Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Að koma nafnlaus fram

Nýfall­inn dómur vekur spurn­ingar um það hvernig sætta má trúnað við þolendur og rétt meints ger­anda til að bera hönd yfir höfuð sér. Eiga þolendur yfir­höfuð þann rétt að stíga nafn­laust fram með ásak­anir sínar?

Að koma nafnlaus fram

Dómur Hér­aðs­dóms Reykja­víkur í máli Atla Rafns Sig­urðs­sonar leik­ara gegn Leik­fé­lagi Reykja­víkur og Kristínu Eysteins­dóttur leik­hús­stjóra vekur áleitnar spurn­ingar um MeToo-bylt­ing­una. Undir myllu­merk­inu #metoo stigu íslenskar konur úr ýmsum atvinnu­greinum fram og greindu, nafn­laust, frá kyn­bundnu og kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Þeirri spurn­ingu er ósvarað hvort hreyf­ing­unni hafi verið ætlað að tryggja að konur gætu sann­ar­lega stigið fram og sagt frá í skjóli nafn­leyndar eða hvort til­gang­ur­inn var að vekja umræðu sem yrði til þess að þær gætu stigið fram undir nafni, án þess að þurfa að ótt­ast um afleið­ing­arnar.

„Kvörtun eða ábend­ing um ein­elti, kyn­ferð­is­lega áreitni eða annað ofbeldi á vinnu­stöðum er alvar­legt eðlis. Þess vegna hafa verið settar ítar­legar reglur um skyldur atvinnu­rek­enda við með­ferð slíkra mála,“ segir í dómi hér­aðs­dóms í umræddu máli en það var höfðað af Atla Rafni eftir að honum var sagt upp störfum hjá Borg­ar­leik­hús­inu 16. des­em­ber 2017. Ástæðan voru ásak­anir á hendur leik­ar­anum um kyn­ferð­is­legt ofbeldi, m.a. frá starfs­mönnum leik­húss­ins. LR og Kristín voru dæmd til að greiða Atla Rafni sam­tals 5,5 millj­ónir í bætur.

Í dóm­inum kemur fram að Per­sónu­vernd hefði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að „mót­taka kvart­ana í trausti trún­aðar og nafn­leyndar, með­ferð þess­ara upp­lýs­inga hjá Borg­ar­leik­hús­inu og synjun þess að upp­lýsa stefn­anda um nöfn kvar­tend­anna hafi sam­rýmst lögum um per­sónu­vernd.“ Því hefði leik­hús­stjóra verið óheim­ilt að upp­lýsa stefn­anda um hvaða ein­stak­lingar hefðu borið hann sökum. Dómurinn komst hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu að leik­hús­stjóra hefði átt að vera ljóst að upp­sögnin myndi valda Atla Rafni tjóni.

„Samkvæmt regl­unum bar stefndu við með­ferð máls­ins án tví­mæla að gæta að hags­munum hlut­að­eig­andi starfs­manna og þar með talið að gefa stefn­anda kost á að koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi. Að því búnu bar að gera ráð­staf­anir til að stöðva hegð­un­ina, ef hún átti við rök að styðj­ast, sem og að koma í veg fyrir að hún end­ur­tæki sig. Til þess að koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi bar stefndu að upp­lýsa stefn­anda um það hvers eðlis ásak­an­irnar væru sem borist höfðu, og enn fremur gefa honum kost á að breyta hegðun ef um slíkt væri að ræða,“ segir í dóm­inum.

„Samkvæmt regl­unum bar stefndu við með­ferð máls­ins án tví­mæla að gæta að hags­munum hlut­að­eig­andi starfs­manna og þar með talið að gefa stefn­anda kost á að koma sjón­ar­miðum sínum á fram­færi.“

Haft var eftir Kristínu að þeir fjórir ein­stak­lingar sem hefðu starfað í leik­hús­inu á þessum tíma og leitað til hennar vegna hegð­unar Atla Rafns hefðu sagst upp­lifa mik­inn ótta og van­líðan við að mæta til vinnu vegna nær­veru leik­ar­ans. Þeir ótt­uð­ust að verða fyrir reiði í sam­fé­lag­inu og um starfs­frama sinn. Dómurinn gefur engar vís­bend­ingar um það hvernig sætta eigi þau sjón­ar­mið sem þarna koma fram; trúnað gagn­vart þolendum ann­ars vegar og mögu­leika meints ger­anda til að bera hönd fyrir höfuð sér hins vegar.

Eftir að nið­ur­staða í mál­inu lá fyrir sagð­ist lög­maður Atla Rafns í sam­tali við Frétta­blaðið von­ast til að það yrði öðrum stjórn­endum áminn­ing til fram­tíðar. For­svars­menn Borg­ar­leik­húss­ins ákváðu hins vegar að áfrýja og sögðu í til­kynn­ingu að nið­ur­staðan „skap­aði sér­tækar skyldur vinnu­veit­enda gagn­vart meintum ger­endum umfram þolendur.“ Þá væri nú einnig uppi óvissa um hvort vinnu­veit­endum væri yfir­höfuð heim­ilt að taka við kvört­unum í trún­aði og hvernig bregð­ast ætti við.

Þannig sitja þær spurn­ingar eftir hvort nafn­lausar ásak­anir hafi eitt­hvert gildi og hver vilji lög­gjafans er í þessum efnum.

Nýjar leikreglur?

Við með­ferð máls­ins fyrir dómi sagði Atli Rafn að MeToo-bylt­ingin hefði orðið til þess að nýjar leik­g­reglur giltu í sam­fé­lag­inu. Vísir.is hafði eftir leik­ar­anum að honum hefði verið haldið í algjöru myrkri um ásak­an­irnar sem hefðu orðið til þess að honum var sagt upp. Upp­sögnin hefði haft gríð­ar­leg áhrif á hann per­sónu­lega og atvinnu­mögu­leikar hans væru nú í „rusl­flokki“.

Atli Rafn vildi ekki kann­ast við þá hegðun sem á hann var borin en sagð­ist kann­ast við eina „lyga­sögu“ sem var meðal þeirra frá­sagna sem settar voru fram undir merkjum MeToo. Sagan hefði verið á þá leið að hann hefði verið drukk­inn við tökur á kvik­mynd og stungið tung­unni upp í með­leikkonu sína. Hann hefði fengið þau svör frá leik­hús­stjóra að sagan sú væri ekki ástæða upp­sagn­ar­innar en sjálfur taldi hann sög­una örugg­lega hafa haft áhrif.

Steinunn Ólína.

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir var meðal þeirra sem tjáðu sig opin­ber­lega um málið og sagði MeToo-bylt­ing­una til lít­ils ef konur gætu nú ekki án ótta og kvíða komið fram undir nafni. „Ef ekki, verður þetta mál aldrei leyst og mann­orð Atla Rafns eyði­lagt fyrir lífs­tíð á afar vafasömum for­sendum. Sem er ólíð­andi og svo­kall­aðri MeToo-bylt­ingu til háð­ungar,“ sagði hún á Facebook áður en dómur féll.

„Ef ekki, verður þetta mál aldrei leyst og mann­orð Atla Rafns eyði­lagt fyrir lífs­tíð…“

Þórdís Elva Þor­valds­dóttir, rit­höf­undur og bar­áttu­kona, not­aði hins vegar tæki­færið til að gagn­rýna dóma­fram­kvæmd­ina í kyn­ferð­is­brota­málum. „Nú eru [Atla Rafni] dæmdar hærri bætur en nokkur nauðg­un­ar­brota­þoli í sögu lands­ins hefur fengið. Hærri en 17 ára stúlka sem var haldið fang­inni og nauðgað heila helgi. Hærri en allir hópnauðg­un­ar­þolendur Íslands, líka þær sem smit­uð­ust af ólækn­andi sjúk­dómi við ofbeldið. Hærri en allir sem hafa verið mis­not­aðir og sviptir æsku sinni. Burtséð frá sekt eða sak­leysi ein­stakra manna er þessi heild­ar­mynd ramm­skökk.“

Sjá einnig: Atli fær 5,5 millj­ónir í bætur

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina