Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Kominn tími til að hrista aðeins upp í keppninni

Ingó Geirdal þekkja flestir sem gít­ar­leik­ara rokk­hljóm­sveit­ar­innar DIMMU. Hljóm­sveitin sendi nýlega frá sér lögin Þögn og Almyrkvi en seinna lagið sendu þeir inn í Söngvakeppn­ina í ár.

Kominn tími til að hrista aðeins upp í keppninni

„Lögin gefa kannski örlít­inn for­smekk að því sem koma skal,“ segir Ingó, en lögin tvö koma til með að verða á sjöttu breið­skífu sveit­ar­innar sem er í smíðum og er vænt­an­leg á árinu. Á und­an­förnum árum hefur DIMMA gefið út fimm breið­skífur og jafn­margar tón­leika­plötur, þar á meðal tvær með Bubba Morthens og eina með Sin­fon­i­aNord, auk þess að spila á fleiri tón­leikum en bandið hefur tölu á.

„Við sáum hins vegar aldrei fyrir okkur að taka þátt í Söngvakeppn­inni, sem hefur hingað til ekki talist hefð­bund­inn vett­vangur fyrir íslenskar rokksveitir í þyngri kant­inum til að koma tón­list sinni á fram­færi,“ játar hann. „Okkur fannst því kom­inn tími til að takast á við nýja og skemmti­lega áskorun og hrista aðeins upp í keppn­inni í ár.“

Eins og kunn­ugt er hefur Ingó komið víða við í tón­list­inni, en hann seg­ist hafa fengið ástríðu fyrir tón­list þegar hann fékk í ferm­ing­ar­gjöf frá for­eldrum sínum utan­lands­ferð til frænku sinnar sem bjó í Seattle í Banda­ríkj­unum. Þar hafi nýr heimur opn­ast fyrir sér. „Ég nýtti ferm­ing­ar­pen­ing­ana til að kaupa minn fyrsta gítar, bassa fyrir Silla bróður og um 50 not­aðar vín­yl­plötur með hljóm­sveitum eins og Alice Cooper, KISS, AC/DC og fleirum. Þá var ekki aftur snúið og má segja að þar hafi verið lagður grunn­ur­inn að tón­list­ar­sam­starfi okkar Geir­dal­bræðra, sem nú hefur staðið í 30 ár og sér ekki fyrir end­ann á.“

Bræð­urnir stofn­uðu síðan DIMMU árið 2004 og Ingó segir að eflaust hafi ekki margir séð fyrir þá að hún yrði ein vin­sælasta rokk­hljóm­sveit lands­ins. Hvað þá að aðdá­endur hennar tækju upp á því að láta húð­flúra sig með nafni, lógói og textum sveit­ar­innar. „Það sáum við ekki fyrir sjálfir,“ við­ur­kennir hann fús­lega. „En við höfum þó alltaf haft óbilandi trú á tón­list­inni sem við erum að gera og gefum okkur alla í hana og því mjög gef­andi að upp­lifa hversu margir tengja við tón­list­ina okkar og text­ana.“

Hugsanalestur og sjónhverfingar

Auk þess að hafa lengi verið við­loð­andi tón­list­ar­brans­ann hefur Ingó feng­ist við töfra­brögð um margra ára skeið, en hann segir „galdra­á­hug­ann“ hafa kviknað við sex ára aldur þegar hann sá hol­lenskan heims­meist­ara í töfra­brögðum sýna í sjón­varp­inu. „Svo um tíu ára aldur gaf pabbi mér bók sem hann átti um töfra­m­ann­inn Houdini. Upp frá því fór ég að læra og æfa mín fyrstu töfra­brögð og spilagaldra. Í dag hef ég sér­hæft mig í sjón­hverf­ingum, sem byggj­ast mikið á fingrafærni, og svo hugs­ana­lestri.“

„Þetta verður sam­bland af sjón­hverf­ingum og hugs­ana­lestri þar sem ég sýni öll mín bestu brögð.“

Spurður hvað þurfi til að vera góður töfra­maður, er hann fljótur til svars. „Aga, elju, ástríðu og þol­in­mæði. Sem betur fer er ég mjög þol­in­móður maður, enda ekki sjald­gæft að maður eyði jafn­vel nokkrum árum í að vinna í einu atriði og er svo enda­laust að slípa það, laga og gera betra,“ segir hann og getur þess að áhuga­sömum gef­ist kostur á að kynna sér þetta nánar á sýn­ing­unni Galdrar, sem hann ætli að halda í Salnum í Kópavogi þann 8. mars. „Þetta verður sam­bland af sjón­hverf­ingum og hugs­ana­lestri þar sem ég sýni öll mín bestu brögð og þar á meðal nokkur brögð sem ég fram­kvæmi ein­ungis í þess­ari sýn­ingu.“

Þess fyrir utan hefur hann nóg fyrir stafni. „Ég verð til dæmis með töfra­skemmt­anir á árs­há­tíðum, þorra­blótum og fleira. Auk þess er það Söngvakeppnin sem DIMMA tekur þátt í og svo auð­vitað vinnan við nýju plöt­una,“ segir hann og bætir við að aðeins ein töfra­sýn­ing verði í Salnum í ár. Þeir sem vilja geta tryggt sér miða á sal­ur­inn.is eða tix.is.0

Texti  / Sigrún Guðjohn­sen

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu