Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Tölum um mötuneyti barna: Kjötbolur, menningarstríð, sjómann og kúgunarpólitík á við Austur-Berlín

Mötu­neyti skóla­barna eru póli­tískt hita­mál í kjöl­far yfir­lýs­ingar Lífar Magneu­dóttur, borg­ar­full­trúa VG, um að meiri­huti Sam­fylk­ingar, Við­reisnar, Pírata og VG sé sam­mála um að minnka hlut­fall dýra­af­urða í mötu­neytum borg­ar­innar.

Tölum um mötuneyti barna: Kjötbolur, menningarstríð, sjómann og kúgunarpólitík á við Austur-Berlín

Við­brögðin hafa ekki staðið á sér. Eyþór Arn­alds­son, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, birti mynd af sér í kjöt­bol og Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, líkti meiri­hlut­anum við borg­ar­yf­ir­völd í Austur-Berlín.

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, odd­viti Pírata, brást harka­lega við og sagði Eyþór „stökkva eins og alltaf á tæki­færi til að skruma.“ Hún sagði Eyþór vita full­vel að ekki stæði til að „troða vegan­isma ofan í kokið á einum né neinum“ en stæði ein­fald­lega á sama. Hún sagði flokk­inn leggja upp í „enn eitt menn­ing­ar­stríðið“ sem mið­aði að því að hræða Sjálf­stæð­is­fólk til að trúa því að „menn­ing­armarx­ist­arnir í borg­ar­meiri­hlut­anum“ séu ógn við lífs­gæði þeirra.

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn virð­ist ekki standa fyrir neitt annað en til­finn­inga­legt upp­nám yfir ímynd­uðum ofsóknum. Ef það eru ekki mötu­neyti starfs­manna sem eru fyrir þeim þá eru það reið­hjól, mat­hallir eða borg­ar­lína. Alltaf eru skila­boðin sú að lífs­gæði hefð­bund­inna Sjálf­stæð­is­manna standi ógn af menn­ing­armarx­ist­unum í borg­ar­meiri­hlut­anum. Agalega er þetta kjána­legt alltaf og ófrum­legt,“ skrif­aði Dóra í kjöl­far kjöt­bols Eyþórs.

Í sam­tali við Morg­un­blaðið velti Dóra upp þeirri spurn­ingu hvort Eyþór hafi átt kjöt­bol eða pantað sér­stak­lega fyrir til­efnið. „Mér finnst það bara hall­æris­legt að fara í ein­hvern kjöt­bol og það eina sem ég get hugsað þegar ég sé svona vit­leysu er hvort Eyþór Arn­alds hafi í al­vöru átt kjöt­bol inni í skápn­um hjá sér, eða var hann pant­aður sér­stak­lega til að búa til póli­tískt upp­þot? Þetta er bara vand­ræðal­egt,“ hefur Morg­un­blaðið eftir odd­vita Pírata.

Eyþór og Heiða sátu fyrir svörum í Kastljósinu

Oddviti Sjálf­stæð­is­flokksns sat fyrir svörum ásamt Heiðu Björgu Hilm­is­dóttur, borg­ar­full­trúa og vara­for­manni Sam­fylk­ing­ar­innar, í Kast­ljósi á þriðju­dag. Þar benti Heiða á að sam­þykkt hefði verið mat­ar­stefna fyrir borg­ina og að ekki stæði til að banna kjöt í mötu­neytum borg­ar­innar. Þvert á móti standi til að auka val um græn­met­is­fæði og auka hlut­fall þess. Það leiði óhjá­kvæm­lega til þess að dýra­af­urðir minnki. Þessu and­mælti Eyþór og taldi að minnka ætti val. Þá benti hann á að sjálfur aki hann á raf­magsnbíl en borg­ar­stjóri á dísel­bíl.

„Eyþór: Mér finnst að við eigum að byrja á okkur sjálfum en ekki börn­unum. Heiða: Það gerir nú lítið fyrir heild­ar­mynd­ina ef ein­ungis 23 borg­ar­full­trúar borða minna af kjöti. Eyþór: Já… en raf­bíla­væð­ingin,” skrif­aði Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir, for­maður skipu­lags­ráðs og borg­ar­full­túi Pírata, eftir Kast­ljós­þátt­inn og skaut á mál­flutn­ing odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Skoraði á Eyþór í sjómann

Þar hafði þó sól ekki sest á málið því áður en dag­ur­inn rann sitt skeið skor­aði leik­ar­inn Arn­mundur Ernst Backman á Eyþór í sjó­mann. „Eyþór Arnalds, ég hef verið vegan í ca. 4 ár,” sagði hann í færslu á Facebook. „Ég skora hér með form­lega á þig í sjó­mann og þá getum við skorið úr hvort prótín­magn í vegan­fæðu sé raun­veru­legt vanda­mál.” Þá deildi hann færsl­unni einnig á síð­unni Vegan Ísland.

En hvernig hófst málið allt saman?

Samtök græn­kera á Íslandi sendu sveit­ar­fé­lögum áskorun fyrir stuttu um að draga veru­lega úr fram­boði eða jafn­vel hætta að bjóða dýra­af­urðir í mötu­neytum skóla. Áskor­un­ina tengja sam­tökin við að minnka kolefn­is­spor í bar­áttu gegn ham­fara­hlýnun. Líf Magneu­dóttir sýndi áskor­un­inni áhuga. Þá sagði hún meiri­hlut­ann ætla skoða val­mögu­leik­ana.

„Mér finnst alveg þess virði að skoða það og ég er hæstá­nægð með yfir­lýs­ingu græn­kera sem er mikil og góð hvatn­ing,” sagði Líf í sam­tali við RÚV. „Ég held að það sé skyn­sam­legt og ég held að það sé öllum ljóst að við ætlum að grípa til ein­hverra aðgerða. Við sam­þykktum mat­ar­stefnu á síð­asta kjör­tíma­bili sem við erum að inn­leiða núna og svo erum við að fara að taka til end­ur­skoð­unar aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum og þar kemur þetta vel inn.“

Líf segir að mat­ur­inn hafi verið tek­inn í gegn fyrir nokkrum árum og nú sé meg­in­uppi­staðan græn­meti, ávextir og mjólk. Þá sé miðað við að hafa fisk tvisvar í viku og kjöt einu sinni til tvisvar. Alltaf sé eitt­hvert fram­boð af græn­met­is­réttum. Hún segir ein­hug hjá meiri­hlut­anum í Reykja­vík að skoða það að minnka fram­boð dýra­af­urða veru­lega í grunn­skólum borg­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina