Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Hvítur, hvítur dagur verður framlag Íslands til Óskarsverðlauna 2020

Kvik­myndin Hvítur, hvítur dagur verður fram­lag Íslands til Ósk­arsverð­launa 2020.

Hvítur, hvítur dagur verður framlag Íslands til Óskarsverðlauna 2020
|Ída Mekkín og Ingvar E. Sig­urðs­son í hlut­verkum sínum í Hvítur

Hlaut hún afger­andi sigur í raf­rænni atkvæða­greiðslu um fram­lag Íslands, en það eru með­limir í ÍKSA, Íslensku kvik­mynda og sjón­varps­aka­dem­í­unni sem hafa kosn­inga­rétt.

Hlynur Pálmason leik­stýrði og skrif­aði hand­ritið að Hvítum, hvítum degi sem var heims­frum­sýnd á Critics‘ Week, hlið­ar­dag­skrá kvik­mynda­há­tíð­ar­innar í Cannes, í maí. Þar var aðal­leik­ari mynd­ar­innar, Ingvar Sig­urðs­son, jafn­framt val­inn besti leik­ar­inn fyrir leik sinn í mynd­inni. Ingvar var einnig val­inn besti leik­ar­inn á kvik­mynda­há­tíð­inni í Tran­syl­vaníu fyrir sama hlut­verk, auk þess sem Hvítur, hvítur dagur var valin besta mynd kvik­mynda­há­tíð­ar­innar í Motovun í Króatíu. Myndin hefur einnig verið valin inn á fjölda ann­arra stórra hátíða, þar á meðal Karlovy Vary, Toronto, Busan og Hamptons, og hefur nú þegar verið seld til yfir 30 landa víðs­vegar um heim­inn.

Hvítur, hvítur dagur er enfremur sú íslenska kvik­mynd sem til­nefnd er til Kvik­mynda­verð­launa Norð­ur­landa­ráðs í ár og keppir þar með við fjórar aðrar myndir frá Danmörku, Finn­landi, Noregi og Svíþjóð. Þá hefur myndin hefur einnig verið valin sem ein af 46 kvik­myndum í for­vali fyrir Evrópsku kvik­mynda­verð­launin í ár.

Hvítur, hvítur dagur er önnur kvik­mynd Hlyns Pálma­sonar í fullri lengd á eftir hinni dönsku/íslensku Vetr­ar­bæðrum sem kom út árið 2017 og fór sig­ur­för um heim­inn í kjöl­far heims­frum­sýn­ingu í aðal­keppni Locarno kvik­mynda­há­tíð­ar­innar í Sviss í ágúst 2017. Sú mynd hefur unnið til yfir þrjá­tíu alþjóð­legra verð­launa, þar af níu Robert verð­laun og tvenn Bodil verð­laun í Danmörku. Hlynur Pálmason vann einnig til Dreyer verð­laun­anna á síð­asta ári fyrir fram­úr­skar­andi list­ræna hæfni.

Kvik­myndin Hvítur, hvítur dagur verður fram­lag Íslands til Ósk­arsverð­launa 2020.

Hvítur, hvítur dagur er fram­leidd af Antoni Mána Svans­syni fyrir Join Motion Pictures, en helstu leik­arar eru Ingvar E. Sig­urðs­son, Ída Mekkín Hlyns­dóttir, Hilmir Snær Guðnason, Arn­mundur Ernst Backman, Björn Ingi Hilm­ars­son, Elma Stefanía Ágústs­dóttir, Haraldur Ari Stef­áns­son, Laufey Elí­as­dóttir, Sara Dögg Ásgeirs­dóttir, Sigurður Sig­ur­jóns­son, Sverrir Þór Sverr­is­son, Þór Tulinius.

Stjórn kvik­mynda­töku var í höndum Mariu von Hausswolff og Julius Krebs Damsbo sá um klipp­ingu mynd­ar­innar. Hljóð­hönn­uður mynd­ar­innar var Lars Hal­vor­sen, leik­mynda­hönn­uður Hulda Helga­dóttir og tón­listin er eftir Edmund Finnis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag