Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

20 börn alveg laus í bílum og þar af leiðandi í mikilli hættu

Lands­björg og Sam­göngu­stofa gerðu fyrr á árinu könnun um öryggi barna í bílum. Nið­ur­stöður hennar liggja nú fyrir og sam­kvæmt hennar voru alls tutt­ugu börn alveg laus í bílum og þar af leið­andi í mik­illi hættu.

20 börn alveg laus í bílum og þar af leiðandi í mikilli hættu
|nógu alvar­legt þar sem um jafn­aldra væri að ræða.“ Konan

Könnunin fór þannig fram að félags­menn Lands­bjargar stóðu við 57 leik­skóla víða um land og athug­uðu hvernig búið var um börn í bílum þegar komið var með þau til skól­ans. Gerð var athugun á 2088 börnum. Kannað er hvort not­aður sé örygg­is­bún­aður fyrir barnið eða ekki og hvernig búnað er not­ast við. Einnig er skráð hvort að öku­maður noti bíl­belti eða ekki.

Sam­bæri­legar kann­anir hafa verið gerðar síð­ustu 34 ár og önn­unin stað­festir mjög góðan árangur. Árangur sem helst má sjá í því að árið 1985 voru 80% barna í engum bún­aði – ekki einu sinni örygg­is­beltum – en nú á þessu ári eru þau 1%. Það er hins­vegar alltaf áhyggju­efni að til séu til­felli þar sem börn eru bein­línis í lífs­hættu sökum þess að ekki er not­aður réttur bún­aður eða þau eru alveg laus í bílnum. Nú í ár reynd­ust það vera 20 börn en 83 börn voru í örygg­is­beltum sem telst ekki nægj­an­lega öruggur bún­aður með til­liti til hæðar og þyngdar barn­anna. 10 ára með­al­tal alvar­lega slas­aðra barna og lát­inna í umferð­inni er 17,5 en ef farið er aftur til árs­ins 1996 var með­al­talið 39,6.

Helstu atriði:

*Börn á aldr­inum 0-14 ára eru 9% allra sem slasast í umferð­inni og er barn sem er far­þegi í bíl í meiri­hluta þess­ara slysa.

*Gerð var athugun á 2.088 börnum.

*20 börn voru alveg laus í bílum og þar af leið­andi í mik­illi hættu.

*83 börn voru ein­vörð­ungu í örygg­is­beltum sem telst ekki full­nægj­andi bún­aður með til­liti til hæðar og þyngdar.

*Stórlega hefur dregið úr alvar­legum slysum meðal barna í umferð­inni meðal ann­ars vegna notk­unar örygg­is­bún­aðar.

*1985 voru 80% barna laus í bílum en árið 2019 eru þau 1%.

*Ása Ottesen full­yrðir að barna­bíl­stóll hafi forðað syst­ur­dóttur hennar frá alvar­legum skaða í bílslysi í sumar.

*Á 18 leik­skólum af 57 voru öll börn í réttum örygg­is­bún­aði.

*Þeir þétt­býl­iskjarnar sem eru til fyr­ir­myndar þetta árið eru Bol­ung­ar­vík, Ísa­fjörður, Borg­ar­byggð, Vopna­fjörður, Seyð­is­fjörður, og Kópa­vogur.

*Ökumenn á Aust­ur­landi standa sig best í notkun örygg­is­bún­aðar fyrir börn.

Hér má nálg­ast nið­ur­stöður könn­un­ar­innar 2019.

Er slakað á örygginu þegar barnið er orðið eldra?

Öll börn eins árs og yngri eru í réttum bún­aði og hið sama á við um 95-99% barna tveggja til fjög­urra ára og meira en 91% fjög­urra til fimm ára barna. Það vekur athygli að aðeins 87,9% sex ára barna reynd­ust vera í réttum bún­aði sem þýðir að um 12% sex ára barna eru ein­göngu í bíl­belti eða engum örygg­is­bún­aði.  Það er ófull­nægj­andi þar sem barn lægra en 135 cm á hæð skal ávallt vera í sér­stökum öryggis- og vernd­ar­bún­aði sem hæfir hæð þess og þyngd. Örygg­is­belti duga ekki.

Hvaða búnað skal nota?

Það eru ýmsar útgáfur og gerðir af örygg­is­bún­aðir til fyrir börn. Gerð þess bún­aðar sem velja skal og hæfir best til að tryggja öryggi barns­ins ræðst af hæð þess og þyngd.  Sam­göngu­stofa er með á vef sínum mikið fræðslu­efni á íslensku og fjölda ann­arra tungu­mála um öryggi barna í bílum. Hér má nálg­ast það efni.

Það er ekki nóg að hafa réttan búnað – hann þarf að nota rétt.

Það dugar ekki að vera með bún­að­inn í bílnum – það verður að nota hann rétt. Hollensk rann­sókn sýnir að í 83% til­fella var öryggi barna ekki full­nægj­andi þar sem bún­að­ur­inn var meðal ann­ars ekki rétt not­aður. Helstu mis­tökin og alvar­leg­ustu er að stóll­inn er ekki rétt festur eða örygg­is­belti stóls­ins eru ekki til dæmis snúið eða það er ekki rétt stað­sett á lík­ama barns­ins.
Mörg alvar­leg slys á börnum eru einmitt rakin til þessa og er ætl­unin að beina sjónum að þessu sér­stak­lega í næstu könnun árið 2021.

Er afa og ömmu kunnugt um hvernig nota skal búnaðinn?

Í hol­lensku rann­sókn­inni var áber­andi kunn­áttu­leysi eldri bíl­stjóra sem í flestum til­fellum voru afar og ömmur kunnu ekki á bún­að­inn.

Mik­il­vægt að hafa í huga:
Hér eru nokkur atriði sem vert er að hafa í huga:
*Takið barnið og bíl­inn með þegar keyptur er barna­bíl­stóll og mátið.

*Kynnið ykkur vand­lega hvernig festa skuli barna­bíl­stól­inn rétt og vel.

*Gætið vel að leið­bein­ingum um strekk­ingu og stað­setn­ingu belt­anna.

*Notið bak­vísandi stól eins lengi og mögu­legt er.

*Gætið þess að barnið sé vel og rétt fest í stól­inn. Að beltin séu hvergi snúin og að stóll­inn sé tryggi­lega og rétt festur.

*Barn undir 150 cm á hæð má ekki sitja á móti virkum loft­púða.

*Þegar talað er um örygg­is­búnað í bílum er átt við mis­mun­andi setu­búnað, allt eftir því hver aldur og þyngd barns­ins er.

*Ökumaður sem sinnir ekki skyldum sínum um verndun barna í bíl sem hann ekur má búast við að verða sektaður um 30 þús­und krónur og að fá einn refsi­punkt í öku­fer­ils­skrá fyrir hvert barn sem er laust eða ekki í réttum örygg­is­bún­aði í bílnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag