Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Í voðastandi fram að þrítugu

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Ég átti erf­iða æsku. Pabbi minn var alkó­hólisti og þegar ég var þriggja ára skildu for­eldrar mínir. Við vorum fimm systk­inin og mamma gat ekki séð fyrir okkur öllum. Ég var því send í fóstur til systur hennar sem bjó úti á landi. Þar átti ég erf­iða ævi og var oft skilin út undan. Ég var lítið meira en barn þegar ég fór að heiman og hóf að sjá fyrir mér og ákvarð­an­irnar sem ég tók báru reynslu­leysi mínu vitni.

Ég strauk þrisvar frá móð­ur­systur minni en var alltaf send til baka aftur. Barna­vernd­ar­yf­ir­völd áttu að fylgj­ast með mínum málum en aðeins einu sinni var ég spurð af hverju ég stryki og hvort mér liði vel á fóst­ur­heim­il­inu. Ég svar­aði hrein­skiln­is­lega að ég hefði það ekki gott. Ég væri látin vinna mikið og mun meira en börn móð­ur­systur minnar. Þau máttu sofa út á laug­ar­dögum og sunnu­dögum en ég þurfti að vakna og hjálpa til í fjós­inu.

Þau fengu líka margt sem ég fékk ekki. Á hverju ári fengu þau skóla­föt og nýtt dót í tösk­urnar sínar. Ég fékk aðeins einu sinni ný föt allan tím­ann sem ég bjó þarna en þá sendi mamma mér ný föt í afmæl­is­gjöf. Mín föt voru alltaf föt af eldri krökk­unum sem þau voru vaxin upp úr. Kannski hefði það ekki skipt mjög miklu máli ef ég hefði ekki alltaf verið látin finna að ég var minna metin en hin börnin á heim­il­inu. Ég fór með í versl­anir þegar keypt voru föt á alla nema mig.

Misþyrmingar ekki nóg ástæða til flutnings

Elsti sonur móð­ur­systur minnar kom mjög illa fram við mig og ég býst við að hægt væri að segja að hann hafi níðst á mér. Hann réðst á mig úr leyni og kleip mig eða sneri upp á hand­legg­ina á mér hvenær sem hann gat. Hvers vegna hann gerði þetta veit ég ekki en þegar ég kvart­aði var honum trúað en ekki mér þótt ég gæti sýnt mar­bletti og skrámur máli mínu til sönn­unar. Allt þetta sagði ég full­trúa barna­vernd­ar­nefndar en senni­lega hefur það ekki þótt nógu góð ástæða til að flytja mig til.

Ég var fjórtán ára þegar þessi elsti frændi minn nauðg­aði mér og þá fékk ég end­an­lega nóg. Það stórsá á mér allri eftir hann. Ég pakk­aði saman dót­inu mínu og sagði frænku minni að ég myndi kæra son hennar fyrir nauðgun ef hún léti leita að mér eða skipti sér af mér upp frá því. Hún lét mig fara, enda vissi hún að ég sagði satt og hún þorði þess vegna ekki að láta yfir­völd vita.

„Ég veit eig­in­lega ekki vel hvað gerð­ist um kvöldið en morg­un­inn eftir vakn­aði ég uppi í rúmi hjá manni sem var sautján árum eldri en ég.“

Frá heim­ili frænku minnar hélt ég til mömmu en aðstæður hennar voru slæmar þannig að hún gat ekki tekið við mér. Það varð úr að mér var komið fyrir hjá dóttur vin­konu mömmu sem bjó fyrir vestan. Ég pass­aði börnin hennar og hjálp­aði til inn­an­húss og fékk í stað­inn fæði og hús­næði. Mér leið ákaf­lega vel hjá þess­ari konu. Hún var mér góð og í fyrsta skipti gekk mér vel í skóla. Það var bæði vegna þess að séð var til þess að ég fengi tíma til að læra og mað­ur­inn hennar hjálp­aði mér við það sem mér fannst flókið og erfitt. Ég bjó hjá þessu fólki í tvö ár og lauk grunn­skóla­prófi frá skól­anum á staðnum. Ég fékk ekk­ert svaka­lega háar ein­kunnir en ég náði öllu. Það gladdi mig mjög mikið því elsti frændi minn, sá sem kvaldi mig sem mest í æsku, hafði lengi strítt mér á því að ég væri svo heimsk að ég myndi aldrei ná grunn­skóla­prófi.

Hélt ein út í hinn stóra heim aðeins fimmtán ára

Börn kon­unnar sem ég bjó hjá voru orðin það stálpuð þegar ég tók grunn­skóla­prófið að hún hafði í raun litla þörf fyrir mig. Ég hélt því ein út í hinn stóra heim aðeins fimmtán ára og fannst ég vera fær í flestan sjó. Ég fékk vinnu í fiski og leigði mér her­bergi í þorpi við sjáv­ar­síð­una. Mér fannst ég ógur­lega full­orðin og dug­leg. Ég vann mikið og fékk því góð laun. Í fyrsta skipti á ævinni gat ég leyft mér að kaupa mér ný föt og eitt­hvað fal­legt sem ég átti ein og sjálf. Ég naut lífs­ins sem aldrei fyrr og ef ég hefði bara látið það nægja hefði líf mitt orðið öðru­vísi og betra.

Nokkrum mán­uðum eftir að ég flutti í þorpið mitt varð ég sextán ára. Á þessum árum varð maður sjálf­ráða á þeim aldri og ég hélt upp á að héðan af gæti eng­inn neytt mig heim til móð­ur­systur minnar aftur. Um kvöldið fór ég út að skemmta mér með nokkrum krökkum sem unnu með mér og varð full í fyrsta skipti á ævinni. Ég veit eig­in­lega ekki vel hvað gerð­ist um kvöldið en morg­un­inn eftir vakn­aði ég uppi í rúmi hjá manni sem var sautján árum eldri en ég. Hann vann í frysti­hús­inu eins og ég og var alltaf að nudda sér utan í stelp­urnar. Við gerðum oft grín að honum þess vegna og ég hefði aldrei komið nálægt honum alls­gáð.

Mér leið skelfi­lega illa þegar ég skreidd­ist heim til mín. Ég var þunn og hafði mik­inn móral yfir því sem hafði gerst. Það versta var að þetta var fljótt að frétt­ast um þorpið og ég var kölluð kærasta þessa manns og krakk­arnir hlógu að mér og stríddu mér á þessu. Þetta varð mér mjög erfitt og gleðin sem ég hafði fundið fyrir áður hvarf. Senni­lega hef ég verið þung­lynd á þessum tíma, að minnsta kosti var ég oft döpur og sjálfs­morðs­hugs­anir leit­uðu iðu­lega á huga minn. Þessi maður lét mig heldur ekki í friði og ein­hvern veg­inn leidd­ist ég út í að fara að vera með honum og seinna að búa með honum.

Komin til Reykjavíkur

Ég var aldrei ást­fangin af þessum manni og þótt ég byggi með honum í átta ár og eign­að­ist með honum barn var sam­band okkar aldrei náið. Við töl­uð­umst sjaldn­ast við. Hann var fámáll að eðl­is­fari, var alinn upp í sveit og hafði lítil sam­skipti haft við kven­fólk. Hann var ekki ófríður eða neitt slíkt en hafði ekki áhuga á konum á svip­uðum aldri og hann var á sjálfur. Hann var þekktur fyrir að elta ung­lings­stelp­urnar í þorp­inu en vilja ekk­ert með full­orðnar konur hafa. Eftir átta ára sam­búð var ég orðin of gömul fyrir hann og dag nokkurn rak hann mig á dyr.

Það var mér áfall, enda var ég með lítið barn á fram­færi og átti ekki í nein önnur hús að venda. Ég leit­aði til kon­unnar sem ég bjó hjá þegar ég var ung­lingur og hún tók mig og barnið inn á heim­ili sitt. Hún ræddi einnig við lög­fræð­ing til að kanna rétt­ar­stöðu mína og með hennar hjálp fékk ég því fram­gengt að sam­býl­is­maður minn var neyddur til að borga mér ráðs­konu­laun fyrir öll sam­búð­arár okkar. Ég fékk einnig eitt­hvað af hús­gögnum og öðrum bús­hlutum og fannst ég hafa unnið mik­inn sigur.
Að vísu var það sem ég fór með aðeins lítið brot af eignum sam­býl­is­manns míns fyrr­ver­andi en ég var ekk­ert að velta mér upp úr því.

„Það verður langt þangað til ég get treyst karl­manni aftur en þangað til ætla ég að treysta á sjálfa mig.“

Ég var ákveðin í að byrja nýtt líf og vera skyn­sam­ari að þessu sinni. Ég gat keypt mér litla íbúð og komið mér nokkuð vel fyrir. Ég var vön vinnu og kippti mér því ekk­ert upp við það þótt ég þyrfti að vinna mikið. Enn og aftur gripu örlögin hins vegar í taumana og í þetta skipti varð ég ást­fangin. Í fyrsta skipti á ævi minni fann ég til þeirrar spennu og gleði sem fylgir ást­inni. Ég var tutt­ugu og fimm ára en að mörgu leyti enn þá barn. Ég gift­ist þessum manni og lengi vel ent­ist ástin og mér tókst að loka aug­unum fyrir göllum hans. Hann drakk og kom illa fram við mig en ég fyr­ir­gaf honum allt. Með þessum manni eign­að­ist ég tvö börn og hann lagði allt líf mitt í rúst.

Þegar ég yfir­gaf hann fjórum árum seinna átti ég ekk­ert annað en skuldir og sjálfs­traust mitt var í rúst. Ég flutti suður til borg­ar­innar með börnin mín og leit­aði aðstoðar hjá félags­lega kerf­inu. Þar hitti ég ynd­is­lega konu sem hefur hjálpað mér meira en nokkur annar. Hún hjálp­aði mér að byggja mig upp og leið­beindi mér áfram. Ég á henni það að þakka að eftir þrí­tugs­af­mælið mitt tókst mér að snúa lífi mínu til betri vegar. Mér hefur tek­ist að gera upp for­tíð­ina og ég er í dag sátt­ari við sjálfa mig en ég hef nokkru sinni verið fyrr. Ég bý ein með börn­unum mínum og er ekki á leið í sam­búð eða ást­ar­sam­band. Það verður langt þangað til ég get treyst karl­manni aftur en þangað til ætla ég að treysta á sjálfa mig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur