir geti gert þetta,“ segir Steinunn ákveðin. „Þetta er ekki eins og píla­gríma­gangan til Santiago de Compostela, þar sem gengnir eru kannski þrjá­tíu kíló­metrar á dag, heldur er áherslan á að ganga í gegnum þetta sögu­lega lands­lag á Ítalíu þannig að við erum alltaf með bíl með okkur sem getur tekið fólk upp í ef það er orðið þreytt eða eitt­hvað kemur upp á. Þannig að fólk sem er kannski ekki til­búið að ganga tutt­ugu til tutt­ugu og fimm kíló­metra getur samt komið með vit­andi að bíll­inn mun bjarga því.“

Næsta píla­gríma­ganga til Rómar verður í októ­ber en í hana er löngu upp­selt og verið er að hefja sölu á ferð næsta ár. Fjöldi þátt­tak­enda er mjög tak­mark­aður í hverja ferð og það helg­ast ekki síst af fram­boði á gisti­rými á leið­inni.

Myndir / Hákon Davíð Björns­son og úr einka­safni 

Tryggðu þér áskrift að Vikunni í vef­verslun

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur