Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Fólk vill ekki sjá rasismann hérna“

Pape Mamadou Faye flutti til Íslands frá Senegal ell­efu ára gam­all. Hann hefur áður rætt opin­skátt um þá kyn­þátta­for­dóma sem hann hefur orðið fyrir hér á landi þau sautján ár sem liðin eru. Hann er í fyrstu tregur til að ræða það mál í einu við­tal­inu enn en lætur að lokum til­leið­ast.

„Fólk vill ekki sjá rasismann hérna“

Ástæða þess að Pape flutti til Íslands var að móðir hans hafði flutt hingað þremur árum fyrr og gifst senegölskum manni sem hér bjó. Pape hafði dvalið hjá föður sínum í Senegal þessi þrjú ár og hann segir það hafa verið gríð­ar­legt menn­ing­ar­sjokk að koma í kuld­ann og myrkrið á Íslandi.

„Ég kom hingað í jan­ú­ar­mán­uði,“ útskýrir hann. „Þannig að mun­ur­inn á hita­stig­inu var ansi mik­ill. Svo ekki sé minnst á myrkrið. Ég var samt auð­vitað mjög glaður að vera kom­inn til mömmu og fá að vera hjá henni. Ég var með heim­þrá fyrstu vik­urnar en svo byrj­aði ég í Aust­ur­bæj­ar­skóla og þá breytt­ist allt til batn­aðar.“

Hlaut að vera körfuboltamaður

Pape seg­ist hafa verið mjög hepp­inn með bekk­inn sem hann lenti í og bekkj­ar­bræður hans hafi séð til þess að honum fynd­ist hann strax vel­kom­inn. Hann hafi ekki orðið fyrir neinu aðkasti vegna húð­litar síns en hins vegar hafi skóla­systk­ini sín haft ansi mót­aðar fyrir fram hug­myndir um hvað strák af hans kyn­þætti fynd­ist gaman.

„Ég hafði alltaf haft mik­inn áhuga á fót­bolta og spilað mikið en þegar ég kom í Aust­ur­bæj­ar­skóla gengu allir út frá því að ég væri körfu­bolta­maður. Það var bara við­tekin hug­mynd á Íslandi á þeim tíma að allir svartir menn væru körfu­bolta­menn,“ bætir hann við og skelli­hlær.

Pape Mamadou Faye flutti til Íslands frá Senegal ell­efu ára gam­all.

Pape byrj­aði að æfa körfu­bolta með skóla­fé­lögum sínum en var líka í fót­bolta og náði góðum árangri í báðum greinum. Þegar hann var sextán ára þurfti hann hins vegar að velja á milli og valdi auð­vitað fót­bolt­ann.

„…ég var nýkom­inn en lenti hjá for­dóma­fullum þjálf­ara sem vildi ekki dökkan strák í liðið sitt svo ég fór aldrei þangað aftur.“

„Fót­bolt­inn var alltaf fyrsti kost­ur­inn hjá mér,“ segir hann. „Ég byrj­aði hins vegar ekki að æfa hann á fullu fyrr en ég flutti í Árbæinn sex mán­uðum eftir að ég kom til lands­ins. Ég fór á eina æfingu hjá Val þegar ég var nýkom­inn en lenti hjá for­dóma­fullum þjálf­ara sem vildi ekki dökkan strák í liðið sitt svo ég fór aldrei þangað aftur.“

Í Árbænum fór Pape að æfa með Fylki og þar var hann strax með­tek­inn, segir hann.

„Ég lenti í frá­bærum hóp með strákum sem þótti vænt um mig og þykir enn, þannig að mér fannst ég aldrei vera utan­veltu þar,“ útskýrir hann. „Ég spil­aði með Fylki þangað til ég varð nítján ára en þá skipti ég um lið og hef síðan spilað með ýmsum liðum.“

Sárast hvað margir verja fordómana

Eftir að Pape fór að spila keppn­is­leiki varð hann fyrir for­dómum frá áhorf­endum, oft­ast for­eldrum mót­spilar­anna í yngri deild­unum. Hann segir það hins vegar mis­skiln­ing að það séu meiri for­dómar innan íþrótta­hreyf­ing­ar­innar en ann­ars staðar, þetta sé bara rót­gróið við­horf á Íslandi.

„Það var oft vesen út af þessu á þeim tíma,“ segir hann. „Ég og annar dökkur strákur, sem er kom­inn í A-lands­liðið núna, fengum alveg að heyra það frá for­eldr­unum sem köll­uðu okkur n-orð­inu og fleiri niðr­andi orðum sem voru mjög sær­andi.“

Pape hefur und­an­farin ár spilað með Víkingi í Ólafsvík og komst í fréttir fyrr í sumar þegar hann tjáði sig um þau ummæli Björg­vins Stef­áns­sonar, leik­manns KR, að það væri svo stutt í villi­mann­seðlið hjá svarta mann­inum eftir atvik í leik sem Björgvin var að lýsa. Pape segir þau ummæli hafa haft djúp­stæð áhrif á sig, en það sem kannski hafi sært mest hafi verið hve margir voru til­búnir að rétt­læta þau og gera lítið úr þeim.

„Ég varð reiður, ég við­ur­kenni það, og enn reið­ari vegna við­bragð­anna. Það virt­ist öllum finn­ast þetta allt í lagi.“

„Ég hef áður farið í svona við­töl og sagt frá minni reynslu,“ segir hann. „Og ég hef upp­lifað að margir trúa mér ekki. Halda því blákalt fram að svona hlutir ger­ist ekki á Íslandi. Mér finnst mjög und­ar­legt að fólk sem aldrei hefur lent í neinu svona taki þá afstöðu, hvers vegna ætti ég að vera að ljúga þessu? Þetta við­horf er svo hættu­legt. Það kom svo vel í ljós í þessu atviki með Björgvin í sumar, það voru nán­ast allir til­búnir til að verja hann og gera lítið úr þessum ummælum, en þetta hafði mikil áhrif á mig og ég átti erfitt með svefn þetta kvöld. Ég varð reiður, ég við­ur­kenni það, og enn reið­ari vegna við­bragð­anna. Það virt­ist öllum finn­ast þetta allt í lagi.“

Hræddur við að ala upp barn á Íslandi

Pape við­ur­kennir að hann verði oft mjög þreyttur á því að tala um reynslu sína og ann­arra þar sem það virð­ist aldrei vera gert neitt í þeim for­dóma­málum sem koma upp. Fólk kom­ist mjög auð­veld­lega upp með að viðra for­dóma sína opin­ber­lega, þrátt fyrir að það séu í gildi lög sem banna hat­urs­orð­ræðu í garð minni­hluta­hópa. Það geri hann mjög von­lít­inn um að þetta breyt­ist til batn­aðar. Það sé æpt á hann að drulla sér heim þegar hann gengur um göt­urnar, stelpur sem hann sé að deita verði fyrir aðkasti fyrir það að vera með honum, hann sé kall­aður Djangó og svo fram­vegis og svo fram­vegis, en það virð­ist bara flestir loka aug­unum fyrir þessu og á meðan svo sé muni ekk­ert breyt­ast.

„Ég hef þurft að þola þetta síðan ég var ung­lingur,“ segir hann. „Og nú er ég kom­inn á þann aldur að mig langar til að eign­ast barn en ég hræð­ist það. Ég vil ekki að barnið mitt lendi í þessu ógeði og ég sé ekki fram á að þetta breyt­ist neitt.“

Pape seg­ist oft velta fyrir sér að flytja úr landi en hann eigi orðið stóra og sam­heldna fjöl­skyldu hér og sé búinn að skjóta rótum á Íslandi.

„Við erum orðin um tutt­ugu, fjöl­skyldan hérna,“ segir hann. „Og þau eru fólkið mitt sem ég vil vera hjá. Ég fer samt heim til Senegal á hverju ári til að næra sál­ina. Það er alveg nauð­syn­legt. Þar fellur maður inn í hóp­inn og það er eng­inn að niðra mann. Maður fær bara að vera það sem maður er í friði. Þess vegna vissi ég ekki að ras­ismi væri til fyrr en ég flutti til Íslands. Ekki mis­skilja mig, það er mjög mikið af góðu fólki hérna, geggj­uðum sálum, en það er líka alltof mikið af fávitum.“

Sjá einnig: Kyn­þátta­for­dómar eru að aukast

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina