Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Er kominn tími á barn númer tvö?

Flestar nýbak­aðar mæður kann­ast við það að vera varla komnar heim af fæð­ing­ar­deild­inni þegar þær eru strax spurðar að því hvenær þær ætli að koma með annað.

Jafnvel þó að þið séuð ekki í þeim hug­leið­ingum eign­ast annað barn rétt á meðan nýja krílið er að læra að hjala og velta sér, þá kemur að því að því að þið farið að velta því fyrir ykkur hvenær á að koma með barn númer tvö.

Ákvörð­unin er ekki ein­föld, enda hafa allir skoð­anir á því hvenær sé rétti tím­inn. Sumum finnst mik­il­vægt að eiga börnin með stuttu milli­bili til þess að þau geti leikið sér saman og leitað hvors til ann­ars þegar þau eld­ast. Aðrir geta ekki hugsað sér að vera með tvö smá­börn á heim­il­inu á sama tíma.

„Það getur verið erfitt að eiga við smá­barn sem öskrar um miðjar nætur á meðan morg­unó­gleðin ætlar þig lif­andi að drepa.“

Sama hverjar skoð­anir þínar eru þá eru vissu­lega mik­il­væg atriði sem þarf að skoða áður en ákveðið er að fjölga í fjöl­skyld­unni.

Heilsu­far móður og barns
Það er ekki auð­velt að ganga með og fæða barn og því þarf lík­am­inn að fá tíma til að jafna sig eftir hverja með­göngu. Talið er að lík­am­inn þurfi allt að sex vikur til að ná því sem mætti kalla lág­marks­form eftir með­göngu. Það getur svo tekið nokkra mán­uði í við­bót að bæta upp blóð­leysið og nær­ing­ar­skort­inn sem með­gangan veldur. Beinin og lið­irnir verða einnig fyrir miklum áhrifum af horm­óna­ó­jafn­væg­inu sem á sér stað á með­göngu og það getur tekið 6-9 mán­uði að lag­ast. Ef gengið er með annað barn of snemma getur það leitt til bak­verkja og ann­arra óþæg­inda. Það er líka vert að hafa í huga að það getur verið erfitt að eiga við smá­barn sem öskrar um miðjar nætur á meðan morg­unó­gleðin ætlar þig lif­andi að drepa.

Það er ekki ein­göngu móð­irin sem getur átt í erf­ið­leikum vegna seinni með­göngu. Rann­sóknir hafa sýnt að það getur haft nei­kvæð áhrif á fæð­ing­ar­þyngd barns­ins ef of stuttur tími líður á milli með­göngu. Möguleg ástæða fyrir því að þessi börn fæð­ast of létt er nær­ing­ar­skortur og streita móður sem hefur ekki enn jafnað sig eftir fyrri með­göngu.

Sam­komu­lag og pen­inga­málin
Þar sem börnin eru ekki ein­getin þarf alltaf að leita sam­þykkis maka áður en farið er af stað með með­göngu númer tvö. Þetta getur leitt til mik­illa erf­ið­leika í sam­band­inu og þá sér­stak­lega ef aðeins annar aðil­inn er til­bú­inn til þess að eign­ast fleiri börn.

Algengt er að eig­in­menn­irnir hafi áhyggjur af auknum fjár­út­látum en eina leiðin til að leysa málið er að ræða saman og reyna að kom­ast að sam­komu­lagi. Hvað sem þú gerir, ekki verða ólétt „fyrir slysni” og gera ráð fyrir að þetta redd­ist þegar barnið er komið í heim­inn. Slíkt getur haft skelfi­leg áhrif á sam­bandið ykkar á milli, enda er erfitt að bæta fyrir þess háttar svik.

„Ákvörð­unin er ekki ein­föld, enda hafa allir skoð­anir á því hvenær sé rétti tím­inn.“

Það er heldur ekki hægt að loka aug­unum fyrir því að það fylgir því tölu­vert meiri kostn­aður að reka fjög­urra manna fjöl­skyldu heldur en þriggja. Þessi aukni kostn­aður er svo sér­stak­lega hvim­leiður vegna þess að eftir því sem börnin eru fleiri verður erf­ið­ara fyrir þig að vinna fulla vinnu, auk þess sem gæslu­kostn­að­ur­inn er þá orð­inn ansi hár.

Ef þið ætlið ykkur að eign­ast annað barn þá er um að gera að búa til fjár­hags­á­ætlun byggða á tekjum ykkar og gera þá ráð fyrir aukn­ingu á útgjöldum. Ef þið gerið slíka áætlun kom­ist þið fljótt og örugg­lega að því hvort þið hafið efni á öðru barni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur