Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Stór mistök að falla fyrir giftum manni

Stór mistök að falla fyrir giftum manni

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Þegar ég sá Gunnar í fyrsta skipti á nýja vinnu­staðnum mínum var ég ákveðin í næla í hann og gera hann að mínum. Ég var ein­hleyp og hafði engu að tapa. Ég sé það núna að þetta voru ein mestu mis­tök í mínum ásta­málum. Að falla fyrir giftum manni í vinn­unni. Þó að ég hafi síðar kom­ist að breyttum aðstæðum hans, var ég svo vit­laus að hlusta ekki á orð hans og taka mark á hans til­finn­ingum. Ég veit núna hvað ég gerði rangt.

Ég var rétt búin að halda upp á 25 ára afmælið mitt með pompi og prakt þegar ég byrj­aði að vinna í mark­aðs­deild­inni í bank­anum. Lang­þráður draumur var að ræt­ast og ekki nóg með það, heldur var ég líka nýút­skrifuð úr mark­aðs­fræði frá Háskóla Íslands, þar sem ég nældi mér í fyrstu ein­kunn, þá bestu! Já, það var sko klappað fyrir mér þegar nafn mitt var lesið upp á svið­inu í útskrift­inni í sjóð­heitri Laug­ar­dals­höll­inni í sum­ar­byrjun. Ég hefði varla getað verið stolt­ari af sjálfri mér. Satt að segja fannst mér leið­in­leg­ast að það var eng­inn kær­asti, eng­inn karl­maður í mínu lífi sem tók stoltur á móti mér með kossi þegar ég kom niður af svið­inu. En ég var orðin vön því að upp­lifa svona hluti í faðmi fjöl­skyld­unnar.

Ég var búin að vera ein­hleyp í nokkur ár. Hafði þó farið á nokkur stefnu­mót sem skildu lítið eftir. Frekar mikil tíma­sóun að eyða kvöld­stund með manni sem maður veit um leið og augu manns líta á hann að hann er ekki sá rétti. Þá hefði ég alveg eins getað verið heima og horft á Grey’s undir teppi í sóf­anum. Ég var dug­leg á Netinu, var ekki feimin við að „adda“ og „póka“ á Facebook og þegar bekkj­ar­systir mín sýndi mér Taggalicious kynnt­ist ég nokkrum strákum þar. En ekk­ert lá þar að baki annað en yfir­borðs­kennt spjall sem alltaf fór út í vit­leysu.

„Mig lang­aði í snert­ingu, að finna góða rakspíra­lykt og horfa í augu á góðum manni með ást­ar­glampa í augum…“

Ég satt að segja var orðin leið á veru­leikafirrtri ást á Netinu. Ég var ein­mana. Mig lang­aði í snert­ingu, að finna góða rakspíra­lykt og horfa í augu á góðum manni með ást­ar­glampa í augum, ekki í gegnum tölvu­skjá! Ég bjó ein í töff íbúð í 107 og fannst að nú væri minn tími kom­inn. Nýút­skrifuð, ný vinna. Ég var á upp­leið! Flestallar vin­konur mínar voru nán­ast harð­giftar frá­bærum mönnum sem báru þær á örmum sér og til­báðu. Mig var farið að hungra í svo­leiðis.

Ég hlakk­aði því til að fara að vinna á mann­mörgum vinnu­stað þar sem væru mögu­lega álit­legir kandídatar fyrir mig að skoða. Og þar var einn sem stal athygli minni. Gunnar.

Auðvitað var hann giftur!

Mér var tekið opnum örmum af stelpna­hópi á mínum aldri í vinn­unni þegar ég byrj­aði og við borð­uðum saman í mötu­neyt­inu í hádeg­inu. Þetta byrj­aði vel. Ég var komin inn í fína klíku sem var frá­bært á svona stórum vinnu­stað. Einn dag­inn mætti Gunnar til starfa eftir veik­inda­fríi vegna íþrótta­meiðsla. Hann vann í deild­inni minni og sat við skrif­borð sjö metrum hjá mínu og var í beinni sjón­línu við mig. Ein­beit­ingin hjá mér hvarf eins og dögg fyrir sólu um leið og hann mætti. Vá, hvað hann var fal­legur! Hár og mynd­ar­legur, íþrótta­manns­lega vax­inn með ótrú­lega blá augu. Hann var eins og skap­aður fyrir mig!

Það fyrsta sem ég gerði þann dag þegar ég kom heim var að finna hann á Facebook. Ég var búin að hlakka allan dag­inn til þess. En viti menn, auð­vitað var hann giftur! Ég skoð­aði myndir af honum í úti­legu þar sem hann var í ham­ingjukasti með lít­illi og grannri konu, tveimur stálp­uðum strákum sem aug­ljós­lega voru synir hans og stórum labrador-hundi. Opna pakka á jól­unum. Drekk­andi kok­teil á strönd á Spáni. Gat nú verið!

Kjáninn ég hélt samt áfram að horfa á hann í vinn­unni næstu vik­urnar þegar tæki­færi gafst. Ég gat ekki hætt að hugsa um hann. Mér fannst hann líka horfa til mín stundum og brosa. Æi, hvað átti ég að hugsa? Auðvitað átti ég að fara eftir því sem ég las í Vikunni fyrr á árinu: Ekki skíta þar sem þú étur. En það er alltaf hægt að vera vitur eftir á.

Fann neista á milli okkar

Ég var komin í níð­þröngan, svartan spari­kjól, í him­in­háa rauða hæla og dökka, síða hárið mitt varð Carmen-rúllum að bráð í til­efni kvölds­ins. Ég var búin að taka vel á því í rækt­inni og leit vel út.

Það var kom­inn októ­ber og ég var á leið á vetr­ar­fagnað með vinn­unni. Ég var búin að ákveða að ég ætl­aði að tala við Gunnar um eitt­hvað annað en vinnu­tengt og heilla hann upp úr skónum. Ég vissi alveg að hann væri giftur og allt það. Öll skyn­semi í mínum heila var rokin út í veður og vind. Þegar mig lang­aði í eitt­hvað, þá vildi ég fá það. Ég var orðin leið á að vera hrifin af honum úr fjar­lægð. Við fórum fyrst í partí til yfir­mann­eskju okkar sem bjó í risa­stóru ein­býl­is­húsi á Kjal­ar­nesi. Hjartað í mér tók kipp þegar Gunnar mætti. Einn.

Ég skvetti í mig einu skoti ofan í nokkra kok­teila og lagði til atlögu. Hann var ótrú­lega ánægður að sjá mig. Ég bara vissi það. Hann er þessi feimna týpa. Fer voða lítið fyrir honum. Mér finnst það sjar­mer­andi. Hann var ólíkur öllum þessum Facebook-montrössum. Við töl­uðum heil­lengi saman, bara við tvö úti í horni. Ég fann neist­ann á milli okkar. Ekki leið á löngu þar til partíið var búið og stemn­ingin á okkur Gunnari var þannig að við myndum fara sam­ferða á skemmti­stað­inn þar sem veislan átti að vera.

Við vorum orðin ágæt­lega hífuð og byrjuð að hella í glösin hvort fyrir annað. Við hög­uðum því þannig að við færum tvö ein í leigu­bíl. Vínið opn­aði mig fyrir að segja honum sann­leik­ann hvað mér þætti hann æðis­legur. Á miðri akrein á Miklu­braut­inni sagði hann mér fréttir ofan í diskólag í útvarp­inu. Hann væri að skilja við kon­una sína.

Koss eftir krassandi fréttir

Mér leið á því augna­bliki eins og að nú væri búið að bæn­heyra mig. Maðurinn sem ég var bál­skot­inn í var á lausu eftir allt saman. Auðvitað fyrir mig! Við kysst­umst ástríðu­fullum kossi í leigu­bílnum. Ég var gjör­sam­lega í sjö­unda himni. Við létum á engu bera fyrir framan vinnu­fé­lag­ana á Rúbín en undir niðri kraum­aði löngun í hvort annað.

„Við kysst­umst ástríðu­fullum kossi í leigu­bílnum.“

Við stöldruðum ekki lengi við í gleð­skapnum. Við fórum heim til mín og kynnt­umst betur. Allt sem ég vildi segja og gera hafði ég loks­ins tæki­færi til. Auðvitað lét ég varn­ar­orð hans um að hann væri sko alls ekki á leið­inni í sam­band í nán­ustu fram­tíð, eftir 17 ára hjóna­band, sem vind um eyru þjóta. Hann var minn! Það var vand­ræða­legt að sjá hann á næsta vinnu­degi.

„Mér leið á því augna­bliki eins og að nú væri búið að bæn­heyra mig. Maðurinn sem ég var bál­skotin í var á lausu eftir allt saman.“

Dagarnir liðu og við töl­uðum ekk­ert saman um það sem gerð­ist. Brostum bara hvort til ann­ars yfir þessa sjö metra. Ég var orðin svo hrifin að þegar ég keyrði í vinn­una skalf ég af spennu og hjartað í mér nán­ast snerti stýrið þegar það pump­aði. Á end­anum varð ég að rjúfa þögn­ina. Þetta var orðið svo óþægi­legt. Ég þakk­aði honum fyrir síð­ast og hann, feim­inn sem endranær, sagði að þetta hefði verið æðis­legt. Ég skalf svo mikið að ég vissi ekki hvað ég átti að segja.

En þar sem við vorum að vinna saman var ég róleg og vissi að ég átti eftir að hitta hann aftur dag­inn eftir, og næsta og næsta. Ég vildi að það hefði verið svona gott eins og það hljóm­aði.

Spennan varð að vítahring

Næstu vikur voru tóm sæla. Augn­gotur hvort til ann­ars í laumi frá skrif­borð­unum, sjóð­heitar SMS-send­ingar, tölvu­póstar. Við hög­uðum því eins oft og við gátum þannig að við færum sam­ferða upp í mötu­neytið í lyft­unni. Bara tvö ein. Þær 20 sek­úndur voru okkar para­dís á meðan lyftan fór á milli hæða og þeir kossar sem við áttum þar áttu eftir að end­ast út allan dag­inn. Þvílík spenna!

Allt í einu var ég farin að hunsa stelp­urnar og sitja hjá honum. Ég fann að þær voru farnar að líta mig horn­auga. En ég lét það ekk­ert á mig fá. Þetta leyni­lega sam­band okkar Gunnars ein­skorð­að­ist nán­ast ein­göngu við vinn­una. Hann bjó langt frá höf­uð­borg­inni og var í öðru starfi þar eftir vinnu.

Ég var orðin dálítið þreytt á því að við gátum aldrei gert neitt saman. Og hann gæti nú alveg sent mér SMS svona við og við. Og þá kom hann aftur með áminn­ing­una sem ég var búin að úti­loka frá hug­anum. Hann væri ekki að fara í sam­band. Hann ætti skyldum að gegna gagn­vart sonum sínum og hann vildi ekki gera þeim það að hitta aðrar konur strax.

Hann tal­aði lítið um kon­una sína fyrr­ver­andi, en ég vissi að skiln­aður þeirra væri á við­kvæmu stigi og ég yrði að vera þol­in­móð. Og já, ég var þol­in­móð. Í marga mán­uði. Ást­fangin upp fyrir haus, horf­andi á hann í vinn­unni, hugs­andi um hann ein heima í stóru íbúð­inni minni, ósk­andi þess að hann væri hjá mér. Við hitt­umst í eitt skipti fyrir utan vinn­una, það var allt og sumt. Hann hringdi í mig þegar hann var í vinnu­ferð í London. Mér fannst það ynd­is­legt. Stundum lof­aði hann mér að við myndum hitt­ast en þá kom eitt­hvað upp á hjá son­unum. Ég var orðin afbrýð­isöm út í þá.

Þetta var farið að taka á mig og þegar ég keyrði heim úr vinn­unni á hverjum degi fann ég svo mik­inn söknuð í hans garð. Sér­stak­lega á föstu­dögum klukkan fimm þegar ég vissi að ég myndi ekki sjá hann í tvo heila daga. Þetta var orð­inn víta­hringur.

Ekki skíta þar sem þú étur

Ég varð að segja honum að þetta gengi ekki lengur svona. Ég væri ein tauga­hrúga út af honum, gæti ekki ein­beitt mér í vinn­unni, sæti grát­andi ein heima að hugsa um hann, væri búin að úti­loka mig frá stelp­unum í vinn­unni sem hefðu verið svo góðar við mig í upp­hafi og að þetta leyni­makk okkar væri að skemma mig.

Ég var svo upp­trekkt í vinn­unni að ég fann að fólk var farið að líta á mig sem nei­kvæða og hund­leið­in­lega mann­eskju. Ég gat ekki talað um þetta „sam­band“ okkar við neinn, engan í vinn­unni. Ef ég hefði ekki haft bróður minn til að gráta í veit ég ekki hvað ég hefði gert. Hann ráð­lagði mér hvað eftir annað að hætta að hugsa um Gunnar en hvernig átti ég að geta það þegar hann sat beint fyrir framan mig átta tíma á dag, fimm daga vik­unnar?

Það var eins og það tæki á Gunnar þegar ég sagð­ist ekki geta meir. Hann setti hönd­ina fyrir hjartað á sér með dramat­ískum stælum. Það var bara ekk­ert annað í stöð­unni. Hann vildi mig ekki. Það var bara svo­leiðis. Hann var búinn að segja það margoft en ég bara hlust­aði ekki. Það fóru margir mán­uðir í að bíða eftir honum.

Ég var fegin þegar honum var sagt upp vegna nið­ur­skurðar stuttu seinna. Þá gat ég loks­ins andað rólegar og ein­beitt mér að vinn­unni og að sjálfri mér. Þó að það hafi tekið tíma að kom­ast yfir Gunnar var eins og stóru fargi væri lyft af mér. Nokkru síðar kynnt­ist ég manni. Hann var að vinna í hinum enda borg­ar­innar. Ekki sjö metrum frá mér.

Stundum á maður bara að taka mark á tíma­ritum. Ekki skíta þar sem þú étur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur