Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Andleg áföll hafa áhrif á heilsu fólks

Andleg áföll hafa áhrif á heilsu fólks

Unnur Anna Valdi­mars­dóttir, pró­fessor í far­alds­fræði við lækna­deild Háskóla Íslands, hefur lengi unnið að rann­sóknum á þeim áhrifum sem áföll hafa á and­lega- og lík­am­lega heilsu fólks. Hún leiðir rann­sókn­ina Áfalla­saga kvenna sem hún er nú að vinna úr og er í for­svari fyrir Íslands­hluta fjöl­þjóð­legrar rann­sóknar á líðan þjóðar á tímum COVID-19 sem verið er að vinna. Hún seg­ist sjálf hafa verið heppin í líf­inu og ekki lent í stórum áföllum, en henni þyki afskap­lega áhuga­vert að skoða afleið­ingar áfalla og hversu mikil áhrif til­finn­ingar okkar hafa á heilsu okkar. 

Eftir stúd­ents­próf frá MA lá leiðin í HÍ og það var sál­fræðin sem varð fyrir val­inu hjá Unni. Fljót­lega vakn­aði áhugi hennar á því að rann­saka hvaða áhrif áföll hefðu á and­lega og lík­am­lega heilsu fólks og loka­verk­efni hennar við Háskól­ann fjall­aði um um tengsl áfalla við þróun krabba­meina. Í dokt­ors­verk­efn­inu við við Karol­inska Institu­tet í Stokk­hólmi tók hún þá rann­sókn svo skref­inu lengra og skrif­aði um and­leg og lík­am­leg áhrif þess á konur að missa maka sinn úr krabba­meini. Hvernig stóð á því að þessi mál heltóku huga hennar?

„Það ein­hvern veg­inn æxl­að­ist þannig,“ segir Unnur hugsi. „Mér fannst þetta sam­band áfalla og heilsu­fars svo spenn­andi, sér­stak­lega sá mögu­leiki að áföll gætu haft áhrif á lík­ams­starf­semi okkar og þar með gert okkur ber­skjölduð fyrir hinum ýmsu sjúk­dómum. En rann­sóknir á þessu sviði voru þá – fyrir ald­ar­fjórð­ungi síðan – nokkuð skammt á veg komnar, og flestar voru þær það tak­mark­aðar að erfitt var að draga af þeim óyggj­andi álykt­anir. Þessar spurn­ingar heill­uðu mig gjör­sam­lega og mig lang­aði til að leggja mitt að mörkum til að við öðl­uð­umst betri skiln­ing á áhrifum áfalla á heilsu­far þeirra sem fyrir þeim verða, ekki bara and­lega heilsu heldur sér í lagi lík­am­lega. Mér finnst líka einnig mjög áhuga­vert hvernig margir þeir sem lenda í slíkum hremm­ingum hafa seiglu og þraut­seigju til að halda áfram með líf sitt og halda heilsu. Ég von­ast til að þessar rann­sóknir okkar geti meðal ann­ars kennt okkur hvernig efla megi þessa þætti þannig að stækka megi þann hóp sem á aft­ur­kvæmt heilsu­fars­lega í kjöl­far áfalla.“

Þrjátíu prósent af konum beittar ofbeldi

Ég spyr hana út í hið risa­stóra verk­efni Áfalla­sögu kvenna, sem er enn í fullum gangi. Hvað getur hún sagt mér um þá rann­sókn? „Já, þetta var stór rann­sókn, lík­lega ein stærsta rann­sókn á heims­vísu sem er skipu­lögð í þessum til­gangi,“ segir hún. „Við söfn­uðum saman áfalla­sögum rúm­lega þrjá­tíu þús­und kvenna og erum að vinna fyrstu nið­ur­stöð­urnar úr þessum efni­við akkúrat núna. Það tekur að minnsta kosti fimm ár að vinna úr þessu, það er alltaf þannig með svona stórar rann­sóknir, en ég held að þessi rann­sókn muni leiða ýmis­legt áhuga­vert ljós á næstu árum. Við erum meðal ann­ars að skoða tíðni ýmissa áfalla og ofbeldis gegn konum í íslensku sam­fé­lagi, heilsu­fars­legar afleið­ingar þeirra, áhrifum þeirra á tíðni áfallastreitu, svefn­rask­ana, lík­am­legra ein­kenna og ýmissa sjúk­dóma. Við erum einnig að skoða seiglu og almennan breyti­leika í heilsu­fari kvenna eftir áföll. Við erum afskap­lega stolt af þessu verk­efni og fyrstu nið­ur­stöð­urnar munu birt­ast í vís­inda­tíma­ritum nú á haust­miss­eri.“

„Mér fannst þetta sam­band áfalla og heilsu­fars svo spenn­andi, sér­stak­lega sá mögu­leiki að áföll gætu haft áhrif á lík­ams­starf­semi okkar og þar með gert okkur ber­skjölduð fyrir hinum ýmsu sjúk­dómum.“

Unnur er far­alds­fræð­ingur, eins og fram hefur komið, er ofbeldi gegn konum far­aldur? „Far­aldrar eru ýmis konar,“ segir hún. „Oftast þegar við notum það orð er átt við far­aldra eins og COVID-19 núna, eitt­hvað sem kemur ófor­var­andis og gengur yfir, og í þeim skiln­ingi er ofbeldi gegn konum kannski ekki far­aldur. Það er ekk­ert nýtt við það, hefur staðið yfir í aldir, en útbreiðsla þess er gríð­ar­leg og áhrifin sem það hefur á líf og líðan kvenna mjög víð­tæk. Um þriðj­ungur kvenna verður fyrir ofbeldi ein­hvern tím­ann á lífs­leið­inni, oft þegar þær eru mjög ungar og það markar allt líf þeirra upp frá því, hefur áhrif á and­lega og lík­am­lega heilsu, sjálfs­mynd, sjálfs­virð­ingu og svo fram­vegis. Það hefur áhrif á allt sam­fé­lagið og ég held að með því að rann­saka þetta eins og við erum að gera getum við náð árangri í að skilja og greina þessi áhrif. Við getum líka lært af þessum konum hvernig hægt er að takast á við ýmis önnur áföll í líf­inu og þannig ætti skiln­ingur á afleið­ingum ofbeldis að koma okkur öllum til góða. Við erum auð­vitað ekki búin að vinna úr þessum nið­ur­stöðum enn þá. En ég held að þær komi til með að leiða ýmis­legt gagn­legt í ljós.“

Það er greini­legt að Unnur hefur brenn­andi áhuga á þess­ari rann­sókn og nið­ur­stöðum hennar og ekki hægt að stand­ast að spyrja hvort áhugi hennar á þessu mál­efni teng­ist reynslu hennar sjálfrar. Hefur hún upp­lifað ofbeldi í eigin lífi? „Það er algengt að fólk haldi að vís­inda­menn velji sér við­fangs­efni sem tengj­ast þeirra eigin reynslu,“ segir hún og brosir. „Ég hef auð­vitað lent í ýmsu, eins og allir, en ég tel mig almennt hafa verið mjög heppna í líf­inu. Átti þennan Astrid Lindgren-upp­vöxt sem ég tal­aði um áðan, hef verið lengi í góðu hjóna­bandi og átt góða vini og að mestu leyti sloppið við meiri­háttar áföll. Ég er auð­vitað kona í starfi innan geira sem lengi hefur verið karllægur og hef, eins og aðrar konur, stundum fundið fyrir því, en ég hef líka fengið mik­inn stuðn­ing frá og átt í góðu sam­starfi við karl­kyns­sam­starfs­menn, svo það er engan veg­inn algilt að það sé erf­ið­ara að vera kona í svona starfi.“

„Mér finnst fólk stundum verða fyrir von­brigðum þegar það spyr mig við hvað ég sé að vinna núna, setur upp svona svip sem segir; hvað, ertu alltaf að vinna við það sama?“

Nú vinnur Unnur að annarri stórri rann­sókn, í sam­starfi við vís­inda­menn frá sex öðrum þjóðum, rann­sókn á líðan þjóðar á tímum COVID-19, þessar tvær rann­sóknir sem við vorum að tala um munu taka mest af tíma mínum næstu árin, geri ég ráð fyrir. Það er stundum erfitt að fá fólk til að skilja það hvað svona verk­efni eru tíma­frek og þurfa að ná yfir langan tíma. Mér finnst fólk stundum verða fyrir von­brigðum þegar það spyr mig við hvað ég sé að vinna núna, setur upp svona svip sem segir; hvað, ertu alltaf að vinna við það sama? En þannig eru vís­indin, þau eru alltaf langt ferli og hver svona rann­sókn er grunnur að fjöl­mörgum greinum og nið­ur­stöðum sem tekur mörg ár að vinna. Þannig að, já já, ég er alltaf í því sama,“ bætir hún við og skelli­hlær. „Ég er afskap­lega sátt og ham­ingju­söm með það sem ég er að vinna og það skiptir meira máli að vinna það vel og gaum­gæfi­lega heldur en að vera alltaf að takast á við eitt­hvað nýtt.“

Fatnaður Geysir
Förðun: Björg Alfreðs­dóttir, alþjóð­legur förð­un­ar­fræð­ingur fyrir YSL á Íslandi
Myndir: Hallur Karlsson

Unnur var í for­síðu­við­tali við Vikuna fyrir skömmu. Hér er hægt að ger­ast áskrif­andi að Vikunni.

Tryggðu þér áskrift að Vikunni í vef­verslun

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur