Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Sólveig fékk Blóðdropann fyrir Fjötra: „Varð barnslega glöð“

Sólveig fékk Blóðdropann fyrir Fjötra: „Varð barnslega glöð“
Sólveig Páls­dóttir. Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Sólveig Páls­dóttir hlaut í dag Blóð­dropann, hin íslensku glæpa­sagna­verð­laun, fyrir bók sína Fjötra. Verð­launin eru veitt af Hinu íslenska glæpa­fé­lagi fyrir bestu íslensku glæpa­sögu lið­ins árs og sú bók sem valin er verður jafn­framt fram­lag Íslands til nor­rænu glæpa­sagna­verð­laun­anna Gler­lyk­ils­ins. Það var bóka­út­gáfan Salka sem gaf bók­ina út.

Sólveig er í vonum í skýj­unum með við­ur­kenn­ing­una:

„Ég við­ur­kenni það fús­lega að ég varð barns­lega glöð þegar mér var til­kynnt um að Fjötrar hefði verið valin besta glæpa­sagan 2019,“ segir hún. „Tuttugu bækur komu til greina og þar á meðal flottir höf­undar sem ég ber virð­ingu fyrir. Í dag þegar ég tók á móti Blóð­drop­anum varð ég dálítið meyr en jafn­framt mjög stolt. Svo verð ég að nefna að ég hafði ákaf­lega gaman að rann­sókn­ar­vinn­unni fyrir Fjötra og ekki síður að skrifa bók­ina.“

Fjötrar

Hvaða þýðingu hafa þessi verðlaun fyrir þig sem höfund?

„Þau eru mikil við­ur­kenn­ing og hvatn­ing til að halda áfram að skrifa bækur. Mik­il­vægi bóka og lest­urs er gríð­ar­legt í mínum huga. Á síð­ustu árum hefur dregið úr lestri en nú sé ég ýmis merki um að þetta sé að breyt­ast. Á meðan að Covid-19 gekk yfir landið fékk ég þó nokkur skila­boð frá fólki sem hafði verið að lesa bæk­urnar mínar og var jafn­framt að kynn­ast eða end­ur­upp­götva hvað lestur bóka veitir mikla ánægju. Það fannst mér ákaf­lega gleði­legt. Að fá Blóð­dropann þýðir það líka að Fjötrar verða fram­lag Íslands til Gler­lyk­ils­ins sem eru nor­rænu glæpa­sagna­verð­launin. Ég vona bara að það tak­ist að þýða bók­ina í tæka tíð,“ segir Sólveig.

Fáum við meira af Guðgeiri og félögum fyrir jólin?

„Reyndar ekki en vænt­an­lega fyrir jólin 2021. Ég var byrjuð að draga upp nýja glæpa­sögu þegar að Covid-19 skall á,“ segir Sólveig. „Ég missti ein­beit­ing­una og þegar ég reyndi að koma mér aftur að verki fannst mér erfitt að vera að hugsa upp flóknar glæpa­féttur þegar heim­ur­inn væri á hvolfi. Ég ákvað því að hvíla mig á glæp­unum og geyma þessar hug­myndir til betri tíma. Þá tók að sækja á mig annað efni og allt öðru­vísi. Ég byrj­aði að skrifa og fann að mér leið vel með það sem ég var að gera. Vinnu­heitið er Kletta­borgin og byggir á bernskuminn­ingum mínum. Hún hefst þegar sem ég er fimm ára gömul og nýflutt til Íslands en pabbi minn vann í utan­rík­is­þjón­ust­unni. Ég flaug heim frá Stokk­hómi með barnapí­unni og var með henni stuttan tíma á Akranesi. Síðan fór ég á Bessa­staði þar sem móð­ur­afi minn og amma áttu heima því afi minn Ásgeir var for­seti. Um mitt sumar flaug ég austur til Horna­fjarðar í Lónið sem var á þeim tíma ákaf­lega ein­angruð sveit. Þar var ég næstu sex sumur hjá ein­stak­lega góðu og eft­ir­minni­legu fólki. Sagan flakkar fram og til­baka í tíma og per­sónugall­er­íið er ákaf­lega fjöl­breytt. Það verður fróð­legt að vita hvernig les­endur taka þessum útúr­dúr hjá glæpa­sagna­höf­und­inum.“

Sólveig vill nota tæki­færið til að þakka sínum tryggu les­endum, sem vafa­laust mun fjölga með þess­ari við­ur­kenn­ingu.

„Í lokin langar mig til að nota tæki­færið og þakka les­endum mínum inni­lega fyrir að hafa tekið bók­unum mínum svona vel.“

Í umsögn dóm­nefndar um verð­launa­bók­ina segir:

„Nið­ur­staða dóm­nefndar er sú að Fjötrar eftir Sólveigu Páls­dóttur sé verð­skuld­aður sig­ur­veg­ari að þessu sinni. Í sög­unni fléttar Sólveig á frum­legan og öruggan hátt saman sögum af manns­hvarfi, mis­notkun og sjálfs­skaða í spenn­andi frá­sögn sem lit­ast af leynd­ar­málum fjöl­skyldna. Ljóst er frá fyrstu síðu að les­andi er í öruggum höndum höf­undar sem hefur góð tök á öllum þráðum flétt­unnar og hefur vandað til verks. Frásögn Sól­veigar er í senn spenn­andi, áhuga­verð, kímin og sorg­leg. Afrakst­ur­inn er bók sem lætur engan ósnort­inn.“

Dómnefnd skip­uðu Páll Kristinn Pálsson, for­maður, Helga Birg­is­dóttir og Kristján Atli Ragn­ars­son.

Mannlíf óskar Sólveigu hjart­an­lega til ham­ingju með Blóð­dropann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag