Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Hefur bætt svefn hjá ansi mörgum“

„Hefur bætt svefn hjá ansi mörgum“
„Þegar teppin og sæng­urnar komu á markað var upp­haf­lega mælt með þeim fyrir fólk með kvíða eða ADHD eða fyrir þá sem glímdu við svefn­vanda­mál,“ segir Arnar Þór Jónsson, eig­andi net­versl­un­ar­innar Sofðu rótt. Mynd / Sahara – Sofðu rótt

Svokölluð þyng­ing­ar­teppi og -sængur sem eru sagðar stuðla að slökun og betri svefni, njóta vax­andi vin­sælda á Íslandi. Þetta segir Arnar Þór Jónsson, eig­andi net­versl­un­ar­innar Sofðu rótt, sem selur vör­una frá sænska fyr­ir­tæk­inu CURA of Sweden. Sjálfur á Arnar bæði teppi og sæng sem hann segir koma að góðum notum.

Sæng­urnar koma í nokkrum mis­mun­andi þyngdum, frá þremur og upp þrettán kíló, og velur not­and­inn sæng út frá lík­ams­þyngd sinni. Þótt sængin sé þyngd er hún samt alls ekki of heit, heit­feng­asta fólk sefur rótt undir henni. Mynd / Sofðu rótt

„Teppin og sæng­urnar hafa verið þyngdar sér­stak­lega til að fólk nái betri slökun og sofi betur og upp­lifi þar af leið­andi meiri vellíðan,“ segir Arnar Þór Jónsson, eig­andi net­versl­un­ar­innar Sofðu rótt.

„Ég var svo­lítið skept­ískur á þetta fyrst,“ við­ur­kennir hann, „en fram­leið­and­inn hafði ótal reynslu­sögur og svo þegar ég heyrði hvað fólk var ánægt og próf­aði þetta sjálfur hurfu þær efa­semdir. Nú nota ég svona teppi á hverju kvöldi og ef ég á erfitt með að ná mér niður eftir anna­saman dag gríp ég bara í sæng­ina. Þá er maður enga stund að slaka á og sofna.“

Að sögn Arnars eru CURA Minky-þyng­ing­ar­teppin og CURA Pearl-sæng­urnar frá Sofðu rótt fram­leiddar af sænska fyr­ir­tæk­inu CURA of Sweden og lang­vin­sæl­ustu þyng­ing­ar­teppin á Norð­ur­lönd­unum en selj­ast einnig vel í Norður-Evrópu.

„Við byrj­uðum að selja þetta í jan­úar. Höfðum þá skoðað ýmsa fram­leið­endur en leist best á þennan af ýmsum ástæðum. Í fyrsta lagi er þetta skrá­sett lækn­ing­ara­vara í Svíþjóð sem hefur farið í gegnum ákveðið vott­un­ar­ferli þar. Svo er hún eft­ir­sótt, vönduð og verðið hag­stætt. Fyrir utan það fer fólk rosa­lega jákvæðum orðum um hana og þau áhrif sem hún hefur og það réði auð­vitað heil­miklu þegar við ákváðum að velja CURA of Sweden fram yfir aðra fram­leið­endur,“ segir hann.

„Íslend­ingar eru fljótir að taka við sér þegar þeir fá upp­lýs­ingar um vör­una og heyra um hana frá vinum og vanda­mönnum. Sæng­urnar og teppin seld­ust vel í haust og salan er sífellt að aukast.“

En hvernig virkar þetta? „Í stuttu máli sagt eru teppin og sæng­urnar búnar sili­kon­perlum. Þær þrýsta á húð­ina og örva skynnema undir henni, svona ekk­ert ósvipað því sem ger­ist þegar þú skellir þér í nudd eða færð almenni­legt faðm­lag. Við það losnar um vellíð­un­ar­boð­efni í lík­am­anum sem gerir að verkum að þú slakar betur á, hefur minni áhyggjur og sefur betur. Þetta hefur bætt svefn og vellíðan hjá ansi mörgum.“

Teppin eru sex kíló að þyngd og fást í þremur litum. Mynd / Sofðu rótt

Arnar segir að um tutt­ugu ár séu síðan fyrstu týp­urnar komu á markað. Fyrst um sinn hafi þær ein­ungis verið not­aðar í lækn­inga­skyni hjá ákveðnum hópum sem búa við rask­anir eins og ADHD, ein­hverfu, svefn­leysi og kvíða.

„Fyrir tæpum fimm árum síðan upp­götv­aði almenn­ingur í Banda­ríkj­unum kosti þyng­ing­ar­teppa og Norð­ur­löndin fylgdu í kjöl­farið fyrir tveimur árum. Íslend­ingar eru fljótir að taka við sér þegar þeir fá upp­lýs­ingar um vör­una og heyra um hana frá vinum og vanda­mönnum. Sæng­urnar og teppin seld­ust vel í haust og salan er sífellt að aukast,“ segir hann glaður í bragði og bætir við að allar nán­ari upp­lýs­ingar sé að finna heima­síðu versl­un­ar­innar, sofdurott.is.

Sofðu rótt í sam­starfi við Birtíng

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur