Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Hvern ertu að reyna að sannfæra?“

„Hvern ertu að reyna að sannfæra?“

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Þegar systir mín gifti sig var ég viss um að sam­band hennar við mann sinn yrði far­sælt, svo ást­fangin voru þau og til­búin til að verja líf­inu saman. Þrjátíu árum síðar virt­ist allt vera í lukk­unnar vel­standi en svo heyrði ég sam­tal á milli hennar og vin­konu hennar.

Allt gerð­ist hratt hjá Stínu og Jonna eftir að þau kynnt­ust. Þau giftu sig fljót­lega og börnin þrjú komu í heim­inn með skömmu milli­bili. Jonni var og er í sér­trú­ar­söfn­uði og Stína gerð­ist fljót­lega með­limur. Mér fannst það þó með hálfum huga því hún var aldrei áhuga­söm um söfn­uð­inn en gerði það fyrir mann sinn. Hún var þó aldrei virk þar en Jonni lagði áherslu á að börnin þeirra tækju virkan þátt í starf­inu frá unga aldri.

Við ólumst upp í bæj­ar­fé­lagi á Suð­ur­landi og þar bý ég enn, einnig for­eldrar okkar og systk­ini. Stína býr með Jonna í fal­legu rað­húsi í Reykja­vík. Jonni er iðn­að­ar­maður, fær í sínu fagi og eft­ir­sóttur vinnu­kraftur.

Ómannblendinn durtur

Jonni hafði í upp­hafi gefið Stínu það lof­orð að einn góðan veð­ur­dag myndu þau flytja í heima­bæ­inn okkar, enda nóg fyrir hann að gera alls staðar. Árin liðu bara svo hratt, börnin stækk­uðu, alltaf brjálað að gera hjá Jonna og Stína komin í góða vinnu. Þó fann ég að hún þráði að flytja á æsku­slóð­irnar og Jonni gaf alltaf í skyn að þangað flyttu þau, bara ekki „núna“.

Ég heim­sótti þau frekar oft, sér­stak­lega á meðan börnin mín voru lítil og gisti hjá þeim. Stína er afar gest­risin og frá­bær kokkur. Hún er hlý og góð mann­eskja sem er alltaf boðin og búin til að hjálpa öðrum. Jonni er aftur á móti hlé­drægur og á mörkum þess að vera dóna­legur við fólk, það dregst varla upp úr honum orð. Hann kannski rétt borð­aði með okkur þegar ég var í heim­sókn og lét sig svo hverfa án þess að kveðja. Hann skán­aði lítið með árunum. Ég hefði haft áhyggjur ef Stína hefði ekki talað svona mikið um hversu dásam­legur og gjaf­mildur hann væri. Eitt stakk mig þó og það var að hún sagði stundum að hann hefði „leyft“ sér að kaupa eitt­hvað. Ég spurði hana hvort hún þyrfti leyfi eins og krakki til þess. Hún neit­aði því og sagði að hún hefði bara orðað þetta asna­lega. Ég stóð hana oftar að því að segja þetta en sagði ekk­ert, hún ræður því sjálf hvernig hún talar. Það gladdi mig hversu ást­fangin hún var alltaf af Jonna sínum og hve góður hann var við hana, að hennar sögn.

Jonni átti enga vini, hann umgekkst bara bróður sinn, vinnu­fé­laga og trú­bræður. Mig fór reyndar að gruna að honum fynd­ist óþægi­legt að vera í sam­skiptum við fólk sem trúði „á rangan hátt“ eða bara alls ekki, þótt hann virt­ist sætta sig við hlut­leysi systur minnar gagn­vart söf­uð­inum. Við Stína ræddum sjaldan trú­mál og hún minnt­ist ekki oft á þennan söfnuð. Hann þótti frekar frjáls­lyndur, svona út á við, en mér hafði þó skilist á Stínu að þar grass­er­uðu þó miklir for­dómar.

Kvennagarðpartí

Þegar Stína varð fimm­tug fóru þau hjónin í helg­ar­ferð til útlanda. Mér skild­ist að það hefði verið erfitt að draga hann með því hann vildi helst ekki ferð­ast. Skömmu seinna hélt hún kvenna­boð heima hjá sér, í til­efni afmæl­is­ins.

Partíið var glæsi­legt. Stína hafði útbúið pinna­mat og við drukkum létt­vín eða gos með. Jonni drakk ekki, það var ekki liðið í söfn­uð­inum en hann hefur greini­lega horft fram hjá vín­veit­ing­unum í boð­inu. Dóttir Stínu og tengda­dæt­urnar mættu snemma og létu sig hverfa fljótt. Þær tóku trúna mjög alvar­lega, ynd­is­legar ungar konur allar þrjár, og dæmdu engan, kærðu sig bara ekki um að lengi fyrst vín var haft um hönd.

Veðrið var afar gott svo kon­urnar, vin­konur og frænkur, höfðu það gott í fal­lega upp­lýstum garð­inum. Það var komið fram í sept­em­ber og ótrú­lega hlýtt úti.

Þegar nokkuð var liðið á kvöldið fór ég inn í eld­hús með óhreint leir­tau úr garð­inum og heyrði þá að Stína og Guðrún, besta vin­kona hennar, voru að spjalla saman inni í myrkri stof­unni. Þær voru báðar orðnar drukknar og heyrðu ábyggi­lega ekki í mér þótt ég væri farin að setja í upp­þvotta­vél­ina og taka til í eld­hús­inu. Ein­hverjir gestir voru farnir heim en allir nema við þrjár voru enn úti í garði. Stína var að tala um elsku Jonna sinn, eins og svo oft áður, og þá heyrði ég að Guðrún sagði pirruð: „Hvern ertu að reyna að sann­færa? Mig eða þig?“ Svo fóru þær að kýta og ég heyrði að orðið ofbeldi kom fyrir. Ég vildi ekki hlusta á meira og fór aftur út í garð þungt hugsi. Ég ákvað að tala við Guðrúnu áður en ég ræddi við systur mína. Hvað var það sem ég vissi ekki?

„Stína var að tala um elsku Jonna sinn, eins og svo oft áður, og þá heyrði ég að Guðrún sagði pirruð: „Hvern ertu að reyna að sann­færa? Mig eða þig?““

Langvarandi fýla og þögn

Nokkrum dögum seinna hringdi ég í Guðrúnu. Hún tók mér vel en varð svo­lítið vand­ræða­leg þegar ég sagð­ist hafa heyrt hluta af sam­ræðum hennar og Stínu. Ég sagði henni að mig lang­aði að vita hvort ekki væri allt í lagi í hjóna­bandi Jonna og Stínu. Við syst­urnar værum góðar vin­konur en hún segði mér greini­lega ekki allt.

Guðrún sagð­ist hafa náð að slíta sig úr erf­iðu hjóna­bandi þar sem hún bjó við mikið and­legt ofbeldi og hún sæi skýr merki um slíkt í hjóna­bandi Stínu. Stína virt­ist mjög hrifin af manni sínum en hann kúg­aði hana á ýmsan hátt, meðal ann­ars með því að fara í langvar­andi fýlu og hætta að tala við hana ef hún gerði eitt­hvað sem honum þókn­að­ist ekki. Það þyrfti fárán­lega lítið til. Eitt sinn keypti Stína sér úlpu á útsölu, sú gamla var orðin slitin og ljót. Jonni tal­aði ekki við hana í tvær vikur því hún spurði ekki um leyfi!

Þótt hann væri iðn­að­ar­maður gerði hann aldrei neitt á heim­il­inu nema á allra síð­ustu stundu, hann rak t.d. enda­hnút­inn á park­et­lögn tveimur klukku­tímum áður en yngsta barnið átti að ferm­ast en veislan var haldin heima. Lengsta fýlan stóð í þrjá máuði, þá yrti hann ekki á konu sína. Hún hafði beðið mann vin­konu sinnar að laga eitt­hvað á heim­il­inu sem hún hafði marg­beðið Jonna um að gera.

Guðrún bætti því við að systir mín sull­aði í létt­víni nán­ast á hverju kvöldi. Stína var oft ein heima, Jonni vann mikið og ekki síst fyrir söfn­uð­inn. Nú á síð­ustu árum hefði hún farið að sulla, eins og til að ögra manni sínum. Hann virt­ist sætta sig við það eins og Stína við fýluköstin. Þau væru svo með­virk hvort með öðru í þessu óheil­brigða sam­bandi.

Ég lof­aði Guðrúnu að segja Stínu aldrei frá þessu sam­tali og hef staðið við það.

Stína kom í heim­sókn til mín nokkrum vikum seinna og þá gafst gott tæki­færi. Ég spurði hana hvort hún væri ham­ingju­söm. Auðvitað, sagði hún, og byrj­aði að lof­syngja Jonna, eins og svo oft áður. Ég sagði henni að ég hefði heyrt ávæn­ing af sam­tali hennar og Guðrúnar í kvennap­ar­tí­inu, þess vegna vissi ég að eitt­hvað væri að.

Tveir slæmir kostir

Fyrst vildi hún ekk­ert segja en svo fór hún að segja mér frá fýluköstum Jonna. Þau hjónin töl­uðu aldrei almenni­lega saman um það sem amaði að. Ástandið væri oft ban­eitrað. Allt gengi vel á meðan hún þókn­að­ist honum í einu og öllu og spyrði um leyfi. Helst hefði hann viljað að hún ynni ekki úti en starf hennar hafði kostað nokkur fýluköst. Í söfn­uð­inum var karl­inn æðri kon­unni svo Jonni þótti eflaust frjáls­lyndur að „leyfa“ henni að mæta ekki á sam­komur og að vinna fulla vinnu utan heim­ilis. Stína vildi meina að hann væri of dýr­mætur með­limur til að nokkur þyrði að gagn­rýna hann.

Oft hefði Stínu langað til að skilja við hann en þá hefði hún lík­lega misst börnin frá sér, og í leið­inni barna­börnin tvö. Börnin hennar væru öll á kafi í söfn­uð­inum og hefðu fundið sér maka innan hans. Hjóna­bandið var heil­agt í augum með­li­manna og skiln­aðir óhugs­andi. Stína sagði að ann­að­hvort yrði hún að sætta sig við ástandið eða eiga hitt á hættu. Þótt hún segði börnum sínum frá fram­komu Jonna fengi hún engan skiln­ing, þau „vissu“ að karl­inn væri alltaf rétt­hærri, konan yrði að hlýða og sætta sig við ástandið. Stína var í mik­illi klemmu, báðir kostir slæmir, en ég fann samt að hún ætl­aði að sætta sig við þetta.

„Þótt hún segði börnum sínum frá fram­komu Jonna fengi hún engan skiln­ing, þau „vissu“ að karl­inn væri alltaf rétt­hærri, konan yrði að hlýða og sætta sig við ástandið.“

Ég hef ákveðna samúð með Jonna, börn­unum og öðrum sem ánetj­ast söfn­uðum þar sem þröng­sýni og kreddur ráða ríkjum. Jonni „veit“ að hann er betri en aðrir vegna trúar sinnar, meira að segja trúað fólk í þjóð­kirkj­unni trúir ekki „rétt“ og túlkar Biblíuna allt of frjáls­lega, að mati hans.

Ég mun standa þétt við hlið­ina á systur minni og leyfa henni að pústa þegar hún þarf, meira held ég að ég geti ekki gert, því miður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur