Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Leyndarmál pabba sem særði mig mjög

Leyndarmál pabba sem særði mig mjög

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Þegar ég var níu ára greindist mamma með krabbamein og lést nokkrum árum seinna. Í kjölfarið komst ég að því að pabbi hafði um hríð átt sér leyndarmál sem særði mig mjög.

Framan af átti ég frá­bæra æsku, var alin upp kaup­stað á suð­vest­ur­horn­inu þar sem ég bjó með for­eldrum mínum og tveimur eldri bræðrum. Við vorum þrjár bestu vin­konur sem byrj­uðum saman í grunn­skóla og lífið var ljúft. Ég æfði fót­bolta og var að auki í fiðlu­námi og hafði alltaf nóg að gera. Pabbi og mamma voru frekar ung og kraft­mikil, bæði í krefj­andi störfum ásamt því að taka bæði þátt í ýmsum félags­störfum. Starf pabba krafð­ist ferða­laga og fundastands og hann var því reglu­lega að heiman. Hann og mamma voru ham­ingju­söm og ég man varla til þess að hafa séð þau ríf­ast. Gagn­kvæmur skiln­ingur ríkti í flestu. Mamma var stoð og stytta okkar systk­in­anna og sá um að rekstur heim­il­is­ins gengi upp, að allt sem við þyrftum væri á sínum stað og við öll á réttum stað á réttum tíma.

Erfiðar breytingar

Gríð­ar­legt áfall var þegar hún greind­ist með krabba­mein í brjósti, ég var ekki nema níu ára gömul og man hvað ég varð strax alveg gríð­ar­lega hrædd. Ég vissi um nokkra sem höfðu dáið úr krabba­meini og fyrir mér þýddu þessar fréttir bara eitt – mamma var að deyja. Ég fékk hins vegar strax útskýr­ingar á því að auð­velt væri að með­höndla krabba­meinið, skor­inn var fleygur úr brjóst­inu og í kjöl­farið fór mamma í lyfja­með­ferð og geisla.

Allt breytt­ist á heim­il­inu eftir að mamma veikt­ist. Mamma sem alltaf hafði verið stoðin og styttan þurfti nú sjálf á umönnun að halda. Með­ferðin tók mjög á hana, bæði and­lega og lík­am­lega, og við heim­il­is­fólkið urðum vör við per­sónu­leika­breyt­ingar. Hún fór að verða upp­stökk og var oft þung í skapi sem tók mjög á okkur systk­inin sem höfðum aldrei upp­lifað móður okkar þannig. Á þessum tíma var ekki boðið upp á neinn stuðn­ing fyrir aðstand­endur og börn krabba­meins­sjúkra og við vissum ekk­ert hvernig við ættum að haga okkur. Við börnin skildum ekki af hverju mamma var svona „leið­in­leg“ við okkur. Pabbi reyndi að segja okkur krökk­unum að reyna að taka til­lit til mömmu því hún væri bara veik, og auð­vitað vissum við það en skiln­ing­ur­inn var samt tak­mark­aður. Mér fannst ofsa­lega erfitt þegar hún missti hárið, þá urðu veik­indin svo sýni­leg, ekki síst út á við. Krakk­arnir í skól­anum spurðu mikið út í af hverju mamma væri sköll­ótt og gerðu grín að því og mér fannst því erfitt að mæta í skól­ann. Ósjálfrátt kenndi ég mömmu um líðan mína: Hvernig hafði henni dottið í hug að verða svona veik og gera þannig líf mitt svona erfitt?

Undirliggjandi ótti

Það var því mikil ham­ingju­stund hjá okkur fjöl­skyld­unni þegar með­ferð­inni lauk og í ljós kom að mamma var laus við meinið. Lífið fór að mestu að ganga sinn vana­gang þótt yfir okkur hvíldi sá ótti að meinið tæki sig upp að nýju. Sá ótti var nán­ast horf­inn þremur árum síðar þegar mamma kom heim úr tékki einn dag­inn og til­kynnti okkur að krabb­inn væri kom­inn aftur.

„Pabbi sýndi aldrei að hann væri hræddur, grét ekki fyrir framan okkur krakk­ana né slíkt. Þegar mömmu leið sem verst reyndi hann eftir fremsta megni að létta and­rúms­loftið.“

Frétt­irnar komu eins og þruma úr heið­skíru lofti. Þarna var ég orðin tólf ára og búin að þroskast aðeins meira og hafði ögn meiri skiln­ing á ástand­inu. Annað brjóstið var tekið af mömmu og við tók ströng lyfja­með­ferð og geislar. Til að forð­ast að mamma yrði skap­vond eins og í síð­ustu með­ferð þá gerði ég allt sem ég gat til að hjálpa til á heim­il­inu og létta undir með henni þannig að þarna var ég í með­virkni minni strax farin að taka að mér gríð­ar­lega ábyrgð. Mamma varð ofsa­lega veik í með­ferð­inni og lá mikið í rúm­inu. Bræður mínir voru komnir í fram­halds­skóla og voru minna heima við. Ég man að ég var stundum fúl yfir því að þeir væru ekki meira heima til að hjálpa til.

Pabbi sýndi aldrei að hann væri hræddur, grét ekki fyrir framan okkur krakk­ana né slíkt. Þegar mömmu leið sem verst reyndi hann eftir fremsta megni að létta and­rúms­loftið. Vegna fyrri reynslu lá við að mínar verstu áhyggjur sner­ust um að mamma yrði vond í skap­inu og missti hárið en auð­vitað var ég líka hrædd um hana.

Dýrmætar stundir

Á þessum tíma hugs­aði ég aldrei út í hvaða áhrif veik­indin hefðu á sam­band for­eldra minna, þau voru bara hjón, sem höfðu gifst og áttu að vera ham­ingju­söm til ævi­loka. Ég leiddi aldrei hug­ann að því hvernig pabba liði, hugs­aði mest um mína eigin líðan og svo nátt­úr­lega mömmu. Það var svo greini­legt að henni leið illa, pabbi var fyrir mér bara svona sjálf­sagt hús­gagn sem var bara þarna fyrir okkur öll.

Með­ferðin gekk ágæt­lega og í lokin var talið að meinið væri horfið en hálfu ári seinna tók það sig upp að nýju. Á næstu árum var mamma mikið á spít­ala, í lyfja­með­ferðum, aðgerðum og geisla­með­ferðum. Líf fjöl­skyld­unnar sner­ist um þetta og við urðum að veik­ind­unum hennar mömmu. Ég tók að mér, ásamt pabba, að sjá um allt. Bræður mínir fluttu alveg að heiman og komu ótrú­lega sjaldan heim, að mér fannst, og ég var frekar bitur að „þurfa“ að sjá um allt án allrar hjálpar frá þeim. Þar sem mamma var oft veik þá var inn­koma frá henni mjög stopul þannig að pabbi reyndi að vinna eins og hann gat, á meðan hugs­aði ég um mömmu.

Á fram­halds­skóla­ár­unum fékk ég sér­staka und­an­þágu til að læra heima þegar mamma var sem veik­ust. Þetta var auð­vitað gríð­ar­legt álag en ég valdi þetta sjálf og sé alls ekki eftir þessum tíma. Þó að oft væri mjög erfitt þá átti ég margar góðar stundir með mömmu á þessum tíma. Við spjöll­uðum um allt á milli him­ins og jarðar og hún sagði mér ýmsar sögur frá ung­lings­ár­unum, gömlum sénsum og þegar hún var að kynn­ast pabba. Pabbi reyndi þó eins og hann gat að láta mig lifa líf­inu. Hann hvatti mig til að fara út með vin­konum mínum og ef böll voru fram undan spurði hann alltaf hvort ég ætl­aði ekki að skella mér.

Ég er honum þakk­lát fyrir það því auð­vitað gekk ekki upp að ég sem var enn í fram­halds­skóla væri heima öll kvöld og allar helgar að hugsa um móður mína. Og auð­vitað vorum við ekki í þessu alveg ein, við fengum mik­inn stuðn­ing frá stór­fjöl­skyld­unni og systur hennar mömmu komu til okkar eins og þær gátu en þær bjuggu í öðru bæj­ar­fé­lagi.

Auðvitað komu tímar inn á milli sem voru góðir. Mamma náði reglu­lega góðum árangri og þá vorum við dug­leg að gera eitt­hvað og fórum t.d. þrisvar í frá­bærar ferðir til útlanda.

Stuðningur í sorgarferli

Síðasta árið sem mamma lifði var hræði­lega erfitt. Krabba­meinið var búið að dreifa sér um allt og ljóst að ekki varð við neitt ráðið. Mamma varð veik­ari en nokkru sinni og lá meira og minna í rúm­inu. Hún varð rosa­lega erfið og stundum varð það þannig að það var sama hvað við gerðum fyrir hana, það var allt ómögu­legt.

Fjöl­skyldan var okkur ómet­an­leg á þessum tíma en þar sem mamma vildi vera sem mest heima þá tókum við vaktir til að hugsa um hana. Ásamt heima­hjúkr­un­inni þá vorum við pabbi hjá henni til skiptis og svo komu systur hennar mömmu, ásamt vin­konum hennar, reglu­lega og skipt­ust á. Meira að segja bræður mínir komu og tóku sínar vaktir ásamt kærust­unum sínum.

Án stuðn­ings alls þessa fólks þá hefði ég lík­lega farið yfir um. Það var svo erfitt að horfa á þessa sterku konu verða nán­ast að ósjálf­bjarga barni. Ég syrgði hana nán­ast allt síð­asta árið því fyrir mér var mamma eins og ég þekkti hana farin. Seinustu vik­urnar var hún hins vegar alveg á spít­ala og þá tókum við vaktir þar og vorum hjá henni til skiptis þar til yfir lauk.

Annað áfall

Stuttu eftir jarð­ar­för­ina komst ég að því að pabbi átti kær­ustu! Ég fékk næstum tauga­á­fall. Hvað var mað­ur­inn að spá? Við sem vorum nýlega búin að jarða mömmu! Ég fór til pabba og hellti mér yfir hann, ég held að ég hafi aldrei verið jafn­reið í lífi mínu, pabbi sagði fátt og bað mig um að reyna að sýna þessu skiln­ing. Það sagð­ist ég ekki geta með nokkru móti og rauk á dyr.

Þegar ég fór að hugsa málið rann upp fyrir mér að það var eitt­hvað bogið við þetta. Hafði pabbi bara farið á bar­inn dag­inn eftir jarð­ar­för­ina og fundið sér kær­ustu? Ég gekk á hann og hann við­ur­kenndi að hafa kynnst kon­unni tveimur árum áður en mamma dó og hefði hitt hana annað slagið síðan! Það var eins og ég yrði til­finn­inga­laus við þessar fréttir. Mér fannst allt vera horfið sem mér þótti kær­ast. Mamma dáin og pabbi hafði vogað sér að gera henni þetta á verstu stundum lífs hennar.

Ég gekk út og tal­aði nán­ast ekk­ert við pabba í nokkra mán­uði. Ég fann að ég varð að koma mér í burtu og fara að hugsa um sjálfa mig til til­breyt­ingar. Ég skráði mig í nám sem mig hafði lengi dreymt um, í skóla í Evrópu. Þar kynnt­ist ég íslenskum strák sem varð kærast­inn minn um tíma og hann á ótrú­lega stóran þátt í hversu vel ég náði mér á strik. Hann leyfði mér að tala út í eitt og hvatti mig til að leita mér hjálpar fyrir aðstand­endur krabba­meins­sjúkra. Á sinn ljúfa hátt þá kom hann mér í skiln­ing um að ég yrði að horfa á þetta hjá­konu­st­and pabba með aðeins öðrum augun.

Í veik­indum mömmu hefði honum vænt­an­lega liðið mjög illa og þurft ein­hvern alger­lega utan­að­kom­andi til að deila áhyggjum sínum með. Það var eins og ég væri slegin utan undir, ég átt­aði mig á því að ég hafði alla tíð blaðrað mikið við pabba um mína líðan og hann hafði stutt mig en nán­ast aldrei rætt um hvernig sér liði.

Þótt ég fyr­ir­gæfi pabba ekki full­kom­lega þá mild­að­ist ég mikið og sá að nú var kom­inn tími til að gera þennan kafla í líf­inu svo­lítið upp og horfa fram á veg­inn. Í dag er ég í góðu sam­bandi við pabba, kærust­una hans og börnin hennar tvö sem eru á mínum aldri. Þó að ég og kærast­inn minn höfum hætt saman er ég honum ævar­andi þakk­lát fyrir allt sem hann gerði fyrir mig á þessum erf­iða tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur