Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Barnið breytti sambandinu við kærastann

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni

Ég og kær­asti minn höfðum búið saman í tvö ár þegar ég varð ófrísk. Sam­bandið var gott og við vorum bæði ánægð með að barn væri á leið­inni. Ég átti hins vegar alls ekki von á þeirri breyt­ingu sem varð á högum okkar eftir að barnið fædd­ist og fljót­lega var svo komið að mig lang­aði oftar að berja kærast­ann en kyssa hann.

Þetta byrj­aði nán­ast sömu nótt­ina og ég kom heim með dreng­inn okkar. Barnið var óró­legt og vakn­aði aftur og aftur um nótt­ina. Kærast­inn minn reyndi ekk­ert að hjálpa til heldur sneri sér á hina hlið­ina og hélt áfram að sofa í hvert skipti sem barnið lét heyra í sér. Daginn eftir var laug­ar­dagur og ég var úrvinda af þreytu. Ég bað hann að taka barnið og sinna því meðan ég færi og legði mig. Ég náði rétt að gleyma mér áður en hann birt­ist við rúm­stokk­inn með dreng­inn og sagði: „Ég held að hann vilji drekka. Þú verður að sinna honum.“

Næstu daga gengu hlut­irnir áfram svona fyrir sig. Þegar skipta þurfti á barn­inu horfði hann hjálp­ar­vana á mig og þótt­ist ekki skilja hvernig fara ætti að þessu þótt ég væri marg­búin að sýna honum það. Á næt­urnar vakn­aði ég og sinnti barn­inu og hann var meira að segja svo ósvíf­inn að fara fram á að ég færði mig yfir í næsta her­bergi með barnið til að hann gæti sofið. Þá var mér nóg boðið og ég hvæsti á hann að barnið væri hans ekk­ert síður en mitt og hann gæti drull­ast til að sinna því til jafns við mig.

Brjóstagjöfin notuð sem afsökun

Hann tók þá við drengnum en fórst það svo óhöndug­lega að litla skinnið fór að háskæla og var bók­staf­lega óhugg­andi í fangi pabba síns. Ég var hand­viss um að hann gerði þetta vilj­andi til að losna við að sinna barn­inu. Daginn eftir ákvað ég að tala alvar­lega við hann og við sett­umst niður og ræddum málin. Hann virt­ist ekki skilja hvað ég var að fara þegar ég kvart­aði og kvaðst alls ekki hafa vik­ist undan ábyrgð heldur þvert á móti axlað meiri ábyrgði en hægt væri að ætl­ast til að hann gerði. Barnið væri á brjósti og þyrfti ein­fald­lega á mér að halda.

Þetta við­kvæði um brjósta­gjöf­ina átti ég eftir að heyra aftur og aftur á næstu vikum og mán­uðum. Um þetta leyti var kærast­inn minn í fríi frá vinnu sinni svo það var ekki álag eða mikil ábyrgð ann­ars staðar sem hindr­aði hann í að taka þátt í upp­eldi barns­ins. Hann átti inni sum­ar­frí og við höfðum ákveðið í sam­ein­ingu að gott væri að hann yrði í fríi heima fyrstu vik­urnar eftir að ég kæmi heim en fæð­ing­ar­or­lof hans vildum við eiga til góða. Eins og flestir geta ímyndað sér þá breytt­ist ástandið sann­ar­lega ekki til hins betra eftir að hann fór að vinna aftur.

„Eftir að dreng­ur­inn minn fædd­ist fannst mér að ein­hver hefði fleygt mér út í djúpa end­ann á laug­inni og ég kynni ekki að synda.“

Í raun má kannski segja að það hafi versnað því hann breytti ekki á nokkurn hátt venjum sínum þótt lítið barn væri komið á heim­ilið. Hann fór í rækt­ina eftir vinnu og kom ekki heim fyrr en seint ef því var að skipta. Ef ein­hver vina hans hringdi þá var hann strax til­bú­inn að hlaupa út úr dyr­unum og hafði ekki einu sinni fyrir að spyrja mig hvort mér væri sama. Áður en barnið kom til hafði ég lítið fundið fyrir þessum sið hans því ég ýmist fór með honum eða not­aði tæki­færið til að hitta vin­konur mínar. Núna var allt annað uppi á ten­ingnum. Ég var bundin yfir litlu barni og átti ekki völ á öðru en að sinna því eftir bestu getu.

Að synda eða sökkva

Oft er sagt að þegar fólki er fleygt út í djúpu laug­ina hafi það um það að velja að synda eða sökkva. Eftir að dreng­ur­inn minn fædd­ist fannst mér að ein­hver hefði fleygt mér út í djúpa end­ann á laug­inni og ég kynni ekki að synda. Í stað þess að taka sund­tökin og bjarga mér að bakk­anum var ég að sökkva. Ég réð ekki neitt við neitt. Ég var með lítið barn í hönd­unum sem ég kunni, að mínu mati, ekk­ert að sinna og ég var stöðugt þreytt. Við þetta bætt­ist að ég stóð alger­lega ein. Kærast­inn minn hafði hvorki áhuga á barn­inu né tíma til að sinna því og mamma sagði bara: „Æ! Þetta er nú svo indæll drengur, ég skil ekki hvað þú ert að kvarta.“ Og stundum var óljóst hvort hún átti við litla barnið eða kærast­ann minn.

Mamma skildi alls ekki hvers vegna ég kvart­aði undan van­líðan, þreytu og dep­urð. Að hennar mati var ég lukk­unnar pamfíll. Ég átti lít­inn heil­brigðan dreng, kærasta sem var ást­fang­inn af mér og bjó í nota­legri lít­illi íbúð. Hún þreytt­ist aldrei á að minna mig á að þegar hún átti mig voru aðstæður hennar aðrar og verri. Hún var ein á báti því pabbi minn kærði sig hvorki um hana né mig og for­eldrar hennar höfðu engar aðstæður til að styðja hana. Við­kvæðið hjá mömmu var jafnan: „Hlut­skipti ein­stæðrar móður er ekki eft­ir­sókn­ar­vert.“ Þetta fór óskap­lega í taug­arnar á mér og það end­aði með því að ég spurði hana einu sinni: „Á mér að líða betur vegna þess að aðrir hafa það verra en ég? Á ég að sætta mig við það að kærast­inn minn vilji ekki sinna barn­inu okkar bara af því að hann er svo góður að yfir­gefa okkur ekki?“ Mamma hafði engin svör við þessu svo hún lét sér nægja að skamma mig fyrir öfgar og til­ætl­un­ar­semi.

„Um eft­ir­mið­dag­inn var ég orðin svo slæm að ég lá í hnipri upp í rúmi og gat ekki hreyft mig.“

Ég við­ur­kenni fús­lega að á með­göng­unni sá ég allt í rós­rauðum bjarma. Brátt yrði komið lítið barn og fyrir hug­skots­sjónum mínum var það ævin­lega bros­andi og við for­eldr­arnir, hrein, glöð og hress að sinna því saman. Raun­veru­leik­inn reynd­ist auð­vitað allt annar. Fæðingin gekk fremur hægt og var mér erfið. Ég var því mjög þreytt og eftir mig fyrstu vik­urnar og ofan á það bætt­ist að þurfa að vakna til barns­ins fjórum sinnum á nóttu. Ég var því alltaf úrvinda, svefn­laus og önug. Ég er viss um að kærast­inn minn hafði ekki reiknað með því að stúlkan sem hafði verið glað­lyndur félagi hans í tvö ár breytt­ist í önug­lynda nöld­ur­skjóðu við það eitt að eign­ast barn en það var eins og hann gerði sér enga grein fyrir að hann gæti ein­hverju breytt.

Veiktist hastarlega

Álagið og tog­streitan í sam­bandi okkar jókst stöðugt og brátt var svo komið að varla leið dagur án þess að við rif­umst heift­ar­lega og deil­urnar urðu sífellt harð­ari. Viðbrögð hans voru venju­lega þau að rjúka út og skella á eftir sér hurð­unum. Síðan hvarf hann í nokkra klukku­tíma en kom heim þegar honum var runnin reiðin og þá átti ég að vera til­búin að láta sem ekk­ert væri og að allt væri orðið gott aftur. Ég vildi hins vegar ræða út um hlut­ina, kom­ast að ein­hverri nið­ur­stöðu og finna mála­miðlun sem báðir aðilar gætu sætt sig við. Ágrein­ings­efnið var nefni­lega alltaf það sama, að hann yrði að hjálpa meira til og taka meiri ábyrgð á heim­il­is­hald­inu.

Stríðið á heim­il­inu hafði geisað af óvenju­lega miklu offorsi í nokkra daga þegar ég vakn­aði einn morg­un­inn með mikla og sára verki í kvið­ar­hol­inu. Ég hélt að þetta myndi lag­ast og tók verkjart­öflu en í stað þess að minnka ágerð­ust verkirnir. Um eft­ir­mið­dag­inn var ég orðin svo slæm að ég lá í hnipri upp í rúmi og gat ekki hreyft mig. Ég hringdi í mömmu og bað um hjálp. Hún kom, leit á mig og hringdi umsvifa­laust á sjúkra­bíl. Í ljós kom að ég var með sýk­ingu í öðrum eggja­stokknum og hann hafði sprungið. Ég lá á sjúkra­húsi í rúma viku og mér var upp­álagt að taka það rólega eftir að ég kæmi heim.

„Síðan hvarf hann í nokkra klukku­tíma en kom heim þegar honum var runnin reiðin og þá átti ég að vera til­búin að láta sem ekk­ert væri.“

Og þá var eins og fólkið mitt hrykki loks­ins í gír­inn. Þegar ég var orðin fár­veik og algjör­lega búin á því var eins og það átt­aði sig á því að kannski þyrfti ég hjálp. Að það væri hugs­an­legt að það væri of mikið að nýbökuð móðir sæi ein um alla hluti og fengi hvorki aðstoð né umhyggju frá sínum nán­ustu. Mér fannst hjálpin koma fullseint og var lengi bæði reið og pirruð út í allt og alla. En ég fékk tæki­færi til að hvíla mig og eftir hvíld­ina leið mér mun betur.

Kærast­inn minn þurfti að sinna syni okkar meðan ég var veik og hann er hættur að afsaka sig með því að hann kunni ekk­ert á smá­börn. Hann mætti oft vera hjálp­legri en ástandið hefur mikið breyst til batn­aðar. Mamma hefur einnig áttað sig á því að það er ekki til að bæta neitt að telja manni trú um að vanda­mál manns séu ekki til. Hún hefur því staðið meira með mér en áður og það hjálpar. Ég er byrjuð að vinna úti aftur og það hefur líka orðið til þess að mér finnst ég ekki eins ein­angruð. Vonandi halda hlut­irnir áfram að lag­ast og ég vil trúa því að bráðum geti ég sagt að ég sé sátt við líf mitt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur