Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Niðurstöðurnar komu Steingrími ekki á óvart – „Því miður“

Niðurstöðurnar komu Steingrími ekki á óvart – „Því miður“
|Mydn / Unnur Magna

„Ég get ekki sagt að þetta hafi komið mér á óvart. Því miður,“ segir Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, í sam­tali við Mannlíf um nið­ur­stöður könn­unar á starfs­um­hverfi á Alþingi þar sem sér­stök áhersla var lögð á ein­elti og kyn­ferð­is­lega og kyn­bundna áreitni. Könnunin leiddi meðal ann­ars í ljós að 20% svar­enda hafa ein­hvern tím­ann orðið fyrir ein­elti í starfi sínu á Alþingi og 16% hafa ein­hvern tím­ann orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni í starfi.

Stein­grímur segir mik­il­vægt að ráð­ist var þessa könnun og jákvætt hversu góð þátt­takan var þannig að nið­ur­stöð­urnar eru mark­tækar. Af 206 manns svör­uðu 153 og náði könn­unin til þing­manna og starfs­fólks Alþingis.

Hann segir nið­ur­stöð­urnar vera mik­il­vægan grunn fyrir þá vinnu sem koma skal. „Þessi skýrsla er hvorki upp­haf né endir heldur hluti af löngu ferli.“

Könnunin tók mið af rann­sókn Alþjóða­þing­manna­sam­bands­ins og Evr­ópu­ráðs­þings­ins á kyn­ferð­is­legri áreitni og ofbeldi á evr­ópskum þjóð­þingum. Stein­grímur segir nið­ur­stöður þeirrar rann­sóknar hafa gefið ákveðna vís­bend­ingu um hvernig staðan er hér á landi. Hann tekur fram að í þeim rann­sóknum hafi ekki verið um heild­stæða könnun að ræða heldur hafi þátt­tak­endur boðið sig fram til að tjá sig og við þá tekin við­töl.

Jafn­réttis­nefnd Alþingis ræðir nú eft­ir­fylgni könn­un­ar­innar og fram­haldið er í höndum nefnd­ar­innar.

Að mati Stein­gríms væri skyn­sam­legt að gera sam­bæri­lega könnun í það minnsta einu sinni á kjör­tíma­bili. „Þegar fram liði væri þá hægt að mæla hvernig hlut­irnir þró­ast. Þá gæti komið til greina að fylgja könn­un­inni eftir með dýpri rann­sókn sem byggði á við­tölum,“ útskýrir Stein­grímur.

Stein­grímur segir kollega sína í nágranna­löndum Íslands horfa hingað. „Forsetar í öðrum þingum hafa fylgst með því hvernig við gerum hlut­ina. Bæði hvað þessa könnun varðar og líka hvernig #meetoo-bylt­ingin fór fram á Alþingi og hvernig við breyttum siða­regl­unum 2018,“ segir hann.

Sláandi en kom ekki á óvart

Stein­grímur segir nið­ur­stöð­urnar slá­andi en að þær hafi því miður ekki komið honum á óvart. „Ef við tökum mið af nið­ur­stöðum sam­bæri­legrar könn­unar sem Félags­vís­inda­stofnun vann fyrir vel­ferð­ar­ráðu­neytið um stöð­una á vinnu­mark­að­inum almennt, þá kemur þetta ekki á óvart. En auð­vitað er þetta slá­andi,“ segir hann.

Hann tekur fram að nið­ur­stöður könn­un­ar­innar hafi leitt í ljós að þing­manna­starfið væri útsett­ara fyrir þeim þáttum sem ein­blínt var á í könn­un­inni en önnur störf á Alþingi. Hann segir að áhuga­vert yrði að skoða af hverju það stafar. „Nið­ur­stöð­urnar leiða í ljós að þing­menn verða ekki aðeins fyrir ein­elti og kyn­ferð­is­legri og kyn­bund­inni áreitni inni á vinnu­staðnum heldur líka þar sem þeir sinna verk­efnum sem teng­ist starf­inu utan vinnu­stað­ar­ins.“

Hvað ein­eltið varðar segir Stein­grímur dap­ur­legt að sjá nið­ur­stöð­urnar um áhrif á fjöl­skyldur þing­manna. „Það er dap­ur­legt að sjá að fjöl­skyldur þing­manna verða reglu­lega fyrir erf­ið­leikum, bæði í námi og starfi, vegna starfa þeirra á þingi.“

Mikilvægt að halda umræðunni á lofti

Stein­grímur segir að könn­un­ina vera mik­il­vægan þátt í því að halda umræð­unni um vinnu­staða­menn­ingu á Alþingi á lofti. „Það þarf nátt­úr­lega að opna umræð­una og við­halda henni. Það er ekki nóg að gera svona könnun einu sinni og rifja nið­ur­stöð­urnar upp ein­stöku sinnum.“

„Það þarf nátt­úr­lega að opna umræð­una og við­halda henni.“

Hann segir könn­un­ina hald­ast í hendur við önnur verk­efni sem Alþingi hefur unnið að, svo sem „rak­ara­stofu­ráð­stefn­una“ sem haldin var 2018 í sam­vinnu við UN Woman á Íslandi í kjöl­far #meetoo-bylt­ing­ar­innar. Þar gafst þing­mönnum og ráð­herrum tæki­færi til að eiga opin­skáar sam­ræður í ljósi umræðna um kyn­ferð­is­of­beldi og áreitni innan stjórn­mál­anna.

Stein­grímur segir #meetoo-bylt­ing­una hafa sýnt svart á hvítu hversu stórt vanda­málið er. „Þegar fólk steig fram með sínar sögur í #meetoo bylt­ing­unni sáum við hversu útbreitt vanda­mál er, ekki bara á Alþingi heldur í sam­fé­lag­inu öllu, og þessi könnun er mik­il­vægur þáttur í að taka á þessu vanda­máli sem þarf að horfast í augu við.“

Skýrslu um könn­un­ina má lesa hérna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

InnlentMetoo

Tomasz þver­tekur fyrir ásak­anir um lík­am­legt og kyn­ferð­is­legt ofbeldi

Tomasz Þór Veruson seg­ist aldrei hafa beitt fyrr­ver­andi kærustur sínar lík­am­legu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi, í aðsendri grein sem hann skrifar á Vísi. Í byrjun árs komu fram ásak­anir tveggja fyrr­ver­andi kærasta á hendur honum. Önnur þeirra var Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir, pólfari. Ásakanir á hendur Tomaszi komu fyrst fram í hópi áhuga­kvenna um fjalla­mennsku og úti­vist. Í hópnum, sem ber heitið...
InnlentMetoo

The victim must be consulted with: „Very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility“

„There are very few cases where perpetr­ators actually take responsi­bility. In the instances that I can recall, in the current MeToo-movem­ent, it has usu­ally been done quite clumsily. For example, it has not been done in consultation with the victims and people have not taken full responsi­bility,“ says Gabríela Bryndís Ernu­dóttir, psychologist and chairwoman for the activist organization Líf án...
InnlentMetoo

Gylfi Þór hættur hjá Everton

Samn­ingur knatt­spyrnu­manns­ins Gylfa Þórs Sig­urðs­sonar við enska knatt­spyrnu­fé­lagið Everton er runn­inn út. Samn­ing­ur­inn verður ekki end­ur­nýj­aður. Gylfi Þór hefur þó ekki spilað fyrir liðið síðan hann var hand­tek­inn af breskum yfir­völdum síð­asta sumar, vegna gruns um að hafa brotið gegn ólög­ráða ein­stak­lingi. Þetta kemur fram hjá Vísi. Frá því Gylfi Þór var hand­tek­inn hefur lög­regla rann­sakað mál hans. Hann hefur...
InnlentMetoo

Skjáskot af kæru á hendur Ingólfi vegna lík­ams­árásar: „Hafi Ingólfur þá kýlt hana í and­litið“

Skjáskot af bréfi frá Lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stað­fest er kæra á hendur Ingólfi Þór­ar­ins­syni, hefur verið birt á sam­fé­lags­miðlum. Um er að ræða kæru vegna lík­ams­árásar á hendur konu. Skjá­skotið, sem var upp­haf­lega birt á Twitter, sýnir bréf frá lög­reglu­stjór­anum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, dag­sett þann 4. maí síð­ast­lið­inn. Í því er svar emb­ætt­is­ins við fyr­ir­spurn frá 3. maí þar...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina