Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sölumenn lífsins

Sölumenn lífsins

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Ég veikt­ist óvænt um þrí­tugt og um tíma var ekki vitað hvort ég lifði veik­indin af. Það kom mér á óvart hve margir töldu sig vita hvernig ég ætti að ná bata. Það olli mér líka furðu hversu margt und­ar­legt var í boði þarna úti sem ekki var hægt að kalla hefð­bundnar lækn­ingar.

Skömmu áður en ég veikt­ist gekk ég í gegnum mjög erf­iðan skilnað sem olli því að ónæm­is­kerfi mitt hrundi vegna álags. Líkaminn fór að ráð­ast á sjálfan sig og ég varð sífellt veik­ari. Ekki var vitað til að byrja með hvaða sjúk­dómur þetta væri. Síðar kom í ljós að lík­lega hafði hann búið með mér og brot­ist út þegar varnir lík­am­ans veikt­ust. Engar þekktar orsakir eru fyrir honum og lækn­ing við honum hefur ekki fund­ist þrátt fyrir mikla leit.

Sagan um veik­indi mín fór af stað þegar ég varð sjá­an­lega fötluð og þurfti að nota ýmis hjálp­ar­tæki. Mér versn­aði hratt og fólkið í kringum mig ótt­að­ist um líf mitt.

Vinkona mín þekkti mann sem taldi sig vera mik­inn gúrú í and­lega geir­anum og tengd­ist óhefð­bundnum lækn­ingum. Í gegnum þessa vin­konu mína fékk ég skila­boð frá mann­inum, eða sjá­and­anum, um að ég hefði fengið í mig veiru af froska­löppum sem ég hefði borðað. Ég var til­tölu­lega nýkomin úr ferða­lagi til lands sem á þeim tíma var ekki algengt að Íslend­ingar heim­sæktu. Það var því kannski rök­rétt að álykta að ég hefði gúffað í mig skrítnum mat en stað­reyndin er sú að ég hafði aldrei á ævinni borðað froska­lappir og hafði ekki í hyggju að gera það. Reyndar hafði ég borðað snigla sem þá þóttu ákaf­lega und­ar­legur matur.

Þessi maður vildi endi­lega hitta mig en ég svar­aði þessum skila­boðum hans ekki og gaf honum aldrei færi á því að sýna mér hvernig maður sigr­ast á afleið­ingum þess að hafa borðað eitr­aðar froska­lappir …

Það voru ekki til þær teg­undir af nuddi, dropum, kremum og sér­stöku matar­æði sem mér var ekki bent á. Lækn­ir­inn minn hafði sagt að ég mætti borða hvað sem væri því ég væri ekki með fæðu­of­næmi og ég fór eftir því sem hann sagði. Ég hafði lifað heil­brigðu lífi, hvorki reykti né drakk, lifði mikið á fiski og græn­meti og hélt mínu striki.

„Þú verður að fara í áruþvott!“

Mér var boðið í hana­stélsboð sem ég þáði þótt heilsa mín væri bág­borin þá stund­ina, mér hafði versnað mikið á stuttum tíma og þurfti meðal ann­ars að ganga við staf. Þegar ég gekk inn í stóra stofu kall­aði einn „spá­mað­ur­inn“ upp yfir sig þegar hann sá mig: „Guð minn góður, hvenær ætlar þú að fara að gera eitt­hvað í þessu? Þú verður að minnsta kosti að fara í áru­þvott!“ Þessi maður var einn þeirra sem reyndu af mik­illi ákveðni að selja mér lækn­ingu.

Góð vin­kona sendi mér bók í jóla­gjöf en fram að því höfðum við reyndar ekki skipst á jóla­gjöfum. Bókin hét Get Well, var eftir ein­hvern doktor sem fræddi les­and­ann um það hvernig maður ætti að bjarga lífi sínu. Konan, þessi doktor sem skrif­aði bók­ina, dó úr krabba­meini ekki löngu eftir að bókin kom út.

Þetta fannst mér ekki rétt gjöf fyrir veika mann­eskju, aldrei myndi ég gefa fatl­aðri mann­eskju nýja spelku eða nýj­ustu teg­und af hjóla­stól. Ég kunni þó vel að meta hug­ann sem lá að baki.

Mér fannst umhverfi mitt nán­ast bil­ast eftir að ég veikt­ist. Það var eins og öllu raun­sæi væri fleygt út um glugg­ann og ekk­ert var til sem hét æðru­leysi. Fólki fannst að það yrði að gera eitt­hvað … í mínum málum.

Jú, ég próf­aði sitt af hverju en bara til að friða vel­mein­andi vini mína, ekki af því að mig lang­aði til að elt­ast við þessa hluti. Mér lærð­ist þó smám saman að segja nei.

Ég próf­aði gagns­lausa handa­yf­ir­lagn­ingu hjá heil­ara, ég leyfði áhuga­nudd­ara að trampa á lík­ama mínum þótt ég sæi ekki til­gang­inn með því og ég fór í mjög sér­kenni­lega nudd­með­ferð sem sögð var hreins­andi fyrir lík­amann. Nudd­ar­inn ýtti ein­fald­lega á tauga­enda þannig að ég fann til­finn­ingu eins og raf­lost sem átti mögu­lega að sanna fyrir mér að eitt­hvað gott væri í gangi. Mér leið ekk­ert betur á eftir og ég komst að því seinna að það gæti verið skað­legt að ýta á tauga­enda, þeir gætu marist. Þessi sami nudd­ari sagði við mig að ég væri eig­in­lega of aum til að þola svona nudd og í næsta nudd­tíma mætti ég koma með ætt­ingja minn með mér. Sá yrði nudd­aður og árang­ur­inn myndi fær­ast yfir á mig, þar sem ég lægi á bekk við hlið­ina. Ég fór auð­vitað ekki í næsta tíma en átti mjög erfitt með að halda and­lit­inu þegar nudd­ar­inn sagði þetta af hjart­ans ein­lægni.

Stuðningshópurinn sem dó

Það sem ég tel geta bjargað fólki sem grein­ist með alvar­legan sjúk­dóm er að fara ekki á taugum, heldur halda áfram að lifa heil­brigðu lífi og jafn­vel, ef það getur, að fram­kvæma eitt­hvað sem það hefur lengi þráð. Ég gerði það og fór í drauma­námið mitt. Hluti náms­ins fór fram í erlendri stór­borg. Á meðan ég bjó þar versn­aði mér mikið og þurfti að leggj­ast inn á sjúkra­hús. Þá var búið að greina sjúk­dóm­inn.

Ung kona, nýút­skrif­aður hjúkr­un­ar­fræð­ingur, ein­stak­lega sam­visku­söm og góð mann­eskja, kom að máli við mig og spurði mig hvort ég væri í sam­bandi við ein­hver sam­tök eða stuðn­ings­hóp sem styddi fólk með þennan sjúk­dóm. Ég neit­aði því og þá bauðst hún til að leita að slíkum hóp fyrir mig, sem ég þáði þakk­lát. Nokkrum dögum seinna kom hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn og hafði fundið hóp­inn og bauðst til að hafa sam­band við hann fyrir mig. Síðan liðu nokkrir dagar og í næstu heim­sókn var konan mjög vand­ræða­leg. Eftir góða stund stam­aði hún því út úr sér að stjórn hóps­ins og allir með­lim­irnir væru dánir … úr sjúk­dómnum. Hún var svo miður sín og ég sá hana aldrei framar því hún forð­að­ist mig greini­lega þann tíma sem ég lá á spít­al­anum. Mér fannst þetta ofboðs­lega súr­r­eal­ískt og get enn grátið úr hlátri yfir þessu.

„Greinilega það sem þú vilt“

Eftir að ég kom heim aftur hélt ég áfram í lyfjakúrum sem ýttu við ónæm­is­kerf­inu í mér. Það var eins og latur ung­lingur sem þurfti spark. Ster­arnir sáu um það, ég tók stutta kúra til að ýta lík­am­anum í gang, von­aði að hann myndi halda áfram sjálfur og eftir nokkur ár tók hann við sér.

Við­skiptum mínum við sjá­and­ann sem sagði að veik­indi mín væru vegna eitr­aðra froska­lappa, sem ég borð­aði aldrei, var þó ekki alveg lokið. Við þekkt­umst ekk­ert en vissum hvort af öðru í gegnum annað fólk. Við rák­umst óvænt hvort á annað en þá var ég fremur illa haldin, með spelkur á höndum og fótum og studdi mig við hækju. Hann horfði á mig og sagði svo: „Þetta er greini­lega það sem þú vilt.“ Mér fannst þetta mjög ljótt af honum þótt hann væri móðg­aður yfir því að ég vildi ekki nota þjón­ustu hans til að lækna mig.

„Hann horfði á mig og sagði svo: „Þetta er greini­lega það sem þú vilt.“ Mér fannst þetta mjög ljótt af honum þótt hann væri móðg­aður yfir því að ég vildi ekki nota þjón­ustu hans til að lækna mig.“

Hann var ekki eini freki gúrú­inn sem ég rakst á en mér fannst einmitt gíf­ur­leg ýtni og frekja fylgja sumu af þessu fólki.

Ég hef verið lyfja­laus að mestu og laus við hjálp­ar­tæki í bráðum tutt­ugu ár. Ef ég hefði látið þennan sjá­anda hoppa á mér, tekið eitt­hvað af þessum krafta­verka­lyfjum, stundað þessi heil­un­ar­nudd eða áru­þvotta, myndi þetta fólk vissu­lega þakka sér bata minn.

Hjálp­samir vinir voru kannski ýtnir og vildu gera mér greiða en þótt þeir vissu margt vissu þeir þó ekki mikið um lík­amann. Á þeirri fáfræði byggja þessir sölu­menn lífs­ins sem selja fólki von­ina um lífið og betri heilsu.

Heil­miklir hags­munir eru í húfi í þessum geira, þessu neð­an­jarð­ar­hag­kerfi með skatt­frjálsar tekjur að stórum hluta. Og til lands­ins ber­ast allskyns fok­dýr lyf sem keypt eru erlendis frá og hafa ekki fengið vottun hér heima sem er áhyggju­efni. Þetta neð­an­jarð­ar­kerfi er bara iðn­aður sem byggir á hjá­trú og trú­girni almenn­ings.

Ég hef samt alls ekk­ert á móti nátt­úru­lækn­ingum þegar þær byggja á raun­veru­legri þekk­ingu og rann­sóknum, og margt er byggt á gömlum nátt­úru­vís­indum. Ef ég fæ háls­bólgu og hósta fer ég í Jurta­apó­tekið og kaupi mér þar sér­staka jurta­blöndu sem virkar mjög vel.

Þegar ég veikt­ist var mér kannski ekki beint sagt að ég myndi deyja fljót­lega en mér voru heldur ekki gefnar miklar vonir. Ég ákvað að loka ekki aug­unum fyrir stað­reyndum og neit­aði að eyða öllum mínum kröftum og fjár­munum í eitt­hvað sem mér fannst ólík­legt að kæmi mér að notum. Vissu­lega er máttur lyf­leysu mik­ill en það er alveg eins hægt að taka vítamín. Pen­ing­unum mínum hefur verið miklu betur varið í að gera eitt­hvað skemmti­legt. Ég er hand­viss um að það hefði stytt líf mitt ef ég hefði rokið til og farið að elt­ast við allt þetta bull sem var í boði.

Eitt gott kom þó út úr þessu öllu saman. Ég komst að því að venju­legt nudd og sjúkra­nudd gerði og gerir mér enn mjög gott.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur