Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vafraðu um Kringluna á Netinu

Vafraðu um Kringluna á Netinu
Mynd af Josh Groban / EPA

Kringlan í sam­starfi við Stúdíó Birtíng

Stafræn Kringla býður upp á bylt­ing­ar­kennda vöru­leit þar sem heil versl­un­ar­mið­stöð er tengd undir einum hatti. Hægt er að sækja vör­urnar í póst­box Kringl­unnar á 2. hæð til mið­nættis.

„Undir lok síð­asta árs setti Kringlan nýja staf­ræna lausn í loftið undir heit­inu Stafræn Kringla en breyt­ing­arnar snúa fyrst og fremst að því að mæta lyk­il­þörfum við­skipta­vina nútím­ans sem kalla eftir staf­rænu aðgengi að breiðu vöru­úr­vali,“ segir Aldís Eva Krist­jáns­dóttir, staf­rænn sér­fræð­ingur hjá Kringl­unni. „Með staf­rænni Kringlu er hægt að fara í versl­un­ar­ferð um Kringl­una hvenær sól­ar­hrings­ins sem er í gegnum vef­síð­una kringlan.is. Við bjóðum upp á bylt­ing­ar­kennda vöru­leit þar sem við höfum tengt heila versl­un­ar­mið­stöð undir einn hatt og hægt er að skoða yfir 100.000 vörur frá um 70 versl­unum og þeim fjölgar sífellt.“

„Við bjóðum upp á bylt­ing­ar­kennda vöru­leit þar sem við höfum tengt heila versl­un­ar­mið­stöð undir einn hatt og hægt er að skoða yfir 100.000 vörur frá um 70 versl­unum og þeim fjölgar sífellt,“ segir Aldís.

Kringlan hefur tekið fleiri staf­ræna þjón­ustu­þætti í gagnið, að hennar sögn. „Kringlu­appið okkar kom út síð­asta sumar þar sem sjá má allar upp­lýs­ingar um gild­andi til­boð í Kringl­unni hverju sinni, upp­lýs­ingar um allar versl­anir, veit­inga­staði og þjón­ustu­að­ila og hvar þau eru stað­sett í hús­inu.

Við opn­uðum síðan nýtt þjón­ustu­ver á 2. hæð þar sem póst­box Kringl­unnar eru meðal ann­ars stað­sett. Þangað geta net­versl­anir versl­ana í Kringl­unni og ann­ars staðar boðið við­skipta­vinum að sækja vörur sínar og er opið til mið­nættis.“

Einnig hafa tveir gagn­virkir leið­ar­vísar verið settir upp í Kringl­unni sem aðstoða við­skipta­vini við leit að upp­lýs­ingum um hvar versl­anir eru stað­settar, miðla helstu fréttum og til­boðum og bjóða upp á leit­ar­vél. „Við munum svo fjölga þeim um tvo á næstu mán­uðum en þeir hafa reynst við­skipta­vinum mjög vel.“

Vöruleitin algjör bylting

Að sögn Aldísar er vöru­leitin algjör bylt­ing þar sem ein versl­un­ar­mið­stöð hefur verið tengd undir einn hatt og er eins og versl­un­ar­gluggi á ver­ald­ar­vefnum. „Þar er hægt að skoða yfir 100.000 vörur frá um 70 versl­unum og fer þeim alltaf fjölg­andi, eins og fyrr segir, og hjá flestum þeirra er hægt að klára kaupin á skömmum tíma. Einnig er hægt að leita að vörum með hjálp leit­ar­orða, eftir flokkum og öðrum leiðum.“

Hægt er að leita að vörum í app­inu með hjálp leit­ar­orða, eftir flokkum og öðrum leiðum.

Hún segir tækni­lega flókið að koma úrvali Kringl­unnar á fram­færi á einum stað. „Tækni­lausnin sem við vinnum með hefur gert okkur kleift að bjóða öllum versl­unum að vera með, hvort sem þær eru með net­verslun eða ekki, stórar eða smáar. Margar versl­anir eru því að færa sig yfir á Netið í fyrsta sinn og við vinnum þessi mál mjög náið með versl­un­ar­eig­endum.“

Aldís segir stjórn­endur Kringl­unnar hafa upp­lifað mjög mikla ánægju meðal við­skipta­vina fyrir síð­ustu jól. „Þá buðum við einnig upp á aðstoð við jóla­gjafa­leit sem fór fram á „messen­ger“ og gaf hug­myndir að vörum af vefnum okkar, miðað við þær for­sendur sem við­skipta­vin­ur­inn óskaði eftir.“

Þrátt fyrir að vera afar ánægð með vöru­leit­ina segir Aldís að hún sé í stöðugri þróun. „Það er einmitt gaman að segja frá því að vef­ur­inn okkar, kringlan.is, var til­nefndur til íslensku vef­verð­launa, SVEF, nú á dög­unum.“

Aðsókn aukist síðustu daga

Nýja þjón­ustu­verið þar sem Kringlu­póst­boxið er, hefur vakið mikla lukku, að sögn Aldísar, en þangað er hægt að sækja vörur sem eru pant­aðar á Netinu og við­skipta­vinir upp­götva í gegnum kringlan.is. „Við­skipta­vinir sækja vör­urnar þegar þeim hentar, snemma á morgn­ana eða seint á kvöldin. Versl­anir í Kringl­unni hafa einnig verið mjög öfl­ugar á síð­ustu dögum og boðið upp á ókeypis heim­send­ingar. Við finnum gríð­ar­lega aukn­ingu í heim­sóknum á vef okkar og  auknum tíma sem við­skipta­vinir verja þar og und­ir­búa kaupin. Það er því óhætt að segja að í ljósi aðstæðna í sam­fé­lag­inu um þessar mundir hafi versl­unin í Kringl­unni færst mikið á vef­inn.“

„Stafræn Kringla er bara rétt að byrja,“ segir Aldís.

Fleiri breyt­ingar verða kynntar síðar á árinu, að sögn Aldísar. „Stafræn Kringla er bara rétt að byrja, tækni og öll þróun er á fljúg­andi ferð bæði í Kringlu­app­inu og á kringlan.is. Miðað við við­brögðin sem við fáum frá við­skipta­vinum er ekki spurn­ing að þessi skref eru nauð­syn­leg og við munum halda áfram að þróa staf­ræna efnið okkar og klæð­skera­sníða það fyrir við­skipta­vini okkar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur