Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kolfallinn fyrir súrsuðu grænmeti

Senni­lega eru ekki margir ungir menn að fikta við að súrsa græn­meti heima hjá sér á kvöldin en það gerir hann Grettir Gautason. Grettir hefur verið að prófa sig áfram í gerð súrs­aðs græn­metis síð­ustu ár og er eig­in­lega kol­fall­inn fyrir þeirri iðju, að hans sögn.

Kolfallinn fyrir súrsuðu grænmeti
|sdk­djs|„Eitt snið­ugt ráð er að eiga til vökvann í súrs­aða lauk­inn í 2 lítra plast­flösku. Þá er ein­falt að setja lauk­inn í vökvann að morgni eða um hádegi ef á að grilla t.d.ham­borg­ara um kvöldið

Við fréttum af þessu skemmti­lega áhuga­máli og fengum að koma í heim­sókn og smakka. Grettir gefur les­endum upp­skriftir að ein­földu súr­suðu græn­meti sem tekur enga stund að gera, kostar lítið og allir geta gert.

„Margir veit­inga­staðir voru með heilu vegg­ina af krukkum af alls­konar súr­suðu græn­meti.“

En hvernig hófst þessi áhugi? „Það var þegar við félag­arnir fórum í tveggja vikna ferða­lag til Austur-Evrópu haustið 2016. Fyrsti við­komu­stað­ur­inn var Varsjá og það gerð­ist eitt­hvað á fyrsta veit­inga­staðnum sem við fórum á. Við pönt­uðum okkur snit­sel og bjór og svo átti að vera salat með. Þegar sal­atið kom rákum við upp stór augu því allt sal­atið var ekki annað en 2 msk. af rifnum súr­suðum gul­rótum. En við átum þetta með bestu lyst og fórum strax að spá í hvernig þetta væri gert. Við fórum til staða eins og Krakár, Búdapest, Vínar, Prag og Berlínar og fengum okkur alltaf eitt­hvað súrsað á hverjum stað, eins og gúrkur, gul­rætur, lauk, perlu­lauk, hvít­lauk og papriku. Margir veit­inga­staðir voru með heilu vegg­ina af krukkum af alls­konar súr­suðu græn­meti,“ segir Grettir.

Grettir hefur verið að prófa sig áfram í gerð súrs­aðs græn­metis síð­ustu ár.

Það kom fljót­lega í ljós að fyrir utan að kunna að súrsa græn­meti er Grettir mik­ill mat­gæð­ingur og sá sem fær að hafa völdin í eld­hús­inu heima hjá sér.

„Þegar ég fór að leigja mér á mennta­skóla­ár­unum og þurfti að bjarga mér sjálfur, voru það nú bara hakk­réttir og til­búnir réttir sem lentu á pönn­unni en eftir að ég fór að búa með kærust­unni minni fór ég að elda fyrir alvöru. Ég er reyndar alinn upp við mikla og góða elda­mennsku frá mömmu sem alltaf er að prófa eitt­hvað nýtt og hef því lært mikið af henni.“

Súrsað chili-aldin

2 ½ -3 dl ferskt chili-aldin, skorið niður í frekar smáa bita
1 msk. salt
1 msk. sykur
1-2 hvít­lauks­geirar, smátt saxaðir, fer eftir hversu mikið bragð hver vill
hvítvín­sedik eftir þörfum
1 með­al­stór gler­krukka með loki

Setjið chili-aldin í skál ásamt salti, sykri og hvít­lauk. Kreistið saman með fingr­unum. Gott að nota einnota hanska en ef þeir eru ekki við hend­ina er gott að muna að þvo sér vel um hend­urnar. Hellið yfir það ediki þannig að það fljóti yfir og látið standa í 2 klst. við stofu­hita.

Grettir segir okkur frá því að gott sé að hafa súrsað í partíum, t.d. gúrkur og chili, því saltið í leg­inum virki vel sem mót­vægi við vín­drykkju.

Ágætt er að nota tím­ann á meðan og sótt­hreinsa krukk­una með sjóð­andi vatni. Setjið í krukk­una og fyllið upp með ediki. Geymist vel í ísskáp í að minnsta kosti 2 mán­uði.

Súrsaður rauðlaukur

1 rauð­laukur, skor­inn í 5 mm þykkar sneiðar
1 ½ dl vatn
1 ½ dl hvítvín­sedik
1 ½ tsk. salt
nokkur pip­ar­korn
kórí­and­er­fræ eða hvít­laukur, eftir smekk

Setjið lauk­inn í sjóð­andi vatn í eina mín­útu, hellið vatn­inu frá og setjið í sótt­hreins­aða krukku. Blandið vökva og kryddi saman og hellið yfir lauk­inn. Lokið krukk­unni og geymið í ísskáp. Má geyma allt upp í 2 vikur í kæli.

„Eitt snið­ugt ráð er að eiga til vökvann í súrs­aða lauk­inn í 2 lítra plast­flösku. Þá er ein­falt að setja lauk­inn í vökvann að morgni eða um hádegi ef á að grilla t.d.ham­borg­ara um kvöldið,“ segir Grettir.

Lauk­ur­inn er mjög góður á ham­borg­ara og ýmis­konar steik­ar­sam­lokur. Einnig sem með­læti með kjöti og jafn­vel fiski. Grettir hvetur fólk til að prófa ýmis krydd eins og kórí­and­er­fræ eða hvít­lauk.

Myndir / Unnur Magna

Þess má geta að í upp­skeru­hand­bók Gest­gjafans, sem er nýkomin út, er að finna fjöl­breyttar upp­skriftir og hug­myndir að súr­suðu og pikkluðu græn­meti og ávöxtum. Tilvalið fyrir þá sem langar til að prófa sig áfram með súrsað og pikklað.

Tryggðu þér áskrift að Gest­gjaf­anum í vef­verslun

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni