Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Í örvæntingarfullri leit að maka: „Hvar er hann þá, minn eini rétti?“

Lífs­reynslu­saga úr Vikunni: Ég á margar vin­konur og flestar á lausu í leit að maka. Ýmsar hug­leið­ingar fara oft í gegnum huga minn þegar ég horfi á þær og ég hef heyrt þær orða hugs­anir sínar hvað þetta varðar oftar en einu sinni. Spurn­ingin sem brennur á okkur öllum er senni­lega sú hvort hinn eini rétti sé til og ef svo er hvar hann leyn­ist. Þurfum við að hafa okkur allar við til að finna hann eða munu örlögin sjá til þess að við hitt­umst áður en yfir lýkur?

Stundum finnst mér að best sé að vera ein. Það tryggir að við verðum ekki fyrir von­brigðum. Hugs­an­lega erum við búnar að búa okkur til ein­hverja staðl­aða hug­mynd um það hvernig draumamakinn á að líta út, hvernig hann á að hegða sér og hvað hann þarf að geta. Þegar við svo kynn­umst ein­hverjum sem gæti komið til greina í okkar huga þá þurfum við að kryfja við­kom­andi og sam­bandið til mergjar. Það verður til þess að við tínum til öll smá­at­riði sem ekki passa og komumst að þeirri nið­ur­stöðu að þegar allt kemur til alls þá hentar þessi ein­stak­lingur okkur alls ekki, enda stenst hann engan veg­inn vænt­ingar.

Oft erum við svo blindar að við sjáum ekki hvað er beint fyrir framan nefið á okkur. Óskirnar eru orðnar svo óraun­hæfar og oft byggðar á hug­myndum úr banda­rískum bíó­myndum eða bókum sem sann­ar­lega gefa aldrei rétta mynd af raun­veru­leik­anum. Í sumum til­fellum hafa hug­mynd­irnar um það hvernig sá eini rétti á að vera náð slíkum tökum á okkur að við þorum ekki að leyfa okkur að kom­ast að því hvað býr í annarri mann­eskju af ótta við að sam­bandið gangi ekki upp. Stundum erum við búnar að reyna það oft og vera í það mörgum sam­böndum sem öll hafa endað illa að kvót­inn fyrir náin kynni er upp­ur­inn og trúin á okkur sjálfar sem gef­andi og ást­ríkar mann­eskjur líka.

Skyndikynni og hrátt kynlíf látið duga

Þá förum við að stunda skyndikynni og látum hrátt kyn­líf duga. Það veitir hins vegar ekki full­nægju nema skamman tíma. Ég spyr mig oft: Höfum við enda­lausa orku til að þramma um skemmti­staði borg­ar­innar í leit að ham­ingju og hinum eina rétta? Auðvitað detta ein­hverjar í lukku­pott­inn og finna hann og það heldur okkur hinum gang­andi og glæðir vonir okkar um að við verðum næstar. En í raun er þetta eins og að spila í lottói. Vissu­lega gefur þinn miði mögu­leika á vinn­ingi en hverjar eru vinn­ings­lík­urnar? Þær eru í raun ansi litlar.

Á skemmti­stöð­unum eru flestir hífaðir og jafn­vel drukknir og það vekur upp spurn­ingar um hversu vel við séum í stakk búnar til að finna okkur maka í því ástandi. Dóm­greindin er skert og sá sem virð­ist hress og skemmti­legur meðan við erum undir áhrifum reyn­ist síðan hinn versti hroka­gikkur og montrass þegar við förum að tala við hann alls­gáðar. Snýst skemmt­ana­lífið kannski alls ekki um maka­leit? Erum við bara að kaupa okkur stund­ar­sælu yfir eina helgi? Og eyðum við síðan vik­unni í að skamm­ast okkar fyrir hegð­un­ina eða allt þar til ballið byrjar aftur helg­ina á eftir?

„Höfum við enda­lausa orku til að þramma um skemmti­staði borg­ar­innar í leit að ham­ingju og hinum eina rétta?“

Þegar skemmt­ana­lífið fer að þynn­ast út og við komumst að því að þetta er
ekk­ert gaman lengur, hvernig eigum við þá að finna þann eina rétta? Getum við treyst á að örlögin færi hann upp í hend­urnar á okkur eða verðum við sjálfar að passa að við séum sýni­legar og til­búnar ef hann skyldi nú skjóta upp koll­inum? Nei, við erum ekki til­búnar að leggja allt okkar í hendur örlag­anna og þá tekur Netið við. Reyndar eru ekki allir í felu­leik þar. Það er voða gott að fela sig á bak við tölv­una, vera bara and­lits­laust nafn og daðra af krafti. Kannski ber freist­ingin ein­hverja ofur­liði og þeir ákveða að hitt­ast. Hvað ger­ist þá? Stundum fer fólk saman í rúmið og skreið­ist síðan heim með sama óbragðið í munn­inum og eftir helg­ar­djam­mið. Skömmin er jafn­sár og þá og end­ist álíka lengi.

Í fantasíuleik á Netinu

Á Netinu eru margir í ein­hverjum fantasíu­leik, bæði karlar og konur. Hafa marga af hinu kyn­inu í tak­inu og skrifa alls konar hluti sem þeir meina alls ekk­ert með. Sumir vilja leyna því að þeir eru í hjóna­bandi, aðrir reyna að virð­ast yngri og enn aðrir allt öðru­vísi í útliti en þeir eru í reynd. Þetta getur verið óskap­lega gaman. Að fá í fyrsta sinn á ævinni að leika einmitt þá per­sónu sem við­kom­andi þráir að vera. Þarna er hægt að segj­ast vera geim­vís­inda­maður eða ljóska með stór brjóst og örmjótt mitti. Það er líka hægt að gleyma að maður á þegar maka, maka sem eftir nokkurn tíma varð hvers­dags­leg mann­eskja fremur en drauma­prins eða drauma­dís. En hvað ger­ist þegar raun­veru­leik­inn bankar upp á og þeir sem hafa leyft ímynd­un­ar­afl­inu að leika lausum hala þurfa að stíga fram úr skugg­anum og sýna sig?

Loks þegar þeir hitta mann­eskj­una, hugs­an­lega eftir margra vikna spjall um lífið og til­ver­una, er hún þá jafnsjar­mer­andi og hún á bak við tölv­una? Borgar sig virki­lega að taka af skarið og hitt­ast eða væri bara betra að fela sig áfram bak við tölv­una? Kannski erum við fyrst og fremst að blekkja sjálf okkur með því að von­ast til þess að hægt sé að ná nán­ara og betra sam­bandi við mann­eskju gegnum tölvu­sam­skipti en mögu­legt er á skemmti­stöðum með glas í hendi.

Vissu­lega getur við­kom­andi karl heillað okkur konur ef hann hefur ekki málað sjálfan sig of skærum litum og reyn­ist vera sú per­sóna sem hann sýnd­ist vera í bréfum sínum. Það er líka mögu­leiki að fyr­ir­gefa örlitla skreytni ef ein­lægni og heið­ar­leiki hefur að mestu ráðið öllu því sem sagt var en lygi og blekk­ingar eru aldrei góð byrjun á sam­bandi. Kvæntir menn í leit að ævin­týrum á Netinu eru fiskar sem best er að sleppa.

Æskudýrkun og börnin hans og hennar

Hvað er það sem virkar í þessum leik og hvað ekki? Erum við kannski útbrunnar þegar komið er yfir þrí­tugs­ald­ur­inn eða bara kröfu­harð­ari þegar náin kynni eru ann­ars vegar? Ömmur okkar og afar voru ekki endi­lega að elt­ast við stinn­asta holdið, grennsta rass­inn og stærstu brjóstin. Þá elt­ist fólk eðli­lega og ekki var haft fyrir því að pússa burtu hrukk­urnar eða hindra ótíma­bær öldru­nein­kenni með kremum. Það þótti jafn­vel bara sjar­mer­andi að vera með bros­hrukkur í kringum augun og lík­ama sem bar það með sér að hafa gengið með og fætt börn inn í þennan heim.

Og vel á minnst, blessuð börnin. Það þykir ekki lengur til­töku­mál að eign­ast barn þótt eng­inn sé eig­in­mað­ur­inn. Sam­bandið við barns­föð­ur­inn er kannski ekk­ert strax frá upp­hafi eða slitnar fljót­lega eftir að barnið fæð­ist. Þegar þannig er komið vakna enn nýjar spurn­ingar í maka­leit­inni. Hvað er best fyrir okkur og börnin? Er hægt að flétta saman nýja fjöl­skyldu úr nokkrum pörtum eða væri heppi­legra fyrir allt og alla að við héldum bara áfram að búa einar? Kannski er bara best að vera í fjar­búð, helg­ar­sam­búð eða stunda skyndikynni.

Vonin vaknar að nýju

Nei, það hlýtur að vera ein­hver þarna úti sem hentar okkur. Er skap­aður bara handa okkur og fellur að okkar per­sónu­leika eins og flís við rass, loks­ins þegar við finnum hann. Mann­eskjan þrífst ekki ein. Maður er manns gaman og allir þurfa stuðn­ing og bak­hjarl í þessu lífi. Karl og kona voru sköpuð til að veita hvort öðru ást og hlýju en hvað er eftir í stöð­unni þegar okkur finnst við búnar að reyna allt?

Ætli við eigum ann­ars úrkosti en að halda áfram að leita. Hver veit nema sá eini rétti komi einmitt upp í hend­urnar á okkur þegar við erum ger­sam­lega hættar að leita. Það má líka leita full­tingis að handan og fara til mið­ils bara svona til að athuga hvort prins­inn sé ekki örugg­lega þarna rétt handan við hornið. Hvort hann sé ekki vænt­an­legur í nán­ustu fram­tíð þessi maki sem kemur ríð­andi eins og bjarg­vættur á hvíta hest­inum og við munum lifa ham­ingju­samar með upp frá því.

„Hver veit nema sá eini rétti komi einmitt upp í hend­urnar á okkur þegar við erum ger­sam­lega hættar að leita.“

Aldrei aftur ein­mana, aldrei aftur leið. „Going to the Chapel and We’re Gona Get Married.“ Jú, bíðum við, þarna er vonin kviknuð aftur. En hvar er hann þá, minn eini rétti? Mið­ill­inn gat því miður hvorki gefið upp stund né stað, eða hvenær ég myndi hitta hann og hvar hann væri nákvæm­lega að finna. Hann gat þó sagt mér að það væri drauma­prins og við myndum lifa ham­ingju­söm til ævi­loka. Ekki slæmt það. Ekki er því um annað að ræða en að byrja að leita aftur. Úff, því­lík vinna, því­líkt puð. Kannski borgar það sig. Hver veit?

Hægt er að hlusta á Lífs­reynslu­sögur Vikunnar á Storytel. Guðrún Óla Jóns­dóttir, Gógó, blaða­maður hjá Vikunni, les upp lífs­reynslu­sögur sem sendar hafa verið inn í blaðið í gegnum tíð­ina og sög­urnar eru jafn ólíkar og þær eru margar. Ekki missa af því þegar nýr þáttur af Lífs­reynslu­sögum fer í loftið í viku hverri – fylgstu með okkur á Facebook. https://www.facebook.com/lifsreynslusaga/

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur