Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Paradísin í borgarjaðrinum

Náttúran er okkur flestum hug­leikin en senni­lega hugsum við flest um krók­óttar leiðir og fal­legt víð­sýni á íslenska hálend­inu þegar hún kemur okkur í hug. Blaða­maður þekkir ekki vel til íslenskrar nátt­úru fyrir utan að hafa verið í sveit norður á Ströndum í barn­æsku, en átti þar upp­lif­anir sem skutu rótum. Ólafi Ólafs­syni nátt­úru­unn­anda fannst nóg um um fáfræði hans um nágrenni höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og tók hann í góðan bíltúr um Krýsuvík og Reykja­nesskag­ann.

Paradísin í borgarjaðrinum
Ólafur Ólafsson, ferða­langur og nátt­úru­unn­andi. Á bak við hana er fúll pyttur en lyktin vísar til brenni­steins sem kemur frá hverunum.

Blaða­maður varð gjör­sam­lega heill­aður af þessu umhverfi, sem var stór­kost­legt, svona rétt í bak­garð­inum hjá honum. Hann ákvað í sam­ráði við Ólaf að að hafa sam­band við Kristínu Jóns­dóttur jarð­skjálfta­fræð­ing og tala um jarð­skjálft­a­nátt­úru almennt og svo auð­vitað Reykja­nes­hrygg­inn. Kristín hefur haft mik­inn áhuga á nátt­úr­unni frá því hún man eftir sér.

,,Ég ólst upp í Breið­holt­inu í nágrenni við móa og læk sem ég lék mér mikið við sem barn. Ég var lík­lega sjö ára þegar ég sagði öllum sem heyra vildu að ég ætl­aði að verða stjörnu­fræð­ingur. Ég safn­aði plöntum, þurrk­aði og press­aði og límdi inn í stíla­bók með hjálp pabba þegar ég var smá­stelpa. Ég fletti plönt­unum upp í Íslenskri flóru og merkti þær með nafni sam­visku­sam­lega í bók­ina mína. Ég var líka heilluð af hrauni og gjám og safn­aði steinum. Mamma og pabbi voru kenn­arar og mamma var sér­stak­lega ötul við að kenna nöfnin á fjöll­unum og útskýra fyr­ir­bæri eins og gervi­gíga og hraun­reipi.

Í skóla hafði ég mik­inn áhuga á nátt­úru­fögum og mestan áhuga hafði ég á ferlum og mynd­unum, ég vildi skilja hvernig fyr­ir­bærin mynd­uð­ust, en hafði minni áhuga á fögum þar sem áherslan var lögð á upp­taln­ingar og skil­grein­ingar. Ég var á eðl­is­fræði­braut í mennta­skóla og fór svo í jarð­eðl­is­fræði í Háskóla Íslands. Þar er margt skemmti­legt kennt og m.a. grunnur í jarð­skjálfta­fræði. Ég var heppin að fá góða kenn­ara og leið­bein­endur og í gegnum þá fékk ég sum­ar­vinnu í tengslum við jarð­skjálfta­mæl­ingar. Ég fór síðar í nám til Sví­þjóðar í jarð­skjálfta­fræði. Dokt­ors­verk­efnið fjall­aði að mestu um jarð­skjálfta í eld­stöð­inni Kötlu. Í dag vinn ég í nátt­úru­vá­r­eft­ir­lit­inu á Veð­ur­stofu Íslands þar sem við m.a. fylgj­umst með jarð­skjálfta­virkni á öllu land­inu.“

„Ég hef mikið dálæti á Búr­fells­gjá og fer þangað iðu­lega með erlenda gesti. Hraun­mynd­an­irnar þar eru ein­stakar og gjáin sjálf, þó að hún sé um átta þús­und ára, í raun ekk­ert mjög ólík þeirri sem mynd­að­ist í Holu­hrauni fyrir fjórum árum.“

Fjöl­breytt starf en um leið sér­hæft
En hverjar skyldu meg­in­á­hersl­urnar í starfi jarð­skjálfta­fræð­ings­ins vera? ,,Jarð­skjálfta­fræðin er mjög breitt fag og til­tölu­lega gömul fræði­grein. Yfir­leitt eru jarð­skjálfta­fræð­ingar frekar sér­hæfðir þar sem námið er langt og fræðin flókin. Eitt meg­in­verk­efni jarð­skjálfta­fræð­innar er að rann­saka upp­tök jarð­skjálfta, reikna stað­setn­ingu, stærð og hreyf­ingu í upp­tökum. Við getum ekki enn spáð fyrir um jarð­skjálfta en hugs­an­lega verður það hægt í fram­tíð­inni. Við getum líka nýtt okkur jarð­skjálfta til að átta okkur betur á innri gerð jarðar og sér í lagi til að skoða bygg­ingu jarð­skorpunnar. Sem dæmi þá er hægt að nota jarð­skjálfta­gögn til að fá upp mynd af innri gerð eld­stöðva, nán­ast eins og són­ar­mynd af fóstri, til að átta okkur á því hvort og þá hvar og hversu mikil kvika er inni í fjall­inu. Í dag er ég að vinna í rann­sókn­ar­verk­efni sem notar sam­felldan jarð­óróa eða jarð­suð til að reikna hvort og þá hvernig jarð­skorpan breyt­ist á stuttum tíma (milli mán­aða). Hugs­an­lega verður hægt að nota aðferð­ina við að greina upp­haf eld­gosa, þegar kvikuflæði inn í eld­stöð­ina eykst og kviku­þrýst­ingur bygg­ist upp.“

Skiptir það miklu fyrir eld­fjalla­land eins og Ísland að hafa jarð­skjálfta­fræð­inga og þá hvernig?
,,Það skiptir miklu máli fyrir Ísland að hafa mennt­aða jarð­skjálfta­fræð­inga. Á Íslandi eru þrjá­tíu og tvær virkar eld­stöðvar og að með­al­tali eld­gos á fimm ára fresti. Þá eru tvö brota­belti, Suð­ur­lands­brota­beltið og Tjör­nes­brota­beltið, þar sem geta orðið skjálftar sem geta valdið miklu tjóni. Jarð­skjálfta­fræðin hefur reynst mjög vel við að greina for­boða eld­gosa, nú síð­ast í Bárð­ar­bungu þegar eld­gos braust út í Holu­hrauni. Veð­ur­stofa Íslands ber ábyrgð á nátt­úru­vá­r­eft­ir­liti, þar með að reka jarð­skjálfta­mæla um allt land og greina for­boða nátt­úru­vá­r­at­burði, ekki bara vegna eld­gosa heldur líka vegna skriðu­hættu og flóða­hættu en þar hafa jarð­skjálfta­mælar nýst vel. Það segir sig sjálft að þekk­ing verður að vera til staðar til að reka jarð­skjálfta­kerfi og mæla for­boða.“

Reykja­nesskag­inn er mjög áhuga­verður
En aftur að Reykja­nesskag­anum. Hvað er vitað um myndun hans, hversu gam­all er hann, hvenær gaus þar síð­ast, er það vitað? Er enn virkni í honum og hvar þá. ,,Reykja­nesskag­inn er mjög áhuga­verður. Eftir honum liggur gos- og rek­belti sem liggur allt frá Reykja­nestá og norð­austur eftir til Þing­valla. Þetta belti markar fleka­skil milli Norður-Amer­íkuflek­ans og Evr­asíuflek­ans. Þessir flekar fær­ast í sundur um 2 cm á ári að með­al­tali. Fleka­skilin eru í raun fram­hald af Atl­ants­hafs­hryggnum sem má segja að gangi á land við Reykja­nestána.

„Ég var líka heilluð af hrauni og gjám og safn­aði steinum. Mamma og pabbi voru kenn­arar og mamma var sér­stak­lega ötul við að kenna nöfnin á fjöll­unum og útskýra fyr­ir­bæri eins og gervi­gíga og hraun­reipi.“

Jarð­skjálfta­sprungur sem liggja nán­ast í norður-suður, liggja einnig eftir Skaganum og krossa sums staðar gossprung­urnar. Þessi fyr­ir­bæri eru til­tölu­lega aðgengi­leg og aug­ljós þegar manni er bent á þau og njóta sín vel í gróð­ur­snauðu umhverf­inu.
Það má segja að Reykja­nesskag­inn sé ein­stakt sýni­dæmi um land­rek og gos­virkni. Mikil gos­virkni gekk yfir Reykja­nesskag­ann fyrir um þús­und árum sem hófst skammt frá Hengl­inum og færð­ist hægt suð­vestur eftir Skaganum. Hrinan stóð yfir í um tvö hund­ruð ár. Virknin í dag lýsir sér í jarð­hita­virkni á nokkrum stöðum (Krísuvík, Svarts­engi, Reykja­nes) og jarð­skjálfta­virkni eftir öllum Skaganum. Á hverju ári verða nokkrir jarð­skjálftar á Reykja­nesskag­anum sem finn­ast vel í byggð. Tímabil gos­virkni mun end­ur­taka sig aftur í fram­tíð­inni en engin merki eru um að það muni ger­ast á næst­unni.

Á Reykja­nesskag­anum eru mjög áhuga­verðir staðir sem vert er að skoða. Ég hef mikið dálæti á Búr­fells­gjá og fer þangað iðu­lega með erlenda gesti. Hraun­mynd­an­irnar þar eru ein­stakar og gjáin sjálf, þó að hún sé um átta þús­und ára, í raun ekk­ert mjög ólík þeirri sem mynd­að­ist í Holu­hrauni fyrir fjórum árum. Eld­vörpin eru einnig fal­leg og hjúpuð dulúð. Und­an­farin sumur höfum við fjöl­skyldan gengið að Gömlu Krísuvík sem ég get líka mælt með. Auðveld ganga og áhuga­verð saga um byggð sem varð frá að hörfa vegna eld­virkni og hraun­straums.“

Unnur blaða­maður og Ólafur, ferða­fé­lagi og nátt­úr­unn­andi, þakka Kristínu kær­lega fyrir þessar áhuga­verðu upp­lýs­ingar og hlakka þegar til næstu ferðar á Reykja­neskag­anum með þær í fartesk­inu sem og á aðra staði sem hafa haft gos­virkni. Það tekur aðeins um 15 mín­útur að kom­ast í paradís­ina frá Völlunum í Hafn­ar­firði. Það er svo mikið að skoða og fyrir höf­uð­borg­ar­búa er þessi stór­kost­lega nátt­úra hreint og beint í bak­garð­inum við heim­ili þeirra.

Höfundur / Unnur Hrefna Jóhann­es­dóttir
Aðalmynd er af Kristínu Jóns­dóttur jarð­skjálfta­fræð­ing.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur