Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dagur biður lesendur að afsaka orðbragðið: „Pistill Vigdísar er algjört rugl!“

Dagur biður lesendur að afsaka orðbragðið: „Pistill Vigdísar er algjört rugl!“

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri segir mál­flutn­ing Vigdísar Hauks­dóttur borg­ar­full­trúa vera algjört rugl, eins og henni sé reyndar full­ljóst sjálfri. Honum finnst varla vert að verja tíma sínum í elta Vigdísi uppi en mik­il­vægt sé að halda hinu sanna til haga.

„Pistill Vigdísar er (fyr­ir­gefið orð­bragðið) algjört rugl – ein­osg henni er reyndar ljóst,“ segir Dagur í sam­tali við Mannlíf. Þarna á Dagur við full­yrð­ingar Vigdísar um að loks­ins sé kom­inn verð­miði á Óðins­torg. Torgið sem stendur beint fyrir utan heim­ili Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra kost­aði 657 millj­ónir króna. Vígdís kallar málið spill­ingu af verstu gerð.

Dagur seg­ist illa skilja hvers vegna Vigdísi sé svo í mun að eigna sér heið­ur­inn að glæsi­legu Óðins­torgi. „Borgin og borg­ar­búar geta að mínu mati verið stoltir af umbreyt­ingu Óðins­torgs. Tek eftir því að Vigdís Hauks­dóttir og Útvarp Saga hafa viljað eignað mér heið­ur­inn af því. Hann verð ég að afþakka,“ segir Dagur.

„Ég er að hafa orð á þessu því ég á sæti í borg­ar­stjórn með Vigdísi Hauks­dóttur.“

Borg­ar­stjór­inn bendir á að til­lagan að end­ur­gerðu Óðins­togi hafi orðið til við síð­ustu alda­mót og því megi þakka Evu Maríu Jóns­dóttur, þáver­andi sjón­varps­konu. Það hafi svo verið í tíð Þor­bjargar Helgu Vig­fús­dóttur, þáver­andi borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem til­lög­urnar voru sam­þykktar 2008 eftir sam­keppni um til­lögur. Frá þessu greinir Dagur í færslu sinni á Facebook þar sem hann taggar þær stöllur.

„Verð­launa­til­lagan varð síðan frá­bær – og fram­kvæmdin ekki síður – og ótal mörgum að þakka, en ekki mér. Ég hef gætt þess að víkja alltaf af fundum þegar fjallað er um nágrenni heim­ili míns – einsog ég tel að borg­ar­full­trúum beri að gera, bæði þegar ég hef verið í meiri- og minni­hluta. Ég er að hafa orð á þessu því ég á sæti í borg­ar­stjórn með Vigdísi Hauks­dóttur. Hún lagði fram fyr­ir­spurn um kostnað við Óðins­torg. Vigdís óskaði eftir tölum um kostnað, ekki aðeins við torgið, heldur líka við fram­kvæmdir við fjölda gatna allt um kring, þar sem lagnir og veitur eru gríð­ar­gamlar og komnar á tíma. Samkvæmt svari fjár­mála­sviðs og umhverf­is­sviðs borg­ar­innar eru taldar saman tölur vegna fram­kvæmda við torgið og einnig end­ur­gerð Skóla­vörðu­stígs, Óðins­götu, Spít­ala­stígs, Týsgötu, Loka­stígs, Freyju­torgs, Freyju­götu, Bjarg­ar­stígs og Óðins­götu við Freyju­torg,“ segir Dagur og bætir við:

„Borg­ar­ráð fékk svarið í morgun. Óðins­torg sjálft kostn­aði rúmar 60 millj­ónir. Vigdís lagði hins vegar saman kostnað við torgið og allar göt­urnar og full­yrti svo í bókun og nú á facebook að torgið hefði kostað hálfan millj­arð. Kannski ætti ég ekki að verja tíma mínum í að elt­ast við Vigdísi en finnst samt rétt að halda hinu sanna til haga. Um leið og ég vil hrósa og þakka öllum sem komu að þessu vel heppn­aða verk­efni.“

Eva María svarar færslu borg­ar­stjórar­ans. „Mikið óskap­lega er skemmti­legt að sjá þetta svona 20 árum síðar. Ég þarf að gera mér ferð að skoða þetta með eigin augum. En fyrir 20 árum síðan var bíla­stæða­fag­ur­fræðin alls ráð­andi á þessu torgi og hinum torg­unum sem voru einnig nefnd í til­lögu minni: Freyju­torg og Bald­urs­torg. Er eitt­hvað gott í gangi þar líka? Til ham­ingju með að torgin séu nú fyrir mann­fólk,“ segir Eva María.

Eva María Jóns­dóttir. Mynd / Skjáskot RÚV.

Þorbjörg Helga svar­aði líka í umræð­unni við færslu Dags. „Frábært verk­efni. Til ham­ingju með þetta. p.s. mig langar að sjá fleiri plöntur,“ segir Þorbjörg.

Og það eru fleiri sem hafa svarað færslu Dags. Það gerði Vigdís sjálf í eigin færslu á Facebook. Þar sakar hún borg­ar­stjór­ann um lygar og segir fjöldan hafa verið blekktan þegar kemur að umræddri fram­kvæmd. „Borg­ar­stjóri segir ósatt og það ekki í fyrsta sinn. Hér er dylgjað út í eitt að venju,“ sagði Vigdís meðal ann­ars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Reykjavíkurborg

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina