Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Amman sem lét sig hverfa

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni. Yfir­leitt heyr­ast bara sögur af karl­mönnum sem stinga fjöl­skyld­una af þegar „byrðin“ er að sliga þá og konan situr eftir í súp­unni. Fyrir nokkrum árum upp­lifði nágranni minn það að konan hans flutti út frá honum og börn­unum og hann sat eftir með sárt ennið.

Ég flutti með fjöl­skyldu minni í nýtt hverfi fyrir nokkrum árum og kynnt­ist fljót­lega nágrönnum mínum, hjónum sem áttu þrjár dætur. Sam­skiptin voru góð og með tím­anum urðu Magnús og Ásdís vina­fólk okkar.

Við Gummi, mað­ur­inn minn, vorum með þeim fyrstu sem fréttum þegar elsta dóttirin, 15 ára, varð ófrísk. Allir héldu fyrst að hún hefði fitnað svona og mamma hennar keypti m.a. á hana striga­skó þegar hún kvart­aði undan því að vera orðin svo þung á sér. Daginn eftir fóru mæðgurnar til læknis vegna slapp­leika dótt­ur­innar. Hann skoð­aði stúlk­una og sagði síðan að hún væri ófrísk og komin tæpa sjö mán­uði á leið. Þetta kom öllum í opna skjöldu, stúlkan átti erfitt með að trúa þessu og tók frétt­unum mjög illa fyrst í stað.

Barnið kom í heim­inn og reynd­ist vera heil­brigður og fal­legur drengur. Pabbinn var korn­ungur líka og þau stúlkan ekki í sam­bandi lengur. Hann studdi barns­móður sína eftir bestu getu og einnig reynd­ust for­eldrar hans henni og barn­inu ein­stak­lega vel.

Áfall

Eitt kvöldið sátum við Gummi í stofu­sóf­anum, horfðum á sjón­varpið og spjöll­uðum saman. Þá var dyra­bjöll­unni hringt og úti á tröppum stóð Magnús og spurði hvort hann mætti sníkja einn kaffi­bolla. Ég bauð honum inn í eld­hús og Gummi sett­ist hjá okkur. Við ræddum um hitt og þetta eins og venju­lega en Magnús var óvenju­þög­ull og það var eins og honum lægi eitt­hvað á hjarta sem hann gæti ekki komið orðum að. Á end­anum spurði ég hvort eitt­hvað hefði komið fyrir, hann væri svo ólíkur sjálfum sér. Það reynd­ist aldeilis vera þannig og Magnús sagði okkur frá því nýjasta sem hafði gengið á í lífi fjöl­skyld­unnar. Hann var dapur í bragði og svo­lítið eins og hann væri ekki búinn að átta sig á hlut­unum.

„Magnús vann kannski mikið en hann virt­ist vera mjög góður fjöl­skyldu­faðir, eig­in­lega fannst mér hann dekra við Ásdísi og dæt­urnar, það var alla vega greini­legt að hann elskaði þær mikið.“

Á meðan dóttir þeirra var á fæð­ing­ar­deild­inni til­kynnti Ásdís honum að hún væri farin, hún nennti þessu ekki lengur. Hún væri búin að pakka niður í tösku og ætl­aði að flytja út. Hún kvaddi dæt­urnar og fór. Hún flutti í her­bergi úti í bæ og engu tauti var við hana komið. Það var bók­staf­lega ekk­ert sem gaf til kynna að Ásdísi liði illa á nokkurn hátt, sagði Magnús. Hún hafði verið alveg eins og hún átti að sér að vera dag­ana og vik­urnar áður en þetta gerð­ist.

Við Gummi störðum á Magnús og trúðum varla okkar eigin eyrum. Aldrei hafði Ásdís minnst á eitt eða neitt í þessa veru og aldrei hafði hún kvartað yfir hlut­skipti sínu eða minnst á að hún væri óham­ingju­söm. Magnús vann kannski mikið en hann virt­ist vera mjög góður fjöl­skyldu­faðir, eig­in­lega fannst mér hann dekra við Ásdísi og dæt­urnar, það var alla vega greini­legt að hann elskaði þær mikið. Sem nágranni og vinur þekkti ég þau vel og vissi heilmargt um þau. Það var því ekk­ert sem bjó mig undir þessar fréttir.

Aldrei heim aftur

Skömmu eftir heim­sókn Magnúsar ákvað ég að kíkja til Ásdísar. Það var ósköp nöt­ur­legt að heim­sækja hana í leigu­her­bergi. Ég við­ur­kenni að ég var að drep­ast úr for­vitni og lang­aði að vita ástæð­una fyrir þessu öllu saman.

Risastór og fal­legur blóm­vöndur var í vasa á borði í einu horn­inu. Ég spurði Ásdísi hvort hún væri komin með nýjan mann en hún hristi höf­uðið og sagði kulda­lega: „Þetta eru blóm frá Magnúsi, ég skil bara ekki hvernig honum dettur í hug að ég falli fyrir þessu!“ Hún rétti mér mið­ann sem fylgdi blómunum og þar mátti lesa inni­lega ást­ar­játn­ingu frá Magnúsi. Mér fannst svo sorg­legt að lesa þetta fal­lega bréf þar sem hann sagði að Ásdís væri eina ástin hans, spurði hvort hún gæti ekki komið aftur, hvað hann hefði gert og hvort hann gæti bætt á ein­hvern hátt fyrir það. Ásdísi fannst ekki mikið til um þetta og sagð­ist aldrei ætla að fara heim aftur, hún væri búin að fá nóg. Ég spurði hana hvort hana lang­aði ekk­ert að kynn­ast nýfædda barna­barn­inu en hún gaf ekk­ert út á það. Hún sagði ekk­ert nei­kvætt um Magnús sem hefði útskýrt hvers vegna hún fór að heiman, heldur end­ur­tók bara að ætl­aði aldrei aftur heim.

Það var svo mikil bit­urð og hatur í henni og ég þekkti hana ekki fyrir sömu mann­eskju. Ekkert sem hún sagði rétt­lætti í mínum huga það að yfir­gefa fjöl­skyldu sína á þennan hátt. Ég gat alveg ímyndað mér höfn­un­ina og sárs­auk­ann sem dætur hennar upp­lifðu og einnig sorg Magnúsar.

„Ég við­ur­kenni að ég var að drep­ast úr for­vitni og lang­aði að vita ástæð­una fyrir þessu öllu saman.“

Ég sat hjá henni í smá­stund í við­bót og fann fyrir miklum létti þegar ég var komin út. Hvernig Ásdís gat breyst svona fannst mér ótrú­legt. Ég hef ekki hitt hana eftir þessa heim­sókn mína og hef engan áhuga á því að þekkja svona mann­eskju.
Þetta gerð­ist allt snemma sum­ars og um haustið fóru sög­urnar af stað og þær reynd­ust heldur betur vera sannar.

Ásdís hafði fengið nýtt starf í jan­úar á þessu sama ári og kynnst manni á vinnu­staðnum sem hún fór að vera með. Hann var 15-20 árum yngri en hún og þau fóru svo leynt með sam­bandið að engan grun­aði neitt. Magnús hafði þó spurt hana nokkrum sinnum hvort annar maður væri í spil­inu því að Ásdís hafði aldrei gefið upp neina ástæðu fyrir brott­för sinni. Ásdís hafði þrá­fald­lega neitað því. Hún flutti í annað sveit­ar­fé­lag nokkrum mán­uðum seinna, eða um ára­mótin næstu og fór að búa með unga mann­inum sínum. Nú eiga þau heima í útlöndum og eru víst mjög ham­ingju­söm.

Frábær pabbi

Þetta reynd­ist dætr­unum mikið áfall en Magnús tók á honum stóra sínum þegar hann átt­aði sig á því að Ásdís kæmi ekki aftur heim og reyndi eftir bestu getu að fylla skarð hennar. Smám saman tókst fjöl­skyld­unni að púsla sér saman og lífið hélt áfram. Ég dáð­ist að Magnúsi, hann reynd­ist stelp­unum alveg ein­stak­lega góður faðir. Það hefur ræst vel úr þeim öllum og litla barna­barnið var afa sínum mik­ill gleði­gjafi.

„Ég tek það fram að ég áfellist Ásdísi ekki vegna þess að hún er kona og ætti eitt­hvað frekar að vera hjá maka og börnum en karl­maður.“

Ásdís á nokkur barna­börn núna, enda eru dæt­urnar upp­komnar. Þegar Ásdís var loks til­búin að taka upp sam­band við dætur sínar voru þær ekk­ert sér­lega upp­rifnar. Það hefur ekki enn gróið um heilt en mér skilst þó að ástandið hafi farið skán­andi með árunum.

Ég tek það fram að ég áfellist Ásdísi ekki vegna þess að hún er kona og ætti eitt­hvað frekar að vera hjá maka og börnum en karl­maður. Ef Magnús hefði farið að heiman á þennan hátt hefði ég orðið alveg jafn­hissa og hneyksluð. Það að yfir­gefa fjöl­skyldu sína svona skyndi­lega og án sýni­legrar ástæðu fannst mér illa gert, hvort sem karl eða kona á í hlut. Þetta er hámark eig­ingirn­innar, að mínu mati. Ég get rétt ímyndað mér sárs­auk­ann og höfn­un­ina sem Magnús og dæt­urnar upp­lifðu. Það hefði verið skárra ef hún hefði sagt sann­leik­ann, að annar maður væri í spil­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur