Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Útlitskúgun eða ofurviðkvæmni fyrir gagnrýni?

Útlitskúgun eða ofurviðkvæmni fyrir gagnrýni?

Ef þú ert óánægð/ur með nefið, eyrun, poka undir augum, hrukk­urnar, hök­una, bingóvöðvana á hand­leggj­unum … jafn­vel kyn­færin, get­urðu látið laga „gall­ana“ hjá lýta­lækni. Þú getur meira að segja farið í skurð­að­gerð til að láta breyta þér í upp­á­halds­stjörn­una þína.

Ef þú ert of feit/ur stendur þér svo ótrú­lega margt til boða. Þú getur farið í heilsu­rækt, fengið þér einka­þjálf­ara, þú getur keypt pillur, te, duft, meira að segja grenn­andi skó … og hvað­eina sem á að gera þig eins og fyr­ir­sæt­una sem til­heyrir þeim 5% mann­kyns sem hafa þetta eina „rétta“ útlit.

Eitt­hvert fólk úti í heimi og hér á Íslandi stór­græðir á því að lík­ams­mynd fólks sé brengluð og að það reyni allt til að breyta sér.

Að hugsa sér, að það skuli geta verið í tísku að vera með stór brjóst – eða lítil brjóst, að eitt­hvað þyki í alvöru betra en hitt, og jafn­vel eitt­hvað sem engin leið er að breyta þótt vilji væri fyrir því … eins og „of“ stuttur háls eða „of“ langur háls … þetta er svo­lítið eins og að halda því fram að tyggjó­plötur séu betri/verri en tyggjó­kúlur.

Vissu­lega er óhollt að vera of feitur eða of grannur en um leið og við erum orðin sátt­ari í eigin skinni gengur okkur betur að ná mark­miðum okkar og verða heil­brigð­ari.

Skotleyfi á grannt fólk

Síðustu árin hefur vörn verið snúið í sókn á ýmsan hátt í þessum málum og svo virð­ist sem nokkur hug­ar­fars­breyt­ing hafi átt sér stað hjá mörgum og er það af hinu góða.

Mörg okkar eru svo ósátt við útlitið að við eyðum stórfé í að reyna að breyta okkur í eitt­hvað sem við erum ekki og getum ekki orðið. Kannski er hrein sölu­mennska ástæðan. Megr­un­ar­iðn­að­ur­inn einn veltir að minnsta kosti millj­örðum á millj­arða ofan á hverju ári og lýta­læknar hafa nóg að gera við fegr­un­ar­að­gerðir.

Karl Lag­erfi­eld tísku­hönn­uður komst í útlitsum­ræð­una eitt sinn þegar kvenna­hóp­ur­inn „Belle, Ronde, Sexy et je m’assume“, eða „Fallegar, þétt­vaxnar, kyn­þokka­fullar og ánægðar með það“, ákváðu að kæra hann fyrir æru­meið­ingar eða ummæli sem hann lét falla í sjón­varp­inu. Karl var risa­vax­inn fígúra innan tísku­heims­ins meðan hann lifði og ákaf­lega leið­andi og þess vegna alvar­legt þegar hann full­yrti að feitt fólk sóaði skatt­pen­ing­unum með lífs­stílstengdum sjúk­dómum sínum og gerði þar með því skóna að allt þétt­vaxið fólk væri óheil­brigt. Hann ítrek­aði þá skoðun sína í þessu við­tali að þétt­vaxnar konur ættu ekk­ert erindi á tísk­u­pall­ana. Mikla athygli vakti einnig þegar hann sagði opin­ber­lega að söng­konan Adele væri of feit en hún svar­aði fyrir sig á þá leið að hún væri full­trúi meiri­hluta kvenna og væri stolt af því. Hana hefði aldrei langað til að líkj­ast fyr­ir­sæt­unum á for­síðum tíma­rit­anna.

Sjálf Oprah Winfrey sem óþreyt­andi er í því að segja konum að þær eigi að vera þær sjálfar, fellur samt í þá gryfju í tíma­riti sínu að birta mán­að­ar­lega sjö þús­und ráð um það hvernig við getum breytt okkur.

Sífellt eru gerðar kann­anir varð­andi útlit og í nýlegri, breskri könnun kom fram að konur í stærð 16 séu ham­ingju­samastar og sáttastar við eigin lík­ama. Konur í minni stærðum voru mun gagn­rýnni á lík­ama sinn. Grannar konur fara sann­ar­lega ekki var­hluta af gagn­rýn­inni, ekk­ert síður en þær þétt­ari, og fá jafn­vel að heyra að þær séu ógeðs­legar af því að þær séu „of“ mjóar. Fólk hikar frekar við að segja slík orð við fólk í yfir­þyngd.

Af hverju má fólk ekki vera eins og það er?

Margar grannar konur vildu gjarnan vera feit­ari en ná ekki að halda holdum af marg­vís­legum ástæðum. Stundum eru und­ir­liggj­andi sjúk­dómar ástæðan, einnig hefur streita áhrif og sumir ein­fald­lega brenna miklu því þeir hreyfa sig mjög mikið. Og af hverju mega þessar mann­eskjur ekki vera eins og þær eru? Það er ekki bara ein mynd af feg­urð, við erum ólík, sem betur fer.

Ekki er langt síðan að á einum net­miðl­anna birt­ist frétt um að konur með stóran rass væru lík­legri til að hafa minna kól­esteról í lík­am­anum en þær sem minni rass hafa, einnig eru þær stærri taldar ólík­legri til að þróa með sér syk­ur­sýki og hjarta­sjúk­dóma. Vís­inda­menn í Oxford upp­götv­uðu þetta og rann­sóknin tók til 16 þús­und kvenna. Svipuð rann­sókn fór nýlega fram í háskól­anum í Kali­forníu og Pitts­burg ekki alls fyrir löngu og leiddu nið­ur­stöður í ljós að konur með stóran rass, breiðar mjaðmir og minna mitti geta jafn­vel lifað lengur. Það virð­ist sem heil­brigður lík­ami sé far­inn að þykja fal­legri en áður, hvort sem rass­inn er „of stór“ eða mjaðm­irnar breiðar.

Marilyn Monroe þótti feg­urst fljóða á sínum tíma.

Marilyn Monroe með stunda­glassvöxt­inn sinn þótti feg­urst fljóða á sínum tíma, tággrönn Twiggy tók við af henni, ekki síður fal­leg. Vin­sælasta og hæst­laun­aða fyr­ir­sæta heims, Gisele Bündchen, er mjög grönn en hefur verið sögð „curvy“, lík­lega vegna þess að hún er með ögn stærri brjóst en margar fyr­ir­sætur. Talað er um stór módel en það eru yfir­leitt venju­legar konur. Það er ekk­ert skrítið þótt ung­lings­stúlkur verði rugl­aðar.

Súpermódel líka með útlitsgalla

Fótó­sjoppuð súper­módel eru vissu­lega flott myndefni en mód­elin eru samt með app­el­sínu­húð, bólur og ýmsa aðra „galla“ sem „þarf“ að fela. Sú stað­reynd að um ¾ hlutar ung­lings­stúlkna og ungra kvenna eru óánægðir með lík­ama sinn og að um það bil helm­ingur ung­lings­stúlkna fer í megrun, eins og íslenskar og erlendar rann­sóknir sýna, er áhyggju­efni og sýnir að þörf er á við­horfs­breyt­ingu. Mikil óánægja með lík­ama sinn er áhættu­þáttur fyrir þróun átrask­ana sem og ýtir undir almennt óheil­brigt sam­band við mat. Óánægjan er ekki bara til staðar hjá ungum stúlkum, heldur báðum kynjum sem og mis­mun­andi ald­urs­hópum.

Stór hluti ástæð­unnar er lík­lega sá að á sama tíma og lífs­stíll okkar, mat­ar­menn­ing og minni hreyf­ing í dag­legu lífi stuðlar að ofþyngd og með­al­þyngd hefur auk­ist, hefur ofurá­hersla verið á hina „ofur­grönnu staðalí­mynd“ einkum hvað varðar konur. Fyr­ir­myndir sem hafa áhrif á t.d. ungt fólk eru yfir­leitt mjög grannar; leikkonur, leik­arar, söng­konur, söngv­arar, fyr­ir­sætur (oft á fótó­sjopp­uðum myndum). Unga fólkið fer að bera sig saman við fyr­ir­mynd­irnar, nið­ur­staðan verður þeim í óhag og það fer að reyna að breyta lík­ama sínum. Viðhorf for­eldra, vina og ann­arra í umhverf­inu hefur að sjálf­sögðu mikil áhrif, sem dæmi getur nei­kvætt við­horf for­eldris til eigin lík­ama haft mikil áhrif á lík­ams­mynd barns/ung­ling. Það er þörf fyrir aukna fræðslu um þessi mál, sér­stak­lega fyrir börn, ung­linga og for­eldra.

Að koma þeim skila­boðum á fram­færi að „feg­urð kemur í mis­mun­andi myndum“ og „að mik­il­vægt er að leggja áherslu á heil­brigðan lífs­stíl“ en ekki „kílóa­fjölda“ er mik­il­vægt. Við erum mis­jöfn að upp­lagi, fjöl­breyti­leik­inn er til staðar í lík­ams­gerð og lík­ams­þyngd okkar og mik­il­vægt að bera virð­ingu fyrir þeim fjöl­breyti­leika. Þar spila fjöl­miðlar, skóli og for­eldrar stóran þátt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur