Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Alma hefur áhyggjur af fjölgun sjálfsvíga – Þöggun en teikn á lofti um sorglega stöðu

Alma Möller land­læknir hefur áhyggjur af tölum sem gefa til kynna fjölgun sjálfs­víga í kór­ónu­veiru­faldr­inum. Þeim áhyggjum deilir hún með mörgum þeim stofn­unum og sam­tökum sem vinna með sjálfs­víg og sjálfs­skaða. Ýmis teikn eru uppi um sorg­lega stöðu þeirra sem glíma við geð­ræn vanda­mál á Covid-tímum. Opin­ber­lega ríkir þó þögn um þessa stöðu og virð­ast yfir­völd telja að með opinni umræði stækki þetta vanda­málið sem er upp á líf eða dauða.

Þetta kemur fram í fund­ar­gerð land­læknis sem unnin var á skyndi­fundi emb­ætt­is­ins með fjölda stofn­ana og sam­taka sem starfa í mála­flokknum. Fund­ur­inn var hald­inn í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu og til­efnið voru skelfi­legar tölur rík­is­lög­reglu­stjóra.

Vís­bend­ingar eru um að sjálfs­vígstil­fellum hér á landi hafi fjölgað um 67 pró­sent frá því í fyrra. Tölur gefa til kynna að fleiri hafi mögu­lega fallið fyrir eigin hendi í kór­ónu­veiru­faldr­inum heldur en úr Covid-19. Vís­bend­ing­arnar má finna í bráða­birgða­tölum rík­is­lög­reglu­stjóra sem liggja nú til með­ferðar hjá Ölmu og hennar starfs­fólki.

Hlut­fallið á mögu­lega eftir að breyt­ast hjá emb­ætti land­læknis því nú fer í hönd tíma­frekt ferli til stað­fest­ingar dána­meina þeirra ein­stak­linga sem lög­reglan hefur skráð hjá sér sem sjálfs­víg. Hafa ber í huga að um bráða­birgða­töl­fræði er að ræða en hún gefur engu að síður alvar­lega mynd.

Tölur lög­regl­unnar sýna að það hafa 30 ein­stak­lingar svipt sig lífi í ár, á meðan þeir voru 18 tals­ins sam­kvæmt skrán­ingu lög­reglu á sama tíma í fyrra. Það er aukn­ing um 12 látna, eða því sem nemur 67 pró­senta aukn­ingu, sem er tveimur fleiri en lát­ist hafa úr Covid-19 hér­lendis í far­aldr­inum. Sé horft til árs­ins 2018 til sam­an­burðar þá höfðu 22 fallið fyrir eigin hendi á sama tíma­punkti, sem er 36 pró­sentum minna en í ár.

Sjá meira hér: Skelfi­legar tölur lög­reglu – Sjálfs­vígum snar­fjölgar í covid-far­aldri.

Í fund­ar­gerð land­læknis má sjá að sum­arið hafi verið eril­samt hjá þeim sem sinna þjón­ustu er tengj­ast sjálfs­vígum og sjálfs­skaða. Því hafi verið full ástæða til að kalla til skyndi­fund­ar­ins í ráðu­neyt­inu til að fara yfir stöð­una og skipu­leggja við­brögð.

Það eru ekki aðeins tölur rík­is­slög­reglu­stjóra sem eru áhyggju­efni. Líkt og Mannlíf hefur greint frá hefur þeim fjölgað um ríf­lega helm­ing frá því í fyrra til­fell­unum þar sem fólk með sjálfs­vígs­hugs­anir leitar til Píeta sam­tak­anna. Aukn­ingin nemur raunar 121 pró­senti. Fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna segir skýrar vís­bend­ingar uppi um fjölgun sjálfs­víga.

Þá voru sjálfs­vígs­við­tölin hjá Píeta sam­tök­unum 310 tals­ins í síð­asta mán­uði á meðan þau voru 140 tals­ins á sama tíma í fyrra. Samtökin sinna for­varn­ar­starfi gegn sjálfs­vígum og sjálfs­skaða. Kristín Ólafs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Píeta sam­tak­anna, hefur miklar áhyggjur. „Hjá okkur merkjum við gíf­ur­lega aukn­ingu og við höfum að sjálf­sögðu miklar áhyggjur. Það blasir við. Það er alveg óhætt að full­yrða það að okkur er að líða verr núna en und­an­farið. Tölur gefa það klár­lega til kynna,“ sagði Kristín í sam­tali við Mannlíf.

Hjá Rauða Kross­inum, sem starf­rækir hjálp­ar­sím­ann 1717, hefur orðið aukn­ing á sím­tölum og net­spjalli er varðar sjálfs­vígs­hættu. Þeim hefur fjölgað um 100 miðað við sama tíma í fyrra. Flest sjálfs­vígs­sam­tölin eru frá körlum 26-35 ára og stúlkum 18 ára og yngri sam­kvæmt fund­ar­gerð Land­læknis.

Hjá Berginu var fjöldi við­tala tekin við ung­menni í sumar og rætt við þau um sjálfs­vígs­hugs­anir. Kom þar í ljós að sex pró­senta aukn­ing hefur orðið hjá ungu fólki sem svarar þau ját­andi að hafa hug­leitt sjálfs­víg. Það eru ríf­lega 70 ung­menni sem það hafa gert þetta Covid-sum­arið.

Hjá Geðhjálp varð 100 pró­senta aukn­ing á nýt­ingu ráð­gjafar sem bætti í fjar­þjón­ustu sína í sam­komu­bann­inu og fjölg­aði ráð­gjöfum. Á bráða­þjón­ustu geð­deildar Land­spít­al­ans varð einnig aukn­ing í far­aldr­inum, í sam­an­burði við árið í fyrra. Ætlunin var að loka þar legu­deild­inni í sumar en við það var hætt vegna anna í far­aldr­inum.

Aðrar stofn­anir eða hjálp­ar­sam­tök í mála­flokknum hafa ýmist ekki merkt aukn­ingu eða eiga eftir að taka saman töl­fræði yfir Covid-tíma­bilið. Mannlíf óskaði eftir við­brögðum frá land­lækn­is­emb­ætt­inu vegna máls­ins en þaðan feng­ust engin svör.

Fólk með sjálfs­vígs­hugs­anir er minnt á Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins, 1717, og net­spjallið. Þjálfaðir og reynslu­miklir sjálf­boða­liðar á öllum aldri svara þeim sím­tölum og spjöllum sem ber­ast. Fullum trún­aði er heitið, núm­erið er ókeypis og opið allan sól­ar­hring­inn.

Píeta sam­tökin bjóða einnig upp á þjón­ustu í síma 552-2218 fyrir fólk í sjálfs­vígs­hættu og með sjálfs­skaða­hegðun. Númerið er opið allan sól­ar­hring­inn.
Þá er einnig hægt að ná net­spjalli við hjúkr­un­ar­fræð­inga í gegnum vef­inn heilsu­vera.is.

Áður­nefndur fundur var hald­inn í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu 2. sept­em­ber og hér er listi fyrir funda­menn:

Fyrir hönd Rauða kross­ins, 1717: Elfa Dögg S. Leifs­dóttir.

Fyrir hönd Bergsins Headspace: Sig­ur­þóra Bergs­dóttir.

Fyrir hönd Geð­hjálpar: Grímur Atlason.

Fyrir hönd Hug­arafls: Auður Axels­dóttir.

Fyrir hönd Píeta: Krístin Ólafs­dóttir.

Fyrir hönd Sorg­ar­mið­stöðvar: Guðrún Jóna Guð­laugs­dóttir.

Fyrir hönd geðeildar LSH: Berglind Guð­munds­dóttir og Þór­gunnur Ársæls­dóttir.

Fyrir hönd geð­heilsuteyma: Hrönn Harð­ar­dóttir.

Fyrir hönd geð­deildar SAk: Helgi Garðar Garð­ars­son.

Fyrir hönd Þró­un­ar­mið­stöðvar íslenskrar heilsu­gæslu: Agnes Agn­ars­dóttir.

Frá emb­ætti land­læknis mættu Salbjörg Bjarna­dóttir, Kjartan Hreinn Njálsson, Hildur Guðný Ásgeirs­dóttir og Alma Möller.

Frá heil­brigð­is­ráðu­neyti mætti Ingi­björg Sveins­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina