Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Batnað af Covid-19 og fór beint í vinnu við smitrakningar

Ásta Evlalía Hrafn­kels­dóttir, ann­ars árs lækna­nemi við Háskóla Íslands, smit­að­ist af kór­óna­veirunni í Kaup­manna­höfn helg­ina 6.-8. mars þar sem hún var á ferða­lagi ásamt vin­konu sinni. Eftir stað­fest­ingu á smit­inu tók við tveggja vikna ein­angrun, ein­kennin urðu frekar væg og henni er nú batnað. Ásta skráði sig í bak­varð­ar­sveit­ina og hefur þegar hafið vinnu hjá smitrakn­ing­arteymi sótt­varn­ar­læknis og almanna­varna.

Batnað af Covid-19 og fór beint í vinnu við smitrakningar
Ásta Evlalía Hrafn­kels­dóttir smit­að­ist af kór­óna­veirunni í Danmörku en er nú batnað. Mynd/Aðsend|Meðal þess fyrsta sem Ásta gerði eftir 14 daga ein­angrun var að fara í göngu­ferð í Brauð og co með Bjarna kærast­anum sínum.|Ásta Evlalía á Fre­dags­bar í Kaup­mann­ar­hafn­ar­há­skól­anum ásamt vin­konum sínum Sylvíu Rut og Unnur Láru en þarna smit­uð­ust fjöl­margir af kór­óna­veirunni.

„Eftir þunga lotu í skól­anum skelltum ég og vin­kona mín úr nám­inu okkur í helg­ar­ferð að heim­sækja vin­konu okkar sem er að læra lækn­is­fræði í Kaup­manna­hafn­ar­há­skóla. Hjá lækna­deild­inni þar úti er hefð fyrir að halda svo­kall­aðan Fre­dags­bar einu sinni í mán­uði og svo skemmti­lega vildi til að hann var hald­inn meðan við vorum í heim­sókn. Þar voru um 300 lækna­nemar og mjög gaman, enda vorum við þar liggur við allan dag­inn eða frá um 14-23. Á þriðju­deg­inum eftir að við komum aftur til Íslands sáum við fréttir á dönskum frétta­miðlum þess efnis að smit hefði verið á þess­ari sam­komu og í kjöl­farið gefin út þau fyr­ir­mæli frá Kaup­manna­hafn­ar­há­skóla að allir sem hefðu verið þarna þyrftu að fara í tveggja vikna sótt­kví.

Strax þá var vin­kona mín komin með ein­kenni og fór sam­dæg­urs í test og á mið­viku­deg­inum fær hún stað­fest að hún sé smituð. Þá var ég komin með hita og þurran hósta svo ég hafði sam­band við 1700 og sagði sögu mína frá þess­ari ferð á bar­inn þar sem smit hefði komið upp og var beðin um að koma í sýna­töku dag­inn eftir. Starfs­mað­ur­inn hjá 1700 lét mína heilsu­gæslu vita og þaðan var haft sam­band við mig og ég boðuð í sýna­töku, fimmtu­dag­inn 12. mars. Þau tóku niður bíl­núm­erið mitt og skráðu það hjá sér. Á fimmtu­deg­inum fór ég keyr­andi á heilsu­gæsl­una og út kom þriggja manna teymi í heil­göllum, með grímur og það er tekið hjá mér strok. Það voru not­aðir tveir pinnar, þeim fyrra var stungið aftur í nef­kokið, sem var ekki þægi­legt, og þeim seinna aftur í munn­kok. Um kvöldið fékk ég svo sím­tal þar sem stað­fest var að ég væri með Covid-19,“ segir Ásta.  

„Á fimmtu­deg­inum fór ég keyr­andi á heilsu­gæsl­una og út kom þriggja manna teymi í heil­göllum, með grímur og það er tekið hjá mér strok.“

Hún seg­ist hafa verið undir það búin að fá þessar fréttir og því ekki tekið þeim illa. Það hafi þó smá saman síast inn að það væri í raun stór­merki­legt að vera ein tæp­lega 80 fyrstu Íslend­inga til að smit­ast af veirunni.

„Það var ekki fyrr en vin­kona mín sagði við mig „vá pældu í því þú varst að grein­ast með heims­far­aldur,“ sem ég var bara, „já vá, það er rosa­legt!“ Ég var mjög heppin að verða lítið veik í ein­angr­un­inni og er mjög þakk­lát fyrir það. Ég var með hita og þurran hósta fyrstu tvo dag­ana en á þriðja degi var ég orðin hita­laus og bara með smá­vægi­leg eymsli í háls­inum.“

Ásta Evlalía á Fre­dags­bar í Kaup­mann­ar­hafn­ar­há­skól­anum ásamt vin­konum sínum Sylvíu Rut og Unni Láru en þarna smit­uð­ust fjöl­margir af kór­óna­veirunni.

50 manns í sóttkví

Þar sem Ásta og vin­kona hennar mættu í verk­legan tíma á mánu­deg­inum eftir að þær komu heim frá Kaup­manna­höfn þurfti allur bekk­ur­inn þeirra, rúm­lega 50 manns, að fara í sótt­kví. „Eftir á hyggja sé ég eftir því að hafa farið í þennan tíma en ég var ein­kenna­laus og hafði ekki hug­mynd að ég hafði verið útsett fyrir smiti. Þar að auki var skyldu­mæt­ing svo það er í raun­inni ekki hægt að svekkja sig á því að hafa mætt. Mér fannst ömur­legt að verða þess vald­andi að allur þessi fjöldi var sendur í sótt­kví, en svo fékk eng­inn þeirra Covid-19 sem var mik­ill léttir,“ segir Ásta. 

„Við pössuðum að spritta alla fleti jafn­óðum eins og kló­settið, hand­föng og þess háttar og svo sváfum við í sitt hvoru lagi til að halda fjar­lægð­ar­mörkin.“

Hún segir að almennt finn­ist henni gott að vera heima hjá sér að slaka á svo henni hafi liðið nokkuð vel and­lega í ein­angr­un­inni.

„Ég reyndi að vera með hálf­gerða rútínu þar sem ég byrj­aði dag­ana á að læra eitt­hvað fram eftir degi og það var í raun­inni eina mark­miðið í ein­angr­un­inni. Þegar ég var ekki að læra var ég bara eitt­hvað að slæp­ast, annað hvort að hanga í tölv­unni eða horfa á Netflix. Ég var líka heppin að hafa Bjarna kærast­ann minn hjá mér, sem var í sótt­kví, þannig við borð­uðum alltaf kvöld­mat saman og horfðum svo á þætti eða bíó­mynd á kvöldin. Það erf­ið­asta við að vera í ein­angrun var að mega ekki fara í göngutúr, því mér finnst fátt skemmti­legra en að fara í langan göngutúr með gott hljóð­varp í eyr­unum. Þannig að ég varð alltaf frekar sár þegar Bjarni fór út í göngut­úra. En svo upp­götv­uðum við að ég mátti fara í bíltúr og það var gott. Annars gekk þetta vel hjá okkur, við pössuðum að spritta alla fleti jafn­óðum eins og kló­settið, hand­föng og þess háttar og svo sváfum við í sitt hvoru lagi til að halda fjar­lægð­ar­mörkin. Mesti kost­ur­inn við að hafa hann í sótt­kví hjá mér var klár­lega að ég mátti ekki elda mat ofan í okkur bæði þannig Bjarni sá um alla elda­mennsku,“ segir hún hlæj­andi. „Síðan var reglu­lega hringt í okkur frá smit­sjúk­dóma­deild Land­spít­al­ans til að kanna stöð­una á okkur báðum en Bjarni var ein­kenna­laus allan tím­ann svo lík­lega slapp hann við smit.“

Hvað var það fyrsta sem þú gerðir þegar þú varst laus úr ein­angr­un­inni? „Ég fór beint í heim­sókn til Guðrúnar frænku minnar að knúsa litlu frændsystk­inin mín þau Vigdísi Örnu og Pétur Darra sem ég var búin að sakna mjög mikið. Síðan skellti ég mér í lang­þráðan ísbíltúr og svo í Brauð og Co.“

Meðal þess fyrsta sem Ásta gerði eftir 14 daga ein­angrun var að fara í göngu­ferð í Brauð og co með Bjarna kærast­anum sínum.

Komin í smitrakningarteymið

Ásta skráði sig í bak­varð­ar­sveit­ina og hóf vinnu um leið og hún lauk ein­angrun. „Mér ásamt öðrum nemum á heil­brigð­is­vís­inda­sviði bauðst að aðstoða smitrakn­ing­arteymi sótt­varn­ar­læknis og almanna­varna. Við fengum lista yfir far­þega sem komu til lands­ins eftir 19. mars, hringjum í þá til að ganga úr skugga um að þeir viti að þeim ber skyld að fara í fjórtán daga sótt­kví eftir kom­una til lands­ins. Þetta er mik­ill fjöldi fólks, en það eru margir nemar sem taka þátt í þessu verk­efni svo vinnan fyrir hvern og einn er ekki mikil, en þetta er samt sem áður mikil hjálp fyrir almanna­varnir. Það er mjög góð til­finn­ing að geta hjálpað á þessum furðu­legu tímum, jafn­vel þótt það sé bara með að hringja nokkur sím­töl,“ segir Ásta.

„Annars mæli ég með að við höldum áfram að vera skiln­ings­rík gagn­vart þessu ástandi og virðum fyr­ir­mælin sem Alma, Víðir og Þórólfur gefa, þau eru sér­fræð­ing­arnir og vita best.“

Hún segir að námið hafi gengið nokkuð vel þrátt fyrir allt, nú sé stutt í loka­prófið og því eins gott að halda vel á spöð­unum. „Það er skemmti­leg til­viljun að við erum akkúrat í sýkla- og veiru­fræði­kúrs núna þannig að maður hefur extra mik­inn áhuga á náms­efn­inu enda um fátt annað rætt í sam­fé­lag­inu þessa dag­ana en kór­óna­veiruna.“ 

Hvað viltu segja við aðra sem eru í sömu stöðu? „Reynið að vera dug­leg að finna ykkur eitt­hvað að gera, hvort sem það er að sinna núver­andi áhuga­málum eða finna ykkur ný. Ég mæli líka enda­laust með góðum hljóð­vörpum eins og Morðcastinu og Þarf alltaf að vera grín, en tím­inn flýgur áfram þegar maður hlustar á svona snilld og það getur jafn­vel orðið skemmti­legt að taka til heima hjá sér. Annars mæli ég með að við höldum áfram að vera skiln­ings­rík gagn­vart þessu ástandi og virðum fyr­ir­mælin sem Alma, Víðir og Þórólfur gefa, þau eru sér­fræð­ing­arnir og vita best. Munum svo að þetta tekur allt saman endi og höldum jákvæðn­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag