Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Erfiðar minningar

Erfiðar minningar

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Ég veit fátt skemmtilegra og notalegra en að dvelja í sumarbústað, hvort sem er yfir vetur eða sumar. Maðurinn minn deilir ekki þeirri hrifningu með mér og þegar mér tókst að draga hann með var hann eirðarlaus og vildi helst fara sem fyrst heim aftur.

Einar tal­aði ekki mikið um æsku sína en for­eldrar hans drukku mikið og skildu þegar hann var að verða sautján ára. Sjálfur drakk hann í hófi en á ung­lings­ár­unum var hann erf­iður og drakk bæði og dóp­aði.

Mig lang­aði til að kom­ast til botns í þessu með andúð hans á því að fara í burtu frá heim­il­inu. Það var ekk­ert mál að skreppa saman til útlanda en þegar við vorum á Íslandi átti hann erfitt með að slíta sig að heiman ef það hafði í för með sér að gista ein­hvers staðar, hvort sem var á hót­eli, tjaldi eða í sum­ar­bú­stað. Hann sagði bara að sig lang­aði ekki en gerði það fyrir mig að koma. Hann hvatti mig nokkrum sinnum til að fara í bústaða­ferðir með vin­konum mínum og ég gerði það nokkrum sinnum þar til dóttir okkar fædd­ist.

Ég vissi að Einar ætti slæmar minn­ingar úr ferða­lögum með for­eldrum sínum þótt hann vildi sem minnst tala um for­tíð­ina og fannst algjör óþarfi að vera að velta sér upp úr því sem liðið var.

„Kósí“ ferðir …

Eitt kvöldið kom óvænt tæki­færi til að ræða málin. Dóttir okkar, nokk­urra mán­aða, var sofnuð og við sátum og ræddum saman. Samræður okkar sner­ust um vel­ferð dóttur okkar, hvað væri gott vega­nesti fyrir börn út í lífið og hvað ætti ekki að bjóða þeim upp á. Án þess að ég spyrði nokk­urs eða reyndi að draga upp úr Einari fór hann að segja mér ýmsar sögur úr æsku sinni, máli sínu til stuðn­ings. Ein­hverjar hafði ég heyrt en nú fékk ég nýjan flöt á þær og sumt hafði ég ekki haft hug­mynd um.

For­eldrar hans voru bæði í góðum störfum, sér­stak­lega mamma hans, en um helgar eða í sum­ar­fr­íum not­uðu þau hvert tæki­færi til að drekka.

Einar sagði mér frá sum­ar­bú­staða­ferðum sem sner­ust lang­flestar upp í martröð vegna drykkju þeirra. Þau hlökk­uðu alltaf til að kom­ast í sveita­sæl­una, og nú átti að hafa það kósí, sögðu þau. Mikið var tekið með af góðum mat til að grilla en það glamr­aði alltaf í flöskum í einum eða tveimur pokum sem voru með­ferðis.

Um leið og búið var að bera inn far­ang­ur­inn fengu þau sér í glas. Þau drukku yfir matseld­inni, drukku með matnum og fengu sér svo enn meira eftir mat­inn. Einar gerði sér iðu­lega upp þreytu til að fara snemma að sofa en svo beið hann skjálf­andi í rúm­inu eftir rifr­ild­inu og slags­mál­unum sem fylgdi svo oft. Oftast tóku þau ekki eftir því þegar hann lét sig hverfa. Hann gat aldrei sofnað fyrr en hann heyrði að allt var komið í ró.

Næsta morgun var yfir­leitt allt komið í lag og for­eldrar hans syngj­andi glaðir að búa til morg­un­verð. Ekkert var minnst á lætin kvöld­inu áður. Svo end­ur­tók allt sig þegar líða fór á dag­inn. For­eldrar hans slóg­ust ekki alltaf þegar þau voru undir áhrifum áfengis en þau rifust þó oft. Fyrir kom að nístandi þögn ríkti í bílnum á heim­leið­inni en þá höfðu pabbi hans og mamma greini­lega sofnað ósátt. Þá var lítið sungið yfir morg­un­verð­ar­til­bún­ingnum.

Sár missir

Eins og þetta væri ekki nógu slæmt … Einar átti kisu þegar hann var átta eða níu ára og honum þótti ógur­lega vænt um hana. Eðlilega var ekki hægt að taka hana með í ferða­lagið og einu sinni tókst ekki að finna nágranna til að koma og gefa kett­inum. Þá tóku for­eldrar hans á það ráð að skilja nógu mik­inn mat eftir fyrir hann og hafa opinn glugga svo hann gæti farið út og inn. Eftir ömur­lega viku sem ein­kennd­ist af drykkju og rifr­ildum gat Einar ekki beðið eftir því að kom­ast heim til kisu. En íbúðin var auð. Maturinn búinn og kisi horf­inn. Einar kvald­ist lengi yfir þessu og var viss um að þessi besti vinur hans hefði haldið að hann hefði verið yfir­gef­inn og fundið sér nýtt heim­ili. Þrátt fyrir mikla leit fannst kött­ur­inn aldrei. Einar var eyði­lagður yfir þessu og til að reyna að bæta honum miss­inn gaf mamma hans honum tvo kett­linga sem hún hafði séð aug­lýsta í blaði. Það hefði hún betur látið ógert því næsta sumar þegar fjöl­skyldan fór á sól­ar­strönd í þrjár vikur var ást­kærum kis­unum hans lógað því for­eldrum hans fannst of dýrt að setja þær í gæslu. Einar fékk ekki einu sinni tæki­færi til að reyna að koma þeim fyrir hjá vinum sínum.

Eftir þetta vildi hann ekki eiga gælu­dýr þótt for­eldrar hans byðu honum það. Sól­ar­landa­ferðin var að mestu leyti ömur­leg. Pabbi hans og mamma ein­hentu sér í að drekka ódýra áfengið og hann var mikið til sjálfala í ferð­inni, enn miður sín eftir að kis­unum hans var lógað.

„Pabbi hans og mamma ein­hentu sér í að drekka ódýra áfengið…“

Hann dauð­skamm­að­ist sín fyrir þau í flug­vél­inni, sér­stak­lega á heim­leið­inni. Hann sagði að ein flug­freyjan hefði áttað sig á stöð­unni og vor­kennt honum svo mikið að hún hefði drifið hann fram í flug­stjórn­ar­klefa og leyft honum að tala við flug­menn­ina í smá­stund. Það var besta minn­ingin úr ferð­inni.

Einar bætti því við að for­eldrar hans hefðu auð­vitað ekki verið alslæmir og hann hefði líka átt sínar góðu stundir með þeim. Mamma hans var stór­skemmti­leg og hug­mynda­rík og feðgarnir gerðu oft eitt­hvað saman. Drykkja þeirra yfir­gnæfði þó góðu minn­ing­arnar og hann ætti enn erfitt með að fyr­ir­gefa þeim fyrir virð­ing­ar­leysið sem þau sýndu lífi katt­anna hans.

Sjómennskan bjargaði

Ég hafði heyrt eitt­hvað af þessu áður en ekki í neinu almenni­legu sam­hengi. Ég vissi líka alveg af hverju hann hefur kosið að vera í litlu sam­bandi við for­eldra sína.

Einar talar almennt lítið um sjálfan sig og vill lifa í nútíð­inni en mér fannst honum létta við að segja mér frá þessu. Þetta hvíldi þungt á honum sem barni en svona for­tíð­ar­far­angur er ekki hollt að bera einn, sama hversu mikið maður heldur að maður sé í góðum málum. Við töl­uðum saman allt kvöldið og lítið fór fyrir því að horfa á mynd­ina í sjón­varp­inu sem við höfðum ætlað okkur að gera.

Einar sagði mér meira frá ung­lings­ár­unum og hluti sem hann hafði engum sagt frá. Uppreisn hans gegn for­eldr­unum hófst þegar hann var að verða fjórtán ára og neit­aði að láta ferma sig sem þótti hneyksl­an­legt þótt fjöl­skyldan væri ekki sér­lega trú­rækin. Hann fór að drekka í kringum fimmtán ára ald­ur­inn og var óvið­ráð­an­legur á tíma­bili. Hann próf­aði ýmis eit­ur­lyf og flosn­aði upp úr skóla. Þegar hann átti að að ljúka við tíunda bekk var hann á sveita­heim­ili þar sem honum hafði verið komið fyrir. Þótt hann treysti fólk­inu þar nokkuð vel gat hann ekki sagt því frá líðan sinni og því sem hafi kannski orsakað hana. Honum fannst þetta allt saman vera væl og hann var of mik­ill töffari til að væla.

Það var ekki fyrr en þegar einn besti vinur hans lést úr ofneyslu sem Einar vakn­aði almenni­lega til vit­undar um þá ógæfu­leið sem hann var á. Það varð honum einnig til happs að hann komst á sjó­inn en pabbi hans kippti í ein­hverja spotta til að það gengi eftir. Á þessum tíma voru for­eldrar hans að skilja.

Einar heldur því fram að frá­bæru karl­arnir á bátnum, erf­ið­is­vinnan og allur góði mat­ur­inn úti á sjó hafi komið honum til manns. Ég efast ekki um að það sé rétt hjá honum. Einar snerti ekki á dópi eftir þetta og hann drekkur sjaldan og í hófi.

Rómantísk ferð og nýr heimilismeðlimur

Þegar dóttir okkar fædd­ist breytt­ist Einar smám saman og byrj­aði að opna sig. Ég átt­aði mig á því þegar við áttum þetta góða spjall saman. Hann elskar stelpuna sína meira en allt annað og vill reyn­ast henni gott for­eldri.

Það má alveg segja að hann hafi með þessum upp­rifj­unum rifið ofan af gömlum sárum sem fóru án efa að gróa smám saman í kjöl­farið.

Ég vildi að ég gæti sagt að hann hafi orðið ferða­laga­sjúkur í kjöl­farið en sú varð þó ekki raunin. Ekki alveg. En hann hefur breyst á síð­ustu árum og ýmis­legt fleira í lífi okkar. Við erum meira að segja komin með kött. Brönd­óttan kött sem flutti hrein­lega til okkar. Hann hafði verið á ver­gangi og var ósköp tæt­ings­legur þegar hann fór að venja komur sínar til okkar. Við reyndum að finna eig­and­ann en það tókst ekki. Svo var hann bara orð­inn einn af fjöl­skyld­unni.

Ég hef aldrei verið mikið fyrir ketti en Brandur okkar er ein­stakur og hefur töfrað alla upp úr skónum, líka for­eldra mína sem voru ekk­ert fyrir ketti.

Pabbi og mamma hafa verið ein­stak­lega elsk að dóttur okkar Einars, eina barna­barn­inu, og við eigum aldrei í vand­ræðum með pössun ef við förum eitt­hvað út. Þau koma ýmist heim til okkar eða taka stelpuna til sín.

Þegar við Einar áttum brúð­kaups­af­mæli nú í sumar sagði ég honum að mig lang­aði til að gera eitt­hvað sér­stak­lega skemmti­legt í til­efni þess og hann sagði að ég mætti ráða hvað það yrði. Ég fékk for­eldra mína til að koma heim og passa dótt­ur­ina og kött­inn yfir helgi, fyllti skottið af vistum og sótti Einar í vinn­una síð­degis á föstu­degi. Ég ók sem leið lá að sum­ar­bú­stað sem ég hafði tekið á leigu og til­kynnti Einari að nú hæf­ist nýr kafli í ferða­laga­lífi hans. Hann gretti sig en hló og fór að hjálpa mér að bera mat­inn og annað inn í bústað­inn. Það var eins og hann hefði ákveðið að fleygja öllum gömlum og slæmum minn­ingum út í veður og vind og gera gott úr öllu saman.

Helgin var stór­kost­leg og mjög róm­an­tísk. Við eld­uðum góðan mat, fórum í göngu­ferðir og töl­uðum mikið saman. Þetta var það sem við þurftum eftir að hafa verið meira og minna bundin yfir litlu barni. Og þarna tókst Einari að fá nýjar og betri minn­ingar inn í ferða­minn­inga­bank­ann sinn, eins og ég sagði við hann í gríni. Það var gaman að koma heim aftur og ég fann alveg að Einari létti svo­lítið þótt helgin hafi verið í meira lagi ynd­is­leg.

Í fram­tíð­inni mun ég ekki að neyða Einar til að ferð­ast með mér. Við vitum bæði hvað útskýrði andúð hans á svona ferðum og það tekur án efa tíma að kom­ast yfir það. Mögulega ferð­umst við minna en mig langar í fram­tíð­inni og meira en hann langar og það er bara allt í lagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur