Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Gæti skapað gríðarleg verðmæti

Gæti skapað gríðarleg verðmæti
Anita Hirlekar og Magnea Ein­ars­dóttir. Mynd sam­sett / Saga Sig

„Þetta var eitt­hvað sem okkur lang­aði til að gera. Og þetta hefur verið skemmti­legt ferli, krefj­andi og virki­lega lær­dóms­ríkt,“ segja fata- og textíl­hönn­uð­urnir Aníta Hirlekar og Magnea Ein­ars­dóttir, sem ákváðu að flytja alla fram­leiðslu á hönn­un­ar­vöru sinni til Íslands. Þær eru sam­mála um að því fylgi ákveðnar áskor­anir að vera með fram­leiðsl­una hér heima en á heild­ina litið séu kost­irnir við þetta fleiri og ákvörð­unin hafi því óneit­an­lega borgað sig, ekki síst eftir að COVID-far­ald­ur­inn brast á og setti allt á hvolf í heim­inum.

Magnea Ein­ars­dóttir hannar undir merk­inu MAGNEA. Mynd / Saga Sig

„Maður fær tæki­færi til að standa nær vör­unni, sem hefur mikla kosti i för með sér. Maður getur fylgst betur með,“ segir Magnea þegar blaða­maður byrjar sam­talið á því að spyrja hvaða kosti fram­leiðslan á Íslandi hafi bein­línis umfram fram­leiðslu úti í heimi.

„Já, hér heima hefur maður miklu meiri yfir­sýn á allt fram­leiðslu­ferlið,“ sam­sinnir Anita. „Alveg frá því að varan er á hönn­un­ar­stigi og þar til við­skipta­vin­ur­inn fær hana í hend­urnar.“

Spurðar hvers vegna þær hafi upp­haf­lega tekið ákvörðun um að flytja fram­leiðsl­una heim til Íslands segj­ast þær hafa gert það meðal ann­ars með það fyrir augum að geta boðið upp á sjálf­bær­ari og umhverf­is­vænni vöru.

„Það þýðir ekki að setja öll eggin í sömu körf­una, eins og ástandið hefur kennt okkur á þessu ári.“ – Magnea

„Ég hef alltaf unnið með íslenska ull að ein­hverju leyti og verið að prófa mig áfram með hana. Í fyrra fékk ég styrk til að þróa yfir­hafnir úr ull og ákvað að gera það bara hér frekar en að vera að senda ull­ina út. Konseptið teng­ist umhverf­is­vernd og sjálf­bærni. Að bjóða upp á vörur með lág­marks kol­vetna­spor. Ein flík getur nefni­lega farið marga hringi í kringum jörð­ina áður en hún kemst frá hönn­uði til not­anda. Ég hef því verið að vekja athygli á þvi að allt ferlið eigi sér stað í Reykja­vík, alveg frá því að ég vel efnið í flík­ina og þar til hún fer í fram­leiðslu. Eina ferða­lagð sem flíkin fer í er frá mér til neyt­enda,“ segir Magnea.

Anita Hirlekar hannar undir merk­inu ANITA HIRLEKAR. Mynd / Saga Sig

Anita kinkar kolli. „Ég er textíl­hönn­uður líka og bjó til mín efni sjálf, þar sem ég hef alltaf verið svona svo­lítil „do-it-yourself“-týpa. Og ég fór að fram­leiða hér á Íslandi af því allt sem ég geri er hand­gert og ég vildi bara ekki fara að fram­leiða mörg ein­tök af hverri vöru. Þetta snýst líka um fata­sóun,“ segir hún.

Ýmislegt komið í ljós

Í því sam­hengi nefnir Magnea að þegar fram­leiðsla fari fram úti þurfi hönn­uðir að láta senda sér prufur og prótótýpur og oft séu þær fyrstu sem ber­ast vit­lausar. „Þá þarf að gera þær upp á nýtt og senda aftur á milli landa sem er tíma­frekt, kostn­að­ar­samt og meng­andi. Að vinna vör­una hér heima kemur klár­lega í veg fyrir svo­leiðis tví­verknað og það sparar líka heil­mik­inn tíma og pen­ing að geta bara brugðið sér út í verk­smiðju ef svo ber undir. Svo er mjög gaman að geta hitt á fram­leið­and­ann, geta unnið nánar með honum, verið inni á gólfi og séð vör­una fram­leidda. Aðal­at­riðið samt er að þetta er sjálf­bær­ara og umhvef­is­vænna.“

Að sögn Anitu hefur nýja fyr­ir­komu­lagið meira að segja hafi orðið til þess að hún hefur gert breyt­ingar á hönnun sinni. „Þegar ég sá til dæmis hversu mikið efni fór til spillis við gerð á einum kjól sem ég hann­aði breytti ég honum í sam­ráði við kjóla­meist­ar­ann til að laga það. Maður verður að hugsa um umhverfið. Þetta er hlutur sem maður áttar sig ekki á ef fram­leiðslan fer fram úti, því þá er hún ekki eins sýni­leg hönn­uð­inum. Það hefur því verið lær­dóms­ríkt og mik­il­vægt að vera svona mikið inni í öllu,“ segir hún.

Lína Magneu kall­ast Made in Reykja­vík og sam­anstendur af yfir­höfnum úr ull. Hún er fram­leidd Íslandi. Mynd / Íris Dögg Ein­ars­dóttir

Höfðar til erlendra viðskiptavina

Þær við­ur­kenna þó að það sé „ákveðið ferli“ að fram­leiða vör­una með þessum hætti. „Maður gerir þetta ekki bara einn, tveir og þrír. Maður þarf aðeins að þreifa sig áfram, byggja upp gott teymi í kringum sig þetta og finna efni sem upp­fyllir gæða­kröfur,“ lýsir Anita. „Það getur vissu­lega verið svo­lítið krefj­andi á köflum.“

„En á heild­ina litið hefur þetta bara gengið nokkuð vel,“ segir Magnea og Anita tekur undir með henni.

Hikuðuð þið aldrei við að gera þetta? „Nei, þetta var eitt­hvað sem mig lang­aði til að prófa,“ svarar Magnea ákveðin. „Ég vill kanna mögu­leik­ana, hverjir þeir eru þegar maður vinnur með íslenskt hrá­efni.“

„Fólki finnst hönn­unin spenn­andi og áhuga­vert að hún skuli ekki vera fjölda­fram­leidd.“ – Anita.

„Ég velti ákvörð­un­inni reyndar fyrir mér,“ segir Anita hins vegar. „Og ég játa að maður getur stundum orðið svo­lítið þreyttur á þessu fyr­ir­komu­lagi. En kost­irnir eru margir eins og ég segi. Það er ég sem stýri ferð­inni. Ég fram­leiði vör­una í takt við eft­ir­spurn, þannig að það er aldrei offram­boð af neinu, geri þetta á mínum hraða og vinn með góðu og hæfi­leik­a­ríku fólki. Ég er með mikið af hug­myndum og nú hef ég frjáls­ari hendur til prófa mig áfram og prófa nýja stíla til að sjá hvað virkar og hvað fellur í kramið.“

Ný fata­línan eftir Anítu Hirlekar er hönnuð og fram­leidd á Íslandi. Mynd / Rut Sig­urð­ar­dóttir

Og það eru ekki bara Anita og Magnea sem eru sáttar við að hafa tekið ákvörðun um að flytja fram­leiðsl­una heim. Við­skipta­vin­irnir eru spenntir líka. „Kjól­arnir mínir hafa til dæmis verið rosa­lega vin­sælir úti og kúnn­unum mínum erlendis þykir mjög merki­legt að þeir skuli vera hann­aðir og fram­leiddir á Íslandi. Fólki finnst hönn­unin spenn­andi og áhuga­vert að hún skuli ekki vera fjölda­fram­leidd,“ segir Anita.

„Tísku­iðn­að­ur­inn er auð­vitað einn sá mest meng­andi á heims­vísu,“ minnir Magnea á. „Hér heima getum við boðið upp á vöru sem er fram­leidd með umhverf­is­vænni aðferðum. Vöru sem stendur fyrir það.“

Covid-19 hafði minni áhrif en víða annars staðar

Blaða­manni liggur for­vitni að vita hvort hafi ekk­ert COVID-19 sett strik í reikn­ing­inn. „Jú, jú, heims­far­ald­ur­inn hægði auð­vitað á öllu ferl­inu. Allir eru svo­lítið að díla við það. Fólk hefur þurft að vinna meira heima. Það eru fjölda­tak­mark­anir í gangi sem hafa nátt­úr­lega bitnað á vinnu­stöðum. Ég vinn sjálf með tveimur fram­leið­endum á Íslandi og þetta hefur alveg komið niður á þeim,“ segir Magnea.

„Þetta hefur samt ekki haft eins mikil áhrif á fram­leiðsl­una hér og sums staðar úti í heimi,“ tekur Anita fram.

„Nei, það er einna helst að það taki aðeins lengri tíma að koma frá sér full­bú­inni vöru,“ nefnir Magnea.

„Ég er líka bjart­sýn á að íslensk hönnun blóm­stri, en til þess að það ger­ist verður fólk auð­vitað að kaupa hana.“ – Magnea.

„Þó ekki þannig að það hafi orðið brjál­æð­is­legar seink­anir á afhend­ingu á vöru eins og sums staðar erlendis. Maður hefur alveg fundið hvað maður er í góðri stöðu með að vera með fram­leiðsl­una og vinn­una hér heima með hlið­sjón af því og svo að geta gert hlut­ina bara á sínum for­sendum og sínum hraða,“ segir Aníta.

Að sögn Magneu á itill­inn Made in Reykja­vík að vekja athygli á upp­runa vör­unnar. Mynd / Íris Dögg Ein­ars­dóttir

Magnea kinkar kolli. „Já, segja má að það sé viss lúxus að hafa flutt allt heim áður en far­ald­ur­inn skall á.“

Spurning um að taka skrefið

Hvað sem heims­far­aldr­inum líður er ekki annað að heyra en að þær séu báðar bjart­sýnar á fram­haldið. „Já, ég er það. Annars væri ég ekki að þessu,“ segir Anita. „Og ég er bjart­sýn fyrir hönd íslenskrar hönn­unar. Það eru margir mögu­leikar í boði. Sem dæmi sáum við Magnea og fleiri ákveðið tæki­færi í því að koma saman og opna aftur versl­un­ina Kiosk, Kiosk Grandi. Fyrir mér er þetta spurn­ing um að reyna að vera skap­andi og vera vak­andi fyrir tæki­færum og standa saman. Þá held ég að okkur séu allir vegir færir,“ segir hún.

„Fyrir mér er þetta spurn­ing um að reyna að vera skap­andi og vera vak­andi fyrir tæki­færum og standa saman. Þá held ég að okkur séu allir vegir færir.“ – Anita.

„Ég er líka bjart­sýn á að íslensk hönnun blóm­stri, en til þess að það ger­ist verður fólk auð­vitað að kaupa hana. Mark­að­ur­inn verður að vera til­bú­inn að styðja við þessa atvinnu­grein. Við þurfum að byggja upp fjöl­breytt­ari atvinnu­greinar á Íslandi. Það þýðir ekki að setja öll eggin í sömu körf­una, eins og ástandið hefur kennt okkur á þessu ári,“ segir Magnea.

„Vanda­málið er ekki að það skorti flotta og hæfi­leik­a­ríka hönn­uði á Íslandi, þvert á móti. Við þurfum hins vegar að fara með þessa gras­rót­ar­stemn­ingu sem hefur ein­kennt hönn­un­ar­sen­una á Íslandi upp á næsta stig, enda sjáum við á nágranna­lönd­unum hvað skap­andi greinar og tískuiðn­ur­inn geta gefið af sér gríð­ar­lega mikil verð­mæti. Þetta er spurn­ing um að taka skrefið.“

Við­skipta­vinir Anitu erlendis finnst merki­legt að línun skuli vera hönnuð og fram­leidd á Íslandi. Mynd / Rut Sig­urð­ar­dóttir.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur